Fréttablaðið - 28.12.2009, Side 24

Fréttablaðið - 28.12.2009, Side 24
24 28. desember 2009 MÁNUDAGUR UMRÆÐAN Jón Steinsson skrifar um Há- skóla Íslands Fyrir hartnær fimm árum var Kristín Ingólfsdóttir kosin rektor Háskóla Íslands. Strax frá upphafi setti hún markið hátt með því að stefna að því að gera Háskólann að einum af 100 bestu háskólum í heimi. Stefna Háskóla Íslands 2006-2011 bar þessa metnaðar skýrt merki. Fyrsta aðalmarkmið þeirrar stefnu var framúrskarandi rannsóknir. Skólinn ætl- aði sér að „efla hágæðarannsóknir sem standast alþjóðleg viðmið“. Nánar til tekið stefndi skólinn að því að fjölga birtingum í virtum alþjóðlegum ritrýndum ISI-tíma- ritum um 100% fyrir árslok 2011. Hegðun fræðimanna eins og annarra ræðst að stórum hluta af þeim hvötum sem þeir standa frammi fyrir. Ef Háskóli Íslands ætlar að skipa sér á bekk með bestu háskólum heims er því bráðnauð- synlegt að hann veiti starfsfólki sínu sterka hvata til þess að eyða tíma sínum í hágæðarannsóknir. Helsta tæki skólans í þá veru er matskerfi rannsókna við skól- ann. Matskerfi rannsókna við Háskóla Íslands Því miður hefur matskerfi rannsókna við Háskóla Íslands alls ekki veitt fræði- mönnum við skólann hvata til þess að vinna að hágæðarannsóknum. Þvert á móti má segja að matskerfið hvetji þá ein- dregið til þess að framleiða mikið magn af lágæðarannsóknum. Stærsti galli kerfisins er að munur- inn á vægi rannsókna eftir gæðum er allt of lítill. Á sviði heilbrigðisvísinda fást til dæmis fleiri stig fyrir tvær greinar í Læknablaðið (30 stig) en eina grein í Nat- ure (20 stig). Í hagfræði fást fleiri stig fyrir tvo bókarkafla í „innlendri ritrýndri útgáfu með alþjóðlega skírskotun“ en fyrir eina grein í American Econ- omic Review. Annar stór galli er að alls kyns smælki svo sem fyr- irlestrar og veggspjöld á ráðstefn- um, bókadómar og skýrslur geta veitt verulegan fjölda stiga. Innan læknisfræði og hag- fræði er margfalt erfiðara að skrifa fræðigreinar á nægilega háu gæðastigi til þess að þær fáist birtar í Nature eða Ameri- can Economic Review en að skrifa greinar sem fást birtar í miðlungs alþjóð- lega ritrýndum tímaritum hvað þá inn- lendum tímaritum og bókaköflum. Hvata- kerfi sem tekur ekki tillit til þessa veitir ekki rétta hvata. Ef munurinn á stiga- fjölda eftir gæðum er minni en munur- inn á þeirri vinnu sem leggja þarf á sig til þess að hækka gæðastig rannsóknanna hvetur hvatakerfi ekki til framleiðslu á hágæðarannsókna heldur mikils magns lágæðarannsókna. Tökum hagfræði sem dæmi (þar sem ég þekki best til á því sviði). Til þess að skapa rétta hvata þyrfti stigafjöldi fyrir greinar í „topp 5“ tímarit (t.d. American Economic Review) að vera a.m.k. tvisv- ar sinnum meiri en stigafjöldi fyrir grein í fremstu tímarit hverrar undirgrein- ar (t.d. Journal of Monetary Economics) sem aftur þyrftu að hafa a.m.k. tvisvar sinnum meira vægi en önnur góð alþjóð- leg tímarit í faginu sem aftur þyrftu að hafa a.m.k. tvisvar sinnum meira vægi en önnur tímarit og bókakaflar. Þá væri vægismunur á bókakafla í „innlendri rit- rýndri útgáfu með alþjóðlega skírskot- un“ og American Economic Review a.m.k. áttfaldur. Svona er þetta til dæmis á hag- fræðideild Viðskiptaháskólans í Gauta- borg. Á bestu skólum heims er vægismun- urinn enn meiri. Ólíkar greinar í sama kerfi Annar verulegur ókostur við matskerfi rannsókna í Háskóla Íslands er að sama kerfið er notað til þess að meta rann- sóknir á ólíkum sviðum fræða. En mjög mismunandi hefðir hafa skapast um það hvernig rannsóknum er komið á framfæri á mismunandi sviðum. Í sumum fögum eru það til dæmis greinar í vísindatíma- rit sem fá mest vægi innan fræðasamfé- lagsins (t.d. í læknisfræði og hagfræði) á meðan bækur fá mest vægi í öðrum fögum (t.d. stjórnmálafræði). Á sumum sviðum er fjöldi höfunda á hverri grein mun meiri en í öðrum greinum. Í sumum