Fréttablaðið - 28.12.2009, Side 42

Fréttablaðið - 28.12.2009, Side 42
34 28. desember 2009 MÁNUDAGUR timamot@frettabladid.is SIENNA MILLER ER 28 ÁRA Í DAG „Ég hef rekist á nokkra casanova sem mér hefur líkað við og nokkra sem mér hefur líkað síður við. Ég vonast til að rekast á nokkra casanova til við- bótar.“ Sienna Rose Miller er bresk leikkona, fyrirsæta og tísku- hönnuður. Dagurinn í dag, 28. desember, ber heit- ið barnadagurinn í kirkjualmanakinu. Á þessum degi er þess minnst þegar öll börn í Betlehem, tveggja ára og yngri, voru myrt samkvæmt tilskip- un Heródesar konungs. Með því vildi hann tryggja að Jesúbarninu yrði fyr- irkomið. Sr. Kristján Valur Ingólfsson, verkefnisstjóri á Biskupsstofu, segir að kirkjan hafi síðustu árin unnið að því að endurvekja barnadaginn, sem hafi verið fallinn í gleymsku. „Ástæða þess að barnadagurinn var orðinn að gleymdu fyrirbæri er að miklu leyti hve nálægt nálægt frið- samri jólahátíðinni hann stendur. Kirkjan hefur veigrað sér við að segja „ljótar“ sögur af morðum á börnum á þessum tíma. Hitt er annað að barna- morðin eru ákveðin staðreynd og barnadagurinn minnir á atburðina í Betlehem og um leið á öll þau pólit- ísku morð sem framin eru. Börnin eru þau sem þjást oft mest í styrjöldum og verða útundan. Það er daglegt brauð að börn séu drepin í Betlehem,“ segir Kristján Valur. Kirkjan víða um lönd hefur því endurvakið daginn að sögn Kristjáns Vals þar sem kirkjan hvet- ur presta og kirkjufólk til að minnast dagsins þótt ekki sé messað sérstak- lega. „Síðustu árin hefur verið unnið að því að endurskoða handbók prestanna, og þá texta sem lesnir eru á kirkju- árinu, og höfum við unnið í því að glæða fleiri daga lífi. Þótt þetta sé sér- stakur atburður sem þarna er minnst þá ber okkur að hugsa betur um börn- in og minna á börn heimsins í víðara samhengi en hvernig þau birtast prúð- búin við jólatréð um jólin. Þessi dagur á ekki síst erindi við okkur hér á landi því einnig hér á Íslandi má finna mörg börn sem hafa það ekki nógu gott.“ juliam@frettabladid.is BARNADAGUR KIRKJUNNAR: GLEYMDUR DAGUR ENDURVAKINN Minnt á þau börn í heiminum sem eiga um sárt að binda MINNT Á BÖRNIN Í VÍÐARA SAMHENGI UM JÓLIN Sr. Kristján Valur Ingólfsson segir að hlutverk barnadagsins sé að minna á börn sem eiga um sárt að binda víða um heim. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Á þessum degi árið 1965 reis eyjan Jólnir í fyrsta skipti úr hafi, suðvestur af Surtsey. Eyjunni var formlega aldrei gefið nafn enda hvarf hún alls sex sinnum undir yfirborð sjávar. Eyjan var þó oftast kölluð Jólnir. Jólnir var eitt nafna Óðins. Síðasta gos í Jólni sást í eyjunni þann 10. ágúst árið 1966 og hvarf eyjan endanlega skömmu seinna, eða tíu dögum eftir að gosið hætti. Í kjölfar Surtseyjargossins, árið 1965, mynduðust nýjar eyjar og hurfu, þar á meðal Syrtlingur, norð- austan við Surtesy, sem varð um 17 hektarar að stærð. Eyjan var horfin í októberlok sama ár. Leif- ar þessara eyja eru hvorar sínu megin við Surtsey. Surtsey var friðuð að loknu gosinu og hafa jarð- fræðingar haft mikinn áhuga á lífríki eyjunnar en ýmsar lífverur hafa tekið sér bólfestu á þeim. Eyjan er í umsjá Surtseyjarfélagsins, sem starf- ar í umboði umhverfisráðuneytisins fyrir hönd ís- lenska ríkisins. Félagið hefur sinnt mikilvægu hlutverki við skipulag rannsókna í Surtsey og átti stóran þátt í því að eyjan var tekin inn á heims- minjaskrá UNESCO í júlí 2008. Mannaferðir um eyjuna eru bannaðar nema með sérstöku leyfi. ÞETTA GERÐIST: 28. DESEMBER ÁRIÐ 1965 Eyjan Jólnir rís úr hafi AFMÆLI DENZEL WASHINGTON leikari er 55 ára í dag. MERKISATBURÐIR 1836 Spánverjar viðurkenna sjálfstæði Mexíkó. 1846 Iowa verður 29. ríki Bandaríkjanna. 1887 Bríet Bjarnhéðinsdótt- ir flytur fyrst kvenna á Ís- landi opinberan fyrirlest- ur í Góðtemplarahúsinu í Reykjavík sem nefnist Um kjör og réttindi kvenna. 