Fréttablaðið - 28.12.2009, Side 29
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
JÓLAPAPPÍRINN hefur líklega hrannast upp á
heimilum undanfarið. Vert er að nefna að jólapappír
má ekki setja í pappírsgáma. Sterkir litir pappírsins og
þá sérstaklega gyllingin og glimmerskrautið gera það
að verkum að hann er ódrjúgur til endurvinnslu. www.
sorpa.is
„Margir eru langt frá sínu besta
formi yfir háveturinn og eru þá
frekar í því að byggja upp þrek og
slíkt. Þannig að almennt tekur fólk
aðallega þátt til að hafa gaman af
þessu,“ segir Margrét Héðinsdótt-
ir, formaður frjálsíþróttadeildar
ÍR. Árlegt gamlárshlaup félagsins
fer nú fram í 33. sinn, en hlaupið
hefur verið óslitið frá árinu 1976.
Að sögn Margrétar hefur hlaup-
ið með tímanum orðið að föstum
lið í áramótaundirbúningi margra.
„Fólk er að mæta aftur og aftur,
jafnvel heilu fjölskyldurnar,“
segir hún. „Þar spilar líka inn í
að það er létt stemning yfir hlaup-
inu. Til dæmis hefur sú hefð skap-
ast að margir þátttakenda mæti í
alls kyns búningum og við veitum
verðlaun fyrir þá skemmtilegustu
og frumlegustu. Ég man til dæmis
eftir að jólasveinar og snjókarlar
hafi hlaupið, og þetta minnir oft á
dimmisjónir í menntaskólum.“
Fyrsta árið sem hlaupið fór
fram voru þátttakendur tíu tals-
ins, en árið 1991 voru þeir í fyrsta
sinn fleiri en hundrað. Síðan hefur
þátttakan aukist jafnt og þétt og
varð metþátttaka á síðasta ári.
„Það varð algjör sprenging í fyrra
og þátttakendur voru alls 760 tals-
ins,“ segir Margrét. „Við höfðum
einungis undirbúið okkur fyrir
þrjú til fjögur hundruð þátttak-
endur og því lentum við í algjöru
veseni í markinu. Það varð bara
teppa,“ segir Margrét og hlær.
Hún segir þessa fjölgun þátttak-
enda ekki einskorðast við hlaupin.
„Það hefur verið mikil fjölgun í
frjálsum íþróttum yfirhöfuð. Til
að mynda hefur þátttakendum á
krakkamótinu okkar í ÍR fjölgað
úr hundrað í sex hundruð á örfá-
um árum.“
Rásmarkið er við gatnamót
Hólavallagötu og Túngötu. Hlaup-
ið er vestur í bæ um Tryggvagötu
og út á Lindarbraut á Seltjarnar-
nesi, til baka um Ægisíðu og Suð-
urgötu að endamarki við Ráðhúsið
í Tjarnargötu.
Hægt er að skrá sig á síðunni
hlaup.is til miðnættis 30. desem-
ber. Á hlaupdegi verður hægt að
skrá sig á staðnum í Ráðhúsinu frá
klukkan 10.30 þar til 15 mínútum
fyrir hlaupið, sem hefst klukkan
tólf á hádegi. Vegalengdin er tíu
kílómetrar.
kjartan@frettabladid.is
Margir langt frá sínu
besta formi yfir veturinn
Gamlárshlaup ÍR fer fram í 33. sinn í ár. Metþátttaka var í hlaupinu um síðustu áramót, en þá tóku alls
760 þátt. Formaður frjálsíþróttadeildar ÍR segir fjölgunina ekki einskorðast við hlaup.
Margrét segir algjöra sprengingu hafa orðið í fjölda þátttakenda í gamlárshlaupinu á síðasta ári, en þá tóku 760 þátt.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150
Opið virkadaga kl. 10.00 - 18.00 – laugardaga kl. 12.00 - 16.00
Fyrst og fremst í heilsudýnum
6 mán.
vaxtalausar greiðslur
Sofðu vel um jólin
JÓLATILBOÐ
20% afsláttur af sængurverasettum.
Glæný sending.
Verð nú: 199.900
Verð áður: 229.900
Queen 153x203 cm
Verð nú: 149.900
Verð áður: 189.900
Queen 153x203 cm
ÞÓR
Verð nú: 129.900
Verð áður: 164.900
Queen 153x203 cm
SAGA
“teg. Karmazyn - glæsilegur
push up í D,DD,E,F skálum á
kr. 6.885,-”
“teg. Olimpia - mjög flottur push
up í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr.
6.885,-
NÁM