Fréttablaðið - 28.12.2009, Page 39

Fréttablaðið - 28.12.2009, Page 39
MÁNUDAGUR 28. desember 2009 Eyðist það sem af er tekið UMRÆÐAN Herdís Þorvalds- dóttir skrifar um umhverfismál Íslenska plöntu-flóran, er fátæk og smávaxin á móts við nágrannalöndin. Auk þess hefur hún þurft að búa við stjórnlausa beit nagdýra um aldir, svo að nú er svo komið að margar eru í útrýmingarhættu og margar þyrftu gjörgæslu við, oft þær viðkvæmustu og fallegustu, segir í riti Náttúrufræðistofn- unar. Hvað er svo gert þeim til bjargar? Frá Alþingi koma af og til ályktanir um friðun vissra plöntutegunda, tóm sýndar- mennska. Hvernig er hægt að friða plöntur þar sem lausaganga búfjár, viðgengst á landinu. Hver ætlar að tilkynna u.þ.b. 1.000.000 skepnum sem fara á beit upp um fjöll og firnindi hvaða blóm þær megi ekki bíta? Nú er komin önnur vá sem steðjar að plöntunum. Áður fyrr tíndi fólk smávegis af plöntum fyrir sig og sína sem er sjálfsagt. Á undanförnum árum hafa sprottið upp fyrir- tæki um allt land sem vinna vörur úr íslensk- um jurtum og selja til útlanda og þurfa því ógrynni af plöntum í sína vinnslu. Þess- ar plöntur eru tíndar úti í villtri náttúrunni á sumrin, svo þær ná aldrei að sá sér að haustinu. Hvað skyldu margar vera eftir á tínslusvæðunum eftir margra ára tínslu margra fyrirtækja? Ég sá í amerísku tímariti að fyrirtæki sem vinna úr plönt- um þyrftu að rækta sínar plöntur sjálf. Við viljum gjarn- an hafa blómplöntur í vistland- inu okkar. Hér er ekki nokkurt eftirlit með þessari starfsemi, hver sem vill getur stofnað sitt fyrirtæki og tínt plönt- ur úr villtri náttúrunni eftir þörfum. Eitt fyrirtækið sagði í viðtali að það þyrfti nokkur tonn af jurtum það haustið og sendi fólk til að tína og borgaði því vel fyrir kílóið. Væri ekki lágmark að fyrirtækin þyrftu að tilkynna hvað mikið þau tíndu og hvar, svo hægt væri fylgjast með ástandinu á svæðunum. Eyð- ist sem af er tekið ef ekkert kemur í staðinn. Vinsamlegast, náttúru- vernd og tínslufólk hafi sam- ráð og skoði hvað er að gerast í plöntuflórunni. Höfundur er leikkona og fyrrverandi formaður Lífs og lands. HERDÍS ÞORVALDSDÓTTIR Hér er ekki nokkurt eftirlit með þessari starfsemi, hver sem vill getur stofnað sitt fyrirtæki og tínt plöntur úr villtri náttúrunni eftir þörfum. Fumsýnd 11. desember í Háskólabíói Græna ljósið er á Facebook.com/graenaljosid 14 ÁRA GAMLIR GERÐU ÞEIR SAMNING UM ROKKA SAMAN AÐ EILÍFU - ÞEIM VAR FULL ALVARA! „MEISTARAVERK!“ - EMPIRE „ÉG BUGTA MIG OG BEYGI FYRIR ANVIL!“ - KEANU REEVES „BESTA HEIMILDARMYND SEM ÉG HEF SÉÐ Í ÁRARAÐIR!“ - MICHAEL MOORE „BESTA MYND SEM GERÐ HEFUR VERIÐ UM ROKK OG RÓL!“ - UNCUT Eyjarslóð 5 101 Reykjavík S: 511 2200 www.seglagerdin.is TILBOÐ GILDA EFTIRFARANDI DAGA: MÁNUDAG, 28. DES. 10.00 - 18.00 ÞRIÐJUDAG, 29. DES. 10.00 - 18.00 MIÐVIKUUDAG, 30. DES. 10.00 - 18.00 NÝR, EIGU M 3 STK. Líttu við og gerðu góð kaup á nýjum eða notuðum vagni milli jóla og nýárs Frábær verð á notuðum vögnum! Nánari upplýsingar um tilboð á www.seglagerdin.is Verð 2010 árg. kr. 2.570.000 Palomino Yearling 103 Tilboð kr. 1.969.000 NÝR 2008 NÝR 2009 Verð 2010 árg. kr. 1.390.000 Tilboð kr. 990.000 ÆGISTJALDVAGN + FORTJALD ÚTSALA MILLI JÓLA OG NÝÁRS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.