1908 75.000 manns láta lífið í jarðskjálfta á Sikiley. 1967 Borgarspítalinn í Fossvogi er formlega tekinn í notk- un. 1981 Fyrsta bandaríska glasa- barnið fæðist. 1983 Vogur, áfengismeðferðar- stöð SÁÁ, tekur til starfa. 1999 Saparmyrat Nyýazov lætur gera sig að „lífstíðarfor- seta“ í Túrkmenistan. Starfsmenn leikskólans Reykjakots í Mosfellsbæ tóku áskorun bókaútgáf- unnar Sölku og verslana Eymundsson sem staðið hafa að vettlingasöfnun fyrir Mæðrastyrksnefnd. Þeir hittust utan vinnutímans og prjónuðu af kappi. Af- raksturinn varð 55 gullfalleg vettlinga- pör. Alls tóku tuttugu starfsmenn leikskól- ans þátt í prjónaátakinu og við bætt- ust nokkrir foreldrar. Tveir af starfs- mönnunum kunnu ekki að prjóna í upp- hafi, það hefur heldur betur breyst og að minnsta kosti annar þeirra situr nú við og prjónar öll kvöld. Leikskólinn Reykjakot starfar í anda Hjallastefn- unnar, starfsmannahópurinn er sam- rýmdur og vinnur náið að ýmissi handa- vinnu bæði í skólastarfinu og frístund- um. Því greip hann fagnandi tækifærið til að láta gott af sér leiða og ákvað að hjálpa Mæðrastyrksnefnd að hlýja hönd- um landsmanna í vetur. Ekki hafa prjónamaskínurnar í Reykjakoti þar með lagt prjónana á hill- una því næsta verkefni hópsins er að prjóna húfur handa heimilislausum og skila þeim í janúar. -gun Hlýjar hendur og hjörtu PRJÓNAKONUR Gyða Vigfúsdóttir leikskóla- stjóri og Herdís Rós Kjartansdóttir aðstoðar- leikskólastjóri Reykjakots. MYND/SALKA Erfðafræðingurinn dr. Sturla Friðriksson gaf út ljóða- bókina, Ljóð úr lífshlaupi, fyrir skemmstu og er það hans áttunda ljóðabók. Í henni er að finna limrur, lausa- vísur og stutt kvæði sem hann hefur samið á mis- munandi æviskeiðum. Má þar nefna sléttubandavísu sem er á meðal fyrstu tilrauna hans til ljóðagerðar. Sturla hefur lagt stund á ýmiss konar rannsóknir á ferli sínum en ekkert verkefni mun hafa fært honum jafnmikinn hróður og rannsóknirnar á lífinu í Surtsey. Hann kom snemma að gosstöðvunum eftir að gos hófst suð- vestur af Vestmannaeyjum árið 1963. Hann var þar árum saman vakinn og sofinn á varðbergi en rannsóknir á þróun lífs á Surtsey urðu frægar um allan heim. Fyrsta ljóðið í bókinni heit- ir Surtseyjar óður. Fyrsta erindið hljóðar svo: Í fylgd nötrandi norðurljósa og nóvemberhiminsins rósa, féllu sjómenn í stafi, er þeir sáu úr hafi ólgandi gufustrók gjósa. Áttunda ljóðabók Sturlu Friðrikssonar STAN LEE teiknimynda- söguhöfundur er 87 ára í dag. MAGGIE SMITH leikkona er 75 ára í dag. GOLDIE tónlistarmaður er 44 ára í dag. Þökkum ómetanlegan hlýhug og vin- áttu vegna fráfalls okkar ástkæra Karls Smára Guðmundssonar sem lést af slysförum 8. desember síðastliðinn. Berglind Ármannsdóttir Guðmundur Þór Karlsson Auður Eir Guðnadóttir Guðni Þór Guðnason Birgitta Líf Magnúsdóttir Guðmundur Heiðmar Karlsson Guðrún Halldórsdóttir systkini og fjölskyldur. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Kristrún Jóhanna Ásgeirsdóttir (Hanna) Kjarrhólma 22, Kópavogi, lést sunnudaginn 20. desember. Útför hennar fer fram frá Digraneskirkju þriðjudaginn 29. desember kl. 13.00. Guðný Ásgerður Sigurðardóttir Þorkell Jóhann Sigurðsson Gróa Halldórsdóttir Hrönn Sigurðardóttir Ægir Björgvinsson Brynja Sigurðardóttir Gunnar Sigurðsson Guðrún Margrét Einarsdóttir Hörður Sigurðsson Ingibjörg Jóhannesdóttir Sigurður Þór Sigurðsson Sigrún Inga Magnúsdóttir Hallfríður Sigurðardóttir Ómar Elíasson Elías Sigurðsson Emilía Bergljót Ólafsdóttir Jóhanna Sigríður Sigurðardóttr Finnur Einarsson Ásgeir Sigurðsson Svala Steina Ásbjörnsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær frændi okkar, Vilhjálmur Kristinn Sigurðsson fyrrv. póstvarðstjóri, Lindargötu 57, Reykjavík, lést að heimili sínu miðvikudaginn 16. desember síðastliðinn. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 29. desember kl. 13.00. Aðstandendur. Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.