Samtíðin - 01.02.1953, Síða 12

Samtíðin - 01.02.1953, Síða 12
\ 8 nuddázt burtu að meira eða minna leyti, og þegar svo er komið, er lítið eða eklcert gagn að lampanum. Ég get nefnt tvö dæmi. Annað er Arin- bjarnarkviða Egils i Möðruvallabók, hitt er fremri blaðsíðan á Heiðarvíga- sögublaðinu, sem Magnús Már Lár- usson uppgötvaði í Reykjavik. Mig langar til að skjóta því hér inn, úr því að við minnumst á Magnús, að ég held, að í jafnfámennu þjóðfélagi og okkar bljóti að vera fátítt, að fram komi ungur maður, sem hafi aðra eins ástríðu og aðra eins hæfi- leika til visindalegra rannsókna og hann, og það væri sannarlega óskandi að hann fengi sem allra bezt skilyrði til að gefa sig allan við slíku“. „Ég tek eindregið undir þá ósk þína og skal í því sambandi geta þess, að ekki alls fyrir löngu gerðum við þennan unga guðfræðiprófessor að heiðursfélaga í Félagi íslenzkra fi’æða í Reykjavík í viðurkenningar- skyni fyrir frábær fræðistörf hans. Meiri viðurkenningu var að sjálf- sögðu ekki á okkar valdi að auðsýna honum. En svo ég víki nú aftur að umtalsefni okkar: Hvernig stóð á sleggjunni, sem þú sást á borðinu i lögreglustöðinni og minntist á áðan?“ „Þessa sömu spurningu lagði ég fyrir leiðsögumann minn í hvíta sloppnum, um leið og ég kvaddi hann, og hann sagði, eins og ekkert sér- stakt væri um að vera: „Það notaði hana maður í morgun til að drepa konuna sína með“. — Lögreglan hér er alvön svona ldutum og kippir sér ekki hót upp við J)að, sem okkur hin- um kann að þykja dálítið svakalegt. Ég komst í annað skipti að raun um SAMTÍÐIN það. Svo stóð á, að til er gamalt færeyskt skjal, sem talið hefur verið ólesandi með öllu. Kvartslampinn dugði heldur ekki við lestur þess, en hins vegar átti lögreglan sérstakt lýsandi stækkunargler, sem í þetta skipti reyndist mér tiltölulega vel. Meðan ég var að fást við þetta bréf, bar svo við einu sinni, að leiðsögu- maður minn hringdi til mín og ÍKeddi mig á því, að næsta sunnudag ætti hann að vera á verði einn manna í þessari deild lögreglustöðvarinnar og bauð mér að koma þá til sín og vera hjá sér allan daginn, ef ég hirti um. Þá mundi ég geta notað stækk- unarglerið og önnur tæki að vild án þess að vera fyrir neinum. Ég kom til l>ans upp úr hádeginu og vann þar inni þangað til fram á nótt. Þegar dimmt var orðið um kvöldið, var fé- lagi minn farinn að vorkenna mér, hversu dauflegt væri að sitja allan daginn yfir einu skinnblaði, svo að hann bauð mér til tedrykkju með sér og fór að segja mér dálítið af sínum viðfangsefnum. Svo stóð á, að ungur maður bafði verið myrtur nokkrum mánuðum áður, líkinu kastað í á og hafði |)á fundizt nokkru áður í vík við ármynnið. Hann dró nú fram fjölda mynda, fyrst af víkinni, þar sem mótaði fyrir einhverjum ræfíi á floti, og siðan urðu myndirnar sífellt nákvæmari ])angað til síðast, að skrokkurinn var kirfilega lagður til í fjörunni. Ég bef einlægt verið dálítið myrkfælinn og var alítaf að bera mig að benda á, að nú hefði ég í rauninni séð nóg. En myndirnar ætluðu aldrei að taka enda og lögreglumanninum var annt

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.