Samtíðin - 01.02.1953, Síða 8

Samtíðin - 01.02.1953, Síða 8
4 SAMTÍÐIN ritstjóra suður í Argentínu um vitneskju um forseta íslands, herra Svein Björns- son, vegna sjötugsafmælis hans. Birtist síðan ýtarleg frásögn um forsetann í arg- entínskum blöðum, byggð á upplýsingum frá skrifstofu félagsins. Á stríðsárunum, meðan þýzk ritskoðun var í Danmörku, gaf félagið út fréttablöð um ísland á dönsku, og tóku hélztu blöð Danmerkur upp frásagnir þeirra. Gátu Danir þannig fylgzt með því, sem gerðist á íslandi, og kom stjórnmálaþróunin hér þeim því síð- ur á óvart. Átti starfsemi D. I. S. þannig mjög mikinn þátt í að auka skilning Dana á málstað íslendinga. í árbók félagsins hafa verið prentuð öll helztu gögn um aðdraganda sambandsslitanna og stofnun ísl. lýðveldisins 1944. Munu þessi skjöl hvergi hafa birzt á erlendu máli nema þar. í seinustu árbók (1950—51) er birt fróðleg frásögn um afnám sambandslag- anna í Danmörku og þar m. a. prentuð ummæli allra pólitískra flokksforingja Danmerkur í því sambandi. Mun ýmsunt íslendingum þykja fróðlegt að lesa þau. Allmikill áhugi er fyrir íslandi í Noregi, og hefur D. I. S. lánað til Noregs ýmsar íslenzkar bækur úr lánsbókasafni sínu. Formaður félagsins er Niels Nielsen prófessor. „Samtíðin“ veitir hverjum þeim, er útvegar henni 5 nýja áskrifendur og sendir árgjöld þeirra, að verð- launum 50 króna nýútkomna bók. Sá, sem útvegar 10, fær 100 króna bók. Fyrir 15 nýja áskrifendur getið þér valið um málverkabækur þeirra Ásgríms, Kjarvals og Jóns Stefáns- sonar, sem kosta 150 kr.hver. „Samtíðin“ er tímarit allra lesandi Islendinga. Eruð þér áskrifandi? i rttiU um BLE3NDRH1S >taffi MAÐUR □□ K□ NA Í þessum þætti birtast smáin sam- an ýmsar merkustu ástarjátningar, sem varðveitzt ltafa. Huppdrætti ástarinnar er áþekkl hverju öðru happdrætti. Það er ekki hægt að ætla sér að vinna stóra vinn- inginn, ef menn eiga aðeins átt- ungsmiða. — Nis Petersen. Það er auðveldara að vera elsk- hugi en eiginmaður, af þeirri góðu og gildu ástæðu, að erfiðara er að vera andríkur á hverjum degi en að segja eitthað fallegt stöku sinn- um. t>~, Balzac. Á nóttunni eru allar konur eins. — Danskur málsliáttur. Ástin er aldurslaus, því að hún gngist alltaf af sjálfu sér. — Pascal. Það er vissuleg'a ógæfa, sem jafn- cist á við sjálfan dauðann, að bind- ast því ævilangt, sem maður elskar ekki; en að sjá það, sem maður ann heitast, lenda í höndum annarra, er miklu meiri ógæfa en dauðinn. — Moliére. Þegar karl og kona giftast og eru hamingjusöm, hafa þau framlcvæmt hugsjón og eiga sér einum draumi færra en áður. —- Campoamor. Ég vildi ég fengi að vera strá og visna í skónum þinum, því léttast gengirðu eflaust á yfirsjónum mínum. Páll Ólafsson. GOTTSVEINN ODDSSON, úrsmiður. — Laugaveg 10. — Reykjavík.* Ef yður vantar góð herra- eða dömu- úr, ættuð þér að tala við okkur. Sendum um allt land.

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.