Fréttablaðið - 28.12.2009, Síða 48

Fréttablaðið - 28.12.2009, Síða 48
40 28. desember 2009 MÁNUDAGUR folk@frettabladid.is „Ég verð að reyna að þola hitann. Þótt mér finnist voða fínt að komast aðeins í sólina er ég ekkert rosalega góð í svona hita,“ segir tónlistarkonan Lay Low, sem flaug til Ástralíu í fyrsta sinn í gær. Þar hitar hún upp fyrir Emilíönu Torrini á tveimur tónlistarhátíðum og spilar einnig á bassa í hljómsveitinni hennar á þremur hátíðum til viðbótar. Eftir tónleikaferðina um Ástralíu verð- ur förinni heitið til Tókýó þar sem spil- að verður 12. janúar. Alls dvelur Lay Low í fjóra daga í Japan. Hún hlakkar mikið til að stíga þar niður fæti enda er hún einnig að koma þangað í fyrsta sinn. „Ég ætla að reyna að gera eins mikið og ég get á þessum stutta tíma. Það fer reyndar mikill tími í ferða- lög og að koma sér á milli staða en ég ætla mér alla vega að ná mér í eitthvert sushi.“ Tónleikar með Emilíönu í Tyrk- landi og Tékklandi eru síðan fyrirhug- aðir í lok janúar þar sem Lay Low mun hita upp. Síðar á árinu kemur síðan í ljós hvenær Lay Low fer á eigin vegum í tónleikaferð erlendis þar sem hún verður aðalnúmerið. Fyrst mun hún vafalítið ljúka við að semja tónlist fyrir nýja kvikmynd Val- dísar Óskarsdóttur, Kóngaveg 7. Þetta er í fyrsta sinn sem hún semur kvik- myndatónlist og líst henni vel á verk- efnið. „Það gengur bara vel. Ég er mjög spennt að sjá hvernig þetta fer,“ segir hún. - fb Glímir við hitann í Ástralíu LAY LOW Tónlistarkonan Lay Low er farin til Ástralíu í fyrsta sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN > VILL EKKI VAMPÍRUR Fyrir stuttu birti vefritið Radar frétt um að Katy Perry hefði verið að daðra við Robert Pattinson á skemmtistað. Söngkonan upplýsti aðdá- endur sína í gegnum Twitt- er að fréttin hefði verið bull. „Ég fíla ekki vampírur. Ég fíla Russell Brand,“ skrifaði hún. Thom Yorke, söngvari Radiohead, hef- ur bæst í hóp þeirra fjölmörgu poppara sem láta sér ekki nægja að stíga á svið og syngja fyrir þúsundir áhorfenda. Hann vill leggja sitt af mörkum til að breyta heimin- um til hins betra. Popparar bjarga heiminum Umhverfisvænn Yorke Thom Yorke mætti óvænt á loftslagsráðstefnuna í Kaupmannahöfn vegna þess að honum fannst hann ekki vera nógu vel upplýstur um gang mála. Radiohead hefur lengi látið sig loftslagsmál varða og reynir hljómsveit- in hvað hún getur til að menga ekki umhverfi sitt. „Mér fannst ég tilneyddur að reyna að koma auga á einhverja von- arglætu í þess- um umræð- um, bæði fyrir börnin okkar og þeirra,“ skrif- aði Yorke á bloggsíðu Radi- ohead. Berst fyrir Afríku Bono er þekktur fyrir mannúðarstarf sitt. Hann hefur barist fyrir því að felldar verði niður skuldir fátækra Afr- íkuríkja og einnig hefur hann bar- ist ötullega gegn útbreiðslu alnæm- is í heimsálfunni. Bono er áhrifamikill maður og hefur átt fundi með hverjum stjórnmálamannin- um á fætur öðrum, þar á meðal George W. Bush og Tony Blair, auk þess sem sjálfur Jóhannes Páll páfi II. var góður kunningi hans. Ættleiddi tvo drengi Madonna hefur farið aðrar leiðir í mannúðar- starfi sínu. Hún finnur til með börnum sem eiga um sárt að binda í Afríku og fyrir nokkrum árum ferðaðist hún til Malaví þar sem hún ætt- leiddi ungan dreng. Reyndar tók nokkurn tíma að löggilda ættleiðinguna en það tókst á endan- um. Söngkonan ættleiddi annan dreng frá Mal- aví fyrr á þessu ári og í þetta sinn þurfti úrskurð hæstaréttar til að löggilda ættleiðinguna. Geldof gegn fátækt Írski söngvarinn, lagahöfundurinn og rithöfund- urinn Bob Geldof hefur lengi barist gegn fátækt í Afríku, rétt eins og Bono. Árið 1984 stofnaði hann hljómsveitina Band Aid sem söng lagið We Are the World til að afla fjár gegn hungursneyð í Eþíópíu og árið eftir skipulagði hann Live Aid- tónleikana. Fyrir fjórum árum endurtók hann leikinn með Live 8-tónleikunum sem voru haldn- ir víðs vegar um heiminn. Meira sjálfstæði Björk Guðmundsdóttir hefur látið sig sjálfstæð- ismál varða, enda þurftum við Íslendingar lengi að berjast fyrir sjálfstæði okkar. Hún studdi á sínum tíma sjálfstæðisbaráttuna í Kosovo og stutt er síðan hún tileinkaði lag sitt Declare Indep- endence sjálfstæðis- baráttu Grænlend- inga og Færeyinga. Hún vakti heims- athygli þegar hún tileinkaði Tíbetum lagið á tónleik- um í Kína og er fyrir vikið ekki velkomin þangað á næstunni. Sanngjörn viðskipti Chris Martin, söngvari Cold- play, hefur bar- ist ötullega fyrir bættum viðskiptahátt- um í heimin- um. Hann hefur ferðast til Gana og Haítí til að hitta bændur og kynna sér af eigin raun það óréttlæti sem þeir telja sig vera beitt- ir. Á tónleikum er hann jafnan skreyttur Make Trade Fair, MTF eða annars konar áletrun til að minna umheiminn á baráttu sína. Fyrrverandi Playboy-kanínan Kendra Wilkinson eignaðist fyrir stuttu sitt fyrsta barn, soninn Hank Jr. Hin nýbakaða móðir deildi hamingju sinni með heim- inum í gegnum Twitter-síðu sína fyrir stuttu. „Ég var vakandi aftur í alla nótt með litla manninum, en nýt hverrar mínútu.“ Hún sagð- ist jafnframt vera ánægð með að geta nú drukkið kaffi á ný. „Það er frábært að eiga endurfundi við besta vin sinn sem ég hef ekki séð í níu mánuði. Kaffi! Ég vil kaffið svart.“ Kendru skaut upp á stjörnuhim- ininn í kjölfar þáttanna The Girls Next Door, en þar var fylgst með Hugh Hefner og heimilislífi hans. Drekkur svart kaffi HAMINGJUSÖM Kendra Wilkinson er ánægð með að geta drukkið kaffi á ný. Tónlist ★★★ Bjarni Hall The Long Way Home Þessi fyrsta sólóplata Bjarna Hall úr Jeff Who? hefur að geyma heldur áreynsluminna popp en hljómsveitin er hvað þekktust fyrir. Drungalegt umslag plötunnar gefur reyndar í skyn enn þá rólegri og innhverfari tónlist en hljómar á henni því á köflum er Bjarni í léttum Jeff Who?-gír. Bjarni fær aðstoð góðra manna á plötunni, þar á meðal frá Arnari Guðjónssyni úr Leaves sem annast upptöku- stjórn og sér um hljóðfæraleik, enda er þar vandað vel til verka. Fyrsta lagið Wintro er heldur tilþrifalítil ballaða en næsta lag á eftir, R.I.P., er strax hressara þrátt fyrir að titillinn gefi það síður en svo til kynna. Gítarinn í The Midnight Cowboy er í anda Suede og lagið sjálft er sannkallað þægindapopp sem vinnur á við endurtekna hlustun. Bestu lög plötunnar eru annars hið upplífgandi Love Song og Now You‘re Gone þar sem ástarsorgin er allsráðandi. Titillagið The Long Way Home, Nobody‘s Nose og The Midnight Cowboy voru einnig ágæt. Þessi sólóplata er nokkuð góð frumraun og sýnir að Bjarni getur vel staðið einn og sér án aðstoðar Jeff Who? Vonandi verða samt fleiri framúr- skarandi lög á næstu plötu hans. Freyr Bjarnason Niðurstaða: Ágæt sólóplata frá Bjarna Hall. Enn þá sterkari lagasmíðar óskast samt á næstu plötu. Vilhjálmur Bretaprins tók að sér að elda morgunmat fyrir heimilis- laus ungmenni nú stuttu fyrir jól, en með honum í för voru unnusta hans og yngri bróðir hennar. Prinsinn var klæddur svuntu og steikti beikon, egg og tómata handa krökkunum á meðan hann gantaðist við þau og sagði sögur. Vilhjálm- ur sagðist meðal annars vera mun betri í að gera spælegg heldur en hrærð egg. „Dagur sem þessi er mér mikilvæg- ur. Ég fæ meira út úr þessu en að klæðast kjólfötum og sækja veislur. Fyrir suma eru jólin erf- iður tími og ég var mjög snort- inn þegar ég heyrði sögur krakk- anna sem dvelja hér á heimilinu,“ sagði prinsinn í viðtali við tíma- ritið Hello. Bretaprins spælir egg GÓÐHJARTAÐUR PRINS Vilhjálmur lét gott af sér leiða fyrir jólin.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.