Samtíðin - 01.02.1953, Side 14

Samtíðin - 01.02.1953, Side 14
SAMTÍÐIN 10 blaðinu. — Nú víkur sögunni til Noregs. Skönnnu eftir þetta var vin- ur minn, prófessor Seip, á ferðinni í Kaupmannahöfn og spurði mig, hvernig stæði á þessari færeysku lög- bók, sem áður hefði verið ólesin, en ég hefði lesið fyrstur manna. Ég komst þá að því, að fregnin hafði verið símuð yfir Kjölinn til norskra blaða og hafði þá tekið á sig þá mynd, að ég hefði lesið hvorki meira né minna en heila lögbók. Einhver hefur sagt mér, að íslenzk blöð hafi lika náð i þessi tíðindi, en mérerókunnugt um í hverri mynd. En ég hef aldrei á lifsleiðinni fengið betur staðfest en í þetta skipti, að ævintýri Ander- sens um eina fjöður, sem varð að fimm hænum, getur verið bókstaf- lega satt“, sagði Jón Helgason að lokum. ♦ Það er sagt: ♦ að þeir, sem aka bíl, séu allir á lofti, ef ekki er sprungið á neinu hjól- inu. ♦ að frelsi hafi ábyrgð i för með sér, og þess vegna glati sumir frelsinu. ♦ að hesturinn þinn sé bezti vinur þinn, þangað til þú tekur upp á því að veðja á hann á skeiðvellinum. ♦ að lygarar verði ekki einungis að þola þá refsingu, að enginn trúi þeim, heldur hætti þeir líka að trúa öðrum. i I 167. BAEA „SAMTÍÐARINNAR" EVA £ftir Siyurjón fá f^orgeiróótóíum DROTTINN ALFAÐIR hafði skap- að manninn i sinni mynd. Hann leit yfir verk sin og sá, að þau voru dásamleg. En það var ekki gott, að maðurinn væri einsamall. Þess vegna blés drottinn lifsanda i nasir kon- unnar. Drottinn alfaðir vissi, að maður- inn og konan mundu leita vegarins, sem liggur til þroskans og sannleik- ans. Það yrði ganga utan úr myrkri inn í ljósbjarma. Sú leið yrði löng og torrötuð, þar yrði villzt á f jallvegum, velkzt í hafróti. Þar mundi oft sjásl tár í augum, þreyta og þjáning i hreyfingum, blóð í sporum. En drottinn alfaðir brosti. Hann skildi blutverk mannanna. Hann vissi allt. EVA LÁ í angandi grasinu, björt og ung, teygði úr fagurvöxnum lík- amanum, starði íhugandi upp í trjá- toppana. 1 vitum hennar var moldar- þefur; — hún var hluti af moldinni, var að vakna af svefni, löngum og draumlausum. Þoka og óminni lá að baki hennar. 1 blátæru loftinu var sætur ilmur gróandans. Og Eva teygaði. Aukið líf færðist í likama hennar, hjartað sló örar, blóðið dunaði í æðunum. Hún reis upp, horfði fram fyrir sig, dreymandi. Þar var dulræna tilver- unnar. Eva stóð á fætur. 1 vitund hennar bærðist þráin að kynnast dulrænunni.

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.