Samtíðin - 01.02.1953, Page 18
1 !
SAMTÍÐIN
Bréfaskóli S.Í.S. hefur veitt um 6000 nemendum fræðslu
S)amta( ui(
i/al
s4maion, poritöfaumann ilói
am
ÞAÐ ER mikill siður með menn-
ingarþjóðum að reyna af fremsta
megni að veita námfúsu, vinnandi
fólki hagnýta fræðslu, er það geti
notið án þess að neyðast til að hverfa
frá atvinnu sinni og setjast í líma-
freka dagskóla. Þessa fræðslu má
veita með ýmsum hætti, t. d. í kvöld-
skólum, sem víða hafa gefizt prýði-
lega og ekki einungis leyst vandamál
óteljandi einstaklinga, heldur og
beinlínis þjóðfélaganna, sem vitan-
lega ber skylda til að greiða götu
þegna sinna. Einkar hagkvæm
fræðsluaðferð, sem mjög hefur upp á
síðkastið rutt sér til rúms, eru hinir
svonefndu bréfaskólar. Bréfaskóla-
nám er hægt að stunda hvar sem er
í tómstundum sínum án þess að
hverfa frá atvinnu sinni og ráðast
til kostnaðarsamrar námsdvalar
víðs fjarri heimahögum. En það, sem
gerir bréfaskólanám að mínu áliti
einkum aðlaðandi, er, að það er al-
gerlega frjálst og þvingunarlaust og
auk þess miðað við fólk, sem vill
menntast og ætlar sér að auka
þekkingu sína. Þá er þetta nám og
mjög ódýrt.
Samhand íslenzkra samvinnufélaga
hefur um nokkurra ára skeið rekið
hréfaskóla við sívaxandi þátttöku.
Hefur skólinn upp á síðkastið fært
mjög út kvíarnar undir öruggri
stjórn Vilhjálms Árnasonar lögfræð-
ings og það svo, að hann veitir nú
fræðslu í samtals 24 greinum. Skól-
VILHJÁLMUR ÁRNASDN
inn hefur ágætum kennurum á að
skipa, og er kennslugjald mjög lágt
eða frá 55—220 kr. fyrir hverja
námsgrein.
„Samtíðin“ leit nýlega inn í skrif-
stofu bréfaskólans, en þar vinna auk
forstöðumannsins tvær stúlkur, er
hafa ærið að starfa við að afgreiða
námsefni til nemenda víðsvegar um
landið, úrlausnir til kennaranna o. fl.
„Hvenær var Bréfaskóli S. 1. S.
stofnaður og eftir hvaða fyrir-
mynd?“ spurði ég Vilhjálm Árnason.
„Skólinn er nú orðinn röskra 12
ára gamall. Hann var stofnaður
haustið 1940, og var Ragnar ólafs-
son hrl. fyrsti forstöðumaður hans,
en síðar veitti Jón Magnússon frétta-
stjóri skólanum forstöðu um nokk-