fögum gefur röð höfunda til kynna upplýsing- ar um framlag þeirra á meðan í öðrum er stafrófsröð alltaf notuð. Í sumum fögum eru greinar stuttar og fremstu vísinda- menn heims birta margar greinar á hverju ári á meðan í öðrum fögum er hver grein mun lengri og viðameiri. Og sumar grein- ar (eins og lögfræði og íslenska) hafa mikla sérstöðu þar sem rannsóknir eru að mestu bundnar við innanlandsmarkað. Þegar sama kerfi er notað fyrir öll svið geta fræðimenn nýtt sér veikleika kerfis- ins með því að einbeita sér að útgáfu sem er tiltölulega auðveld í þeirra fagi. Bóka- kaflar eru til dæmis ekki mikils metnir í hagfræði og því er auðvelt að fá bóka- kafla birta. Þar sem bókakaflar veita talsverðan fjölda stiga hafa hagfræð- ingar innan Háskólans hvata til þess að birta í bókaköflum í stað þess að birta í vísindatímaritum. Þetta grefur undan hvata fræðimannanna til þess að stunda hágæðarannsóknir. Til þess að matskerfið veiti fræðimönnum rétta hvata er nauð- synlegt að það taki mið af hefðum í hverju fagi. Til hvers er matskerfið notað? Ein ástæða þess að sama matskerfið er notað fyrir allan skólann er að matskerfið hefur a.m.k. tvö ólík hlutverk. Það er ann- ars vegar notað við ákvarðanir um fram- gang og launakjör hvers fræðimans innan sinnar deildar. Og það er einnig notað til þess að ákvarða skiptingu fjár milli deilda og sviða innan skólans. Þetta er afleitt. Miklu nær væri að matskerfi rannsókna væri einungis notað við ákvarðanir um framgang og launakjör hvers fræðimanns innan sinnar deildar. Þá væri unnt að útbúa gott hvatakerfi innan hverrar deild- ar sem veitti fræðimönnum í þeirri deild sterka hvata til þess að eyða tíma sínum í hágæðarannsóknir. Ákvarðanir um skipt- ingu fjár milli deilda og sviða eiga að byggjast á öðru. Fjögur ár liðin Í Stefnu Háskóla Íslands 2006-2011 var kveðið á um endurskoðun á matskerfi rannsókna við skólann. Nú eru liðin fjög- ur ár og nánast ekkert hefur verið gert í því efni. Vísindanefnd skólans skilaði tillögum um nýtt matskerfi fyrr á þessu ári. Í tillögunum fólst lítið en markvert skref í rétta átt. Þær hefðu heldur dregið úr hvata starfsfólks Háskólans til þess að stunda lágæðarannsóknir en hefðu samt ekki snúið dæminu almennilega við. Jafn- vel þessar hógværu breytingar voru hins vegar of mikið fyrir háskólaráð sem virti þær að miklu leyti að vettugi og gerði enn veigaminni breytingar. Á þeim fjórum árum sem liðin eru frá kjöri núverandi rektors hefur mikið og gott starf verið unnið við Háskólann á ýmsum sviðum. Árangur af þessu starfi er talsverður. Til dæmis hefur birting- um vísindamanna Háskólans í ISI-tíma- rit fjölgað um ríflega 40% og fjárhæð rannsóknarstyrkja úr samkeppnissjóð- um hefur aukist um rúm 45%. En þessi árangur er ekki vegna þess að fræðimenn háskólans hafi sterka hvata heldur þrátt fyrir að þeir hafi veika hvata. Til þess að unnt verði að hífa Háskóla Íslands upp á þann stall sem hann vill vera á er nauð- synlegt að rektor og Háskólaráð sýni kjark og geri róttækar breytingar á mats- kerfi rannsókna við skólann. Höfundur er lektor í hagfræði við Col- umbia-háskóla. Hvatt til meðalmennsku við Háskóla Íslands UMRÆÐAN Anna Sigríður Pálsdóttir, Arn- fríður Guðmundsdóttir, Baldur Kristjánsson, Hjalti Hugason, Pétur Pétursson, Sigrún Óskars- dóttir, Sigurður Árni Þórðarson og Sólveig Anna Bóasdóttir skrifa um jólin Guðspjall jólanna er hápólít-ískt. Þar er ekki um að ræða einkamál heldur flytur það boð- skap sem varðar allar manneskj- ur. Það varðar hvern einstakling og samfélagið í heild. Betlehem var hernumin borg. Var mögu- leiki á að þar væri staður til að finna frið á jörðu og velþóknun yfir mönnum? Guðspjallið er ekki einkamál af því að í því er talað um FRIÐ Á JÖRÐU. Friður á jörðu er FRIÐ- UR Á JÖRÐU, ekki aðeins innri friður. Það er því ekki einfalt að boða jólaguðspjallið þannig að það verði