Samtíðin - 01.02.1953, Qupperneq 15

Samtíðin - 01.02.1953, Qupperneq 15
SAMTÍÐIN II Hún gekk beint af augum inn á milli trjánna. Limið vaggaði i vorblænum. Skríkjandi smáfuglar flögruðu grein af gi’ein. I breiðurkörfum tístu ó- fleygir ungar. Eva horfði með ótta- blandinni undmn á nakta smælingj- ana, sem sperrtu ginin og liáðu um mat. Dr einu hreiðrinu féll ungi til jarðar. Þar lá hann grafkyrr. Móðirin flaug yfir honum, angurvær og vand- ræðaleg. Og Eva skynjaði sorg hennar, tók ungann varfærnislega, lagði hanu í hreiðrið. Unaðsleg bylgja hríslaðist um brjóst hennar, mjúksár þrá. Svo gekk hún lengra, þungt hugsandi. Ungamóðirin fylgdi henni, bar maðk í nefinu, lét hann falla í lófa hennar. Maðkurinn var gjöf frá fuglinum, þakklætisvottur fyrir bjálpina. Eva borfði á ánamaðkinn, sem hlykkjað- ist í lófa hennar, lét hann á jörðina. Maðkurinn smeygði sér ofan í svörð- inn. Eva nam staðar á lækjarbakka, skoðaði mynd sína í skyggðu vatn- inu. Og hún brosti á myndinni. Hárið huldi nekt hennar. Hún fór örvandi höndum um líkamann; hann var heitur og mjúkur. Hún þrýsti hvelfd brjótin; þar voru orkulindir fram- tíðarinnar. Og þegar hún varð svöng, las bún tvö epli af trjágrein . Hún borðaði annað eplið, geymdi bitt — óf það i hárinu. Allt í einu stóð hún frammi fyrir karlmanni, sem sat með hönd undir kinn í ofboðlitlu skógarrjóðri. Það var Adain. Hann var þreklega vax- inn, 'þeldökkur og fagureygur. Hann liorfði á Evu og spratt á fætur. 1 svip hans var barnsleg aðdáun, spurul eftirvænting i augnaráðinu. Eva fann ekki til nektar eða blygð- unar, stóð föstum fótum í jarðveg- inum, sem hún var vaxin úr, var ekki afvegaleidd frá frumstæðunni. Hún brosti og vann á með brosinu. Adam endurgalt brosið, gekk til hennar, tók um hendur hennar, lagði þær við bjarta sitt. Eva þrýsti sér að honum í draumblíðri leiðslu, fann í brjósti hans hjartsláttinn, öran og fagnandj. Augu þeirra ljómuðu af ást og hamingju. Dagurinn leið. Adam varð svangur. Þá leysti Eva eplið úr hári sínu. Það var fagurrautt og girnilegt. Hún rétti honum ávöxtinn, rjóð og fagurleit. Og hann át. Um kvöldið öskruðu villidýrin í skógarþykkninu. Eva hnipraði sig saman og mændi út í uggvænlegt rökkrið, óttaslegin. En Adam brosti karlmannlega og bjó þeim hvílu uppi í trjáliminu. Þangað komust óarga- dýrin ekki. Og konan, EVA, kyssti manninn, ADAM, fyrsta kossinn í alsælu ástar- innar. Svo kom svefninn. EKKEHT RAUF djúpa þögnina nema ymur í trjákrónum, sem bærð- ust í blænum. Eva tók litla drenginn sinn og lagði hann að brjósti sér. Barnið teygaði. Og Eva brosti, gagn- tekin kærleiksríkri nautn, móðurást- inni, sem veitir allt, en krefst engra launa. Og hún raulaði, hlýlega og lágt. Það var fyrsta lagið og fvrsta vöggukvæðið, sem samið var, einfalt og látlaust, ekki fellt í skorður ríms

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.