Fréttablaðið - 28.12.2009, Síða 58
50 28. desember 2009 MÁNUDAGUR
www.ellingsen.is
NÚ ER TÍMINN
1.490.000 1.590.000 1.190.000
REYKJAVÍK Fiskislóð 1 Sími 580 8500
Afgreiðslutími um hátíðarnar:
Mánudagur 28. des. 10–18
Þriðjudagur 29. des. 10–18
Miðvikudagur 30. des. 10–18
Gamlársdagur 31. des. 10–12
Nýársdagur 1. jan. lokað
Laugardagur 2. jan. lokað
Flugfélags Íslands Deildarb.
Undanúrslit karla
Haukar-Valur 29-22 (15-12)
Mörk Hauka: Sigurbergur Sveinsson 8, Þórður
Rafn Guðmundsson 5, Björgvin Þór Hólmgeirs
son 5, Stefán Rafn Sigurmansson 2, Guðmundur
Árni Ólafsson 2, Jóhann Ingi Jónsson 2, Einar
Pétur Pétursson 2, Elías Már Halldórsson 1, Pétur
Pálsson 1, Sigurður Guðjónsson 1.
Mörk Vals: Árni Alexander Baldvinsson 5, Atli
Már Báruson 5, Fannar Þór Friðgeirsson 4,
Sveinn Aron Sveinsson 3, Arnar Guðmundsson
2, Gunnar Harðarson, Gunnar Ingi Jóhannsson 1,
Orri Freyr Gíslason 1.
FH-Akureyri 26-35 (13-18)
Mörk FH: Ólafur Gústafsson 8, Hermann
Björnsson 7, Halldór Guðjónsson 4, Guðni Már
Kristinsson 3, Reynir Jónasson 2, Ísak Rafnsson 1,
Bjarki Jónsson 1.
Mörk Akureyrar: Oddur Gretarsson 11, Jónatan
Þór Magnússon 6, Guðmundur Hólmar Helgason
5, Andri Snær Stefánsson 4, Geir Guðmundsson
2, Heiðar Þór Aðalsteinsson 2, Hörður Fannar
Sigþórsson 2, Hreinn Þór Hauksson 1, Guðlaugur
Arnarsson 1, Árni Þór Sigtryggsson 1.
Saga úrslitaleikja karla
2006 Haukar-Fylkir 36-35
2007 vor HK-Stjarnan 29-28
2007 jól Fram-Haukar 30-28
2008 jól Fram-Haukar 35-29
2009 jól Haukar-Akureyri í dag
Þýska úrvalsdeildin:
THW Kiel-TV Grosswallstadt 31-26
Sverre Andre Jakobsson skoraði eitt mark fyrir
Grosswallstadt.
HSG Düsseldorf-TSV Dormagen 34-26
Sturla Ásgeirsson komst ekki á blað.
SC Magdeburg-TSV GWD Minden 27-26
Gylfi Gylfason skoraði síðan þrjú mörk.
SG Flensburg-Hannover-Burgdorf 31-24
Alexander Petersson skoraði ekki.
Frisch Auf Göppingen-TBV Lemgo 32-28
Vignir Svavarsson skoraði 3 mörk en Logi Geirs-
son komst ekki á blað.
TuS N-Lübbecke-MT Melsungen 32-23
Heiðmar Felixson komst ekki á blað.
HSG Wetzlar-Rhein-Neckar Löwen 26-34
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 7 mörk og Ólaf
ur Stefánsson skoraði 2 mörk en Snorri Steinn
Guðjónsson komst ekki á blað.
HSV Hamburg-HBW Balingen 31-26
Füchse Berlin-VfL Gummersbach 30-24
Rúnar Kárason skoraði 1 mark fyrir Füchse og
Róbert Gunnarsson skoraði 2 mörk.
ÚRSLITIN Í GÆR
HANDBOLTI „Við byrjuðum mjög
illa og enduðum illa,“ sagði Einar
Andri Einarsson, þjálfari FH, en
Hafnarfjarðarliðið tapaði fyrir
Akureyri í deildabikarnum í gær.
Norðanmenn unnu 35-26 og kom-
ust þar með í úrslitaleikinn sem
verður gegn Haukum í íþróttahús-
inu við Strandgötu í Hafnarfirði í
kvöld.
FH tefldi fram mjög ungu liði
í gær. „Við vorum að spila á leik-
mönnum sem eru ekki vanir því
að vera í svona stórum hlutverk-
um. Á heildina litið er ég gríðar-
lega ánægður með þeirra leik þrátt
fyrir að við höfum tapað þessum
leik,“ sagði Einar.
Hann segist þó hafa spilað á
reynslulitlum leikmönnum af nauð-
syn. „Það eru bara mikil meiðsli
hjá okkur svo þetta var ekki með
ráðum gert. Það voru margir sem
þurftu að spila meiddir síðustu
deildarleikina fyrir frí. Mér var
bara stillt upp á vegg með það að
nota þessu ungu stráka.“
Einar var ánægður með varnar-
leikinn stærsta hluta leiksins. „Við
fengum samt of mikið af hraðaupp-
hlaupum á okkur því við vorum að
missa boltann klaufalega í sókn-
inni. Mér fannst allir vera að gera
sitt besta og leggja sig fram svo ég
er ánægður með liðið í dag.