trúverðugt í kristinni kirkju og veraldlegu samfélagi. Kirkjan verður að taka raun- verulegt ástand heimsins alvar- lega eigi jólaguðspjallið að vera annað en ævintýri sem nærir viðkvæmar tilfinningar. Samfé- lagið þarfnast þess á hinn bóg- inn að einstaklingar finni innri frið. Á jólum og einmitt á jólum verðum við að þola óleystar deil- ur og megum ekki horfa fram hjá neyð annarra. Um leið þurfum við að huga að endurnæringu okkar sjálfra til að geta mætt kröfu kær- leikans í gráum hverdeginum. — Þess vegna höldum við jól. Boð um að nálgast hið heilaga Jólaguðspjallið er boð um að nálgast það sem er heilagt. Það er óvíst að hirðarnir hafi verið sérlega trúaðir eða heimspeki- lega sinnaðir. Flest okkar eru lík þeim í því. Þeir eru af þeim sökum prýðilegir fulltrúar fyrir þrá okkar eftir félagslegu réttlæti og innri ró. Þeir eru fínir boðber- ar þess að það er mögulegt að upp- lifa frið mitt í erli hversdagsins þrátt fyrir þann óróleika sem við búum við. Það er ekki auðvelt að tala um frið á jörðu meðan borgarastyrj- aldir og stríð geysa milli landa og trúarbragða. Í ár eru jól víða haldin í skugga fátæktar, ófriðar eða náttúruhamfara. Við höldum jól í framhaldi átaka á loftlagsráð- stefnu Sameinuðu þjóðanna. Þar er velmegun og minnkun útblást- urs stillt upp sem andstæðum. Er það leið til að stuðla að friði á jörðu? Í krefjandi samtíma, mikilli vinnu eða atvinnuleysi, kröfum sem við gerum til okkar sjálfra eða kröfum sem gerðar eru til okkar heima og heiman þurfum við stað þar sem við getum notið friðar. Við þörfnumst kyrrðar, þar sem við finnum tómarúmið fyll- ast af einhverju sem er öðruvísi en allt annað. Þess friðar leitum við um jólin. Friður en ekki raunveruleikaflótti FRIÐUR Á JÖRÐU verður að þýða friður á jörðu fyrir þau sem þjást en ekki meiri neysla fyrir þau sem þegar hafa alltof mikið. FRIÐUR Á JÖRÐU verður að þýða friður okkar hvert með öðru sem felst í góðri samvisku. Góð samviska fæst einungis með ástundun rétt- lætis og sanngirni í samskiptum fólks. Við getum með nokkrum sanni sagt að við séum hersetin þjóð og að við höfum verið það um skeið. Neysla og óhóf síðast liðinna ára hefur gert okkur valdalaus og ófrjáls. Geta jólin hjálpað okkur mitt í hruni efnahags og siðferðis? Geta þau hjálpað okkur að spyrja hvað það er sem skiptir máli og hvað boðskapurinn um FRIÐ Á JÖRÐU þýðir? Jólin felast í einfaldri frá- sögu, ævintýrablæ, jólasálm- um, bænum, tækifæri til að gefa þeim sem mest þurfa á að halda. Við þörfnumst þessa tíma — ekki til að bæta fyrir allt sem miður hefur farið. Jólin vara einfaldlega ekki nógu lengi til þess. Við þurf- um á hátíðinni að halda — ekki til að flýja raunveruleikann, heldur til þess að staldra við, hugleiða, þakka og sækja þrótt til að geta látið gott af okkur leiða. Við óskum lesendum friðsælla jóla! Höfundar eru guðfræðingar. Friðarboðskapur eða ævintýri? JÓN STEINSSON ANNA SIGRÍÐUR PÁLSDÓTTIR ARNFRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR BALDUR KRISTJÁNSSON HJALTI HUGASON PÉTUR PÉTURSSON SIGRÚN ÓSKARSDÓTTIR SIGURÐUR ÁRNI ÞÓRÐARSON SÓLVEIG ANNA BÓASDÓTTIR Kirkjan verður að taka raun- verulegt ástand heimsins alvar- lega eigi jólaguðspjallið að vera annað en ævintýri sem nærir viðkvæmar tilfinningar. Nýtt 4 vikna byrjendanámskeið hefst 4. Janúar. Skráning hafi n í síma 695 8464 / 772 1025 eða á jogastudio.org Verð 14.900 kr. Hot jóga • Hatha jóga • Byrjendanámskeið Meðgöngujóganámskeið Stakur tími 1.500 kr. • Mánaðarkort 10.900 kr. • 3 mánaðakort 23.900 kr. • 6 mánaðakort 36.000 kr. • 10 tíma klippikort 10.000 kr. Meðgöngujóganámskeið 10.500 kr. Innifalið í kortum eru allir opnir tímar ásamt þeirri þjónustu sem boðið er upp á í Veggsport. Stórhöfði 17 (gengið inn um Veggsport) Sími: 695 8464 og 772 1025 www.jogastudio.org Ný og persónuleg jógastöð Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.