Fréttablaðið - 28.12.2009, Side 46

Fréttablaðið - 28.12.2009, Side 46
38 28. desember 2009 MÁNUDAGUR menning@frettabladid.is ath. kl. 13 Þá verður hátíðarfundur í Þjóðmenn- ingarhúsi í tilefni af 120 ára afmæli Hins íslenska náttúrufræðifélags: Kristín Svavarsdóttir, Guðmund- ur Páll Ólafsson, Sigurjón Baldur Hafsteinsson og Ólöf Ýrr Atladóttir halda erindi en síðan eru pallborðs- umræður um framtíð Náttúruminja- safnsins sem lengi var til húsa í Safnahúsinu. DIKTA - Get It Together Á plötunni má m.a. finna lögin: From Now On - mest spilaða lag í íslensku útvarpi síðustu vikur. Just Getting Started – 2. vinsælasta lag Rásar 2 árið 2008. Platan hefur hlotið einróma lof, enda ein af betri plötum áratugarins. Fyllir hljómsveitin tónleikasali hvar sem hún stígur niður fæti og er ljóst að Dikta er fremsta og vinsælasta rokkhljómsveit Íslands. La Ballade of Lady & Bird: A Project of Keren Ann Zeidel & Bardi Johannsson Í júní 2008 héldu Barði Jóhannsson og Keren Ann stórtónleika ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands í samvinnu við Listahátíð Reykjavíkur. Mikil ánægja var með tónleikana og voru þeir í kjölfarið gefnir út af EMI. Á plötunni flytja Barði og Keren Ann ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands tónleikaútgáfur af lögum sínum í útsetningu Þorvaldar Bjarna Þorvaldssonar. OURLIVES - We Lost the Race Á plötunni má m.a. finna lögin: Núna - mest spilaða lagið á útvarpsstöðinni X-ið árið 2008. Out Of Place - sat í fyrsta sæti vinsældarlista Rásar 2 og X-ins. Eitt mest spilaðasta lag sumarsins á Íslandi. Titillag plötunnar er nú að klifra upp vinsældarlista útvarpsstöðvanna. Með plötunni fylgja 9 aukalög á Tónlist.is, m.a. ábreiða Ourlives og Togga af laginu Þúsund sinnum segðu já. Fréttablaðið “Lágstemmt og fágað popp sem hittir rækilega í mark. Ein besta poppplata ársins." Fréttablaðið Morgunblaðið FÉKKSTU SKELFILEGA LEIÐINLEGAN GEISLADISK Í JÓLAGJÖF? Ekki örvænta... þú getur skipt yfir í frábæra tónlist Kölska: Leiklist ★★★ Óliver! eftir Lionel Bart Verkið er byggt á skáldsögu Charles Dickens. Þýðing: Þórarinn Eldjárn og Jó- hann G. Jóhannsson Leikmynd: Vitas Narbutas Búningar: María Ólafsdóttir Lýsing: Lárus Björnsson Dansar og hreyfing: Aletta Collins Hljómsveitarstjóri: Jóhann G. Jóhannsson Leikendur: Ari Ólafsson, Eggert Þorleifsson, Tryggvi Björnsson, Vigdís Hrefna Pálsdóttir, Þórir Sæmundsson, Bergþór Pálsson, Þórunn Lárusdóttir, Arnar Jónsson, Ragnheiður Steindórs- dóttir, Friðrik Friðriksson, Esther Talia Casey, Álfrún Örnólfsdóttir, Ívar Helga- son, Edda Arnljótsdóttir, Baldur Trausti Hreinsson, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Valur Freyr Einarsson, Guðbjörg Hilm- arsdóttir, Heiða Björk Ingimarsdóttir, Aðalsteinn Kjartansson, Jón S. Snorri Bergsson, Áslákur Ingvarsson Leikstjóri: Selma Björnsdóttir Fyrir nokkrum árum birtist grein í blaði um dómara á Ítalíu sem hafði fengið það verkefni að dæma í máli pörupilta og í stað þess að senda þá á betrunarstofnun dæmdi hann þá til bókalestrar. Hann afhenti þeim stafla af bókum og áttu þeir síðan að mæta aftur til dómarans og spjalla við hann um innihald og boðskap bókanna. Ein þessara bóka var einmitt Oliver Twist eftir Charles Dickens. Vafalítið hefur dómarinn hugsað sem svo að ein- hvern lærdóm kynnu þeir að draga af þessum lestri. Svona eftir á að hyggja með fordómafræðslu nútím- ans í hendi er auðvitað spurning hvaða lærdóm má af ritinu draga. Glæponinn var gyðingur og góði maðurinn var af breskri yfirstétt. Við að sjá þessa sýningu þarf ungviðið á skýringum að halda. Ekki bara skýringar um það hvað er að gerast, heldur líka skýring- ar um hver gerir hvað og af hverju. Það vill oft brenna við í söngleikj- um að atburðarásin hverfur vegna söngleikjaatriðanna sem í sjálfu sér geta fjallað um hvað sem er. Börn- in sem hér fengu tækifæri til þess að dansa og leika voru hvert öðru betra en engu að síður hefði mátt vinna betur textavinnu í samtölum þannig að eðlileg yrðu. Bill Sikes er ekki aðeins skúrk- ur í sögum Dickens heldur orðinn hugtak sem notað er um ákveðna manntegund og svokölluð prototýpa glæponsins. Það er óskiljanlegt hvernig svona fín og falleg stúlka eins og Nancy elskar hann þrátt fyrir allt, en slík er víst hin skil- yrðislausa ást, óskiljanleg. Hlut- verk Nancyar er stórt, hún er góð og falleg en engu að síður brengluð í afstöðu sinni vegna þess uppeldis sem hún hefur fengið. Það voru að vanda prúðbúnir áhorfendur fullir eftirvæntingar sem komu sér fyrir í rauðum stól- um Þjóðleikhússins á annan dag jóla. Tilefnið var frumsýningin á Óliver Twist sem er söngleikur byggður á skáldsögunni frægu eftir Charles Dickens. Það er einmitt þetta, byggður á skáldsögunni, sem er meinið. Nokk- ur af aðalatriðum og boðskap bók- arinnar hverfa algerlega í útfærsl- unni og það er ekki við neinn hér að sakast annan en upphaflega hand- ritsskáldið. Þessi sýning var ljóm- andi skemmtileg á að líta, betri og þéttari eftir hlé en engu að síður áheyrileg. Eitt af því sem spurt er um í pró- gramblaði sýningarinnar er hvort sagan um Oliver Twist gæti gerst í dag. Svo sannarlega eru það mörg börn í henni veröld sem hafa það á margan hátt miklu verra en þau börn sem koma fyrir í þessari sögu. Hvað er það sem gerir verk sígild? Líklega er svarið einfalt, það er að þau eiga erindi og lesendur geta samsamað sig innihaldinu. Vigdís Hrefna Pálsdóttir fer með hlutverk Nancyar sem er stórt í þessu verki. Miðað við lestrarað- ferð sýningarinnar er hún stórgóð í allri sinni framgöngu, fögur og allt umfaðmandi svo og þær Ester Talia Casey og Edda Arnljótsdótt- ir og ekki síst Þórunn Lárusdóttir í hlutverki ráðskonu hælisins. Það var gaman að sjá Bergþór Páls- son í hlutverki Herra Bumbles og flestar persónur skýrt teiknað- ar þó að innihaldið væri einhvern veginn eins og púsluspil. Sá ljót- leiki og sú ógnun sem í verkinu er komst aldrei til skila þó svo að Bill Sikes sem Þórir Sæmundsson léði lífi væri alvondur. Það er nefnilega svo skrýtið að alvonda menn getum við ekki skilið. Þó svo að Eggert Þorleifsson sé nú ekki beinlínis söngvari var hans söngur engu að síður eftirminni- legastur, ekta. Eggert Þorleifsson naut sín í hlutverki gyðingsins og hreyfingar hans á lokaflóttanum voru sérstaklega smart. Hitt er svo annað mál að maður getur spurt sig hvernig í ósköpunum stendur á því að niðurlagi bókarinnar var breytt svona, það er að skúrkurinn fékk að komast undan, meðan í upphaf- lega skáldverkinu eru lokamínút- ur hans svo mikilvægar. Textinn í íslenskri þýðingu Þórarins Eld- járns var víða mjög skemmtilegur. Það er einhver glettilegur léttleiki og ábyrgðarleysi gagnvart efninu sem einkennir alla sýninguna. Búningar Maríu Ólafsdóttur voru frábærir og leikmyndin varð betri og betri eftir því sem skiptin urðu fleiri. Börnin voru góð og ekki síst hann Hrappur sem á stundum, í stórgóðri tjáningu Tryggva Björns- sonar, stal algerlega sýningunni. Það er þó enginn vafi á því að ung- viði landsins á eftir að njóta sýn- ingarinnar en við sem eldri erum verðum kannski svolítið eitt spurn- ingarmerki yfir því að hægt sé að ráðast aftur og aftur í verk sem ættu að geta skilið eftir meira inni- hald en gera það ekki. Dansinn og léttleikinn á munaðarleysingjahæl- inu sem hér heitir vinnuhæli var til að mynda bara eins og hver önnur skemmtistund á Broadway (kannski 1930). Það vantar einhvern veginn ábyrgð í sýninguna, kannski kom- inn tími til hjá Þjóðleikhúsinu að ráða alvöruleikstjóra að stórsýn- ingum fyrir börn. Elísabet Brekkan Niðurstaða: Ljómandi skemmtileg en ábyrgðarlaus sviðsetning. Ég held ég verði að hugsa þetta upp á nýtt! LEIKLIST Ég held ég verði að hugsa þetta upp á nýtt, segir Fagin þegar farið er að halla undir fæti hjá honum. Kannski er þessi frasi líka ágætur fyrir leikhúsgesti og þá sem leikhúsinu stjórna! Vigdís Hrefna sem Nancy og Eggert Þorleifsson sem Fagin. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Arnaldur Arnaldsson heldur styrktartónleika á morgun kl. 20 í Listasafni Íslands . Arnaldur Arn- arson leikur gítarverk eftir Jón Ásgeirsson, Elsu Olivieri Sangiac- omo, Mario Castelnuovo-Tedesco, Bach, Mauro Giuliani, Paulo Bell- inati og William Walton. Arnald- ur fæddist í Reykjavík árið 1959. Hann hóf gítarnám í Svíþjóð tíu ára gamall, síðan í Tónskóla Sigur- sveins D. Kristinssonar hjá Gunn- ari H. Jónssyni og lauk þar námi vorið 1977. Hann tók lokapróf frá Royal Northern College of Music í Manchester 1982, þar sem kenn- arar hans voru gítarleikararnir Gordon Crosskey og John Willi- ams auk gríska píanóleikarans og hljómsveitarstjórans George Hadjinikos. Þá var hann eitt ár við framhaldsnám hjá José Tomás í Alicante á Spáni. Arnaldur vann fyrstu verðlaun í XXI. alþjóðlegu „Fernando Sor“ gítarkeppninni í Róm 1992 og hélt sama ár einleikstónleika á Listahá- tíð í Reykjavík. Hann hefur margoft komið fram á Íslandi og haldið tónleika í Evr- ópu, Ástralíu, Bandaríkjunum og Suður-Ameríku. Styrktartónleikar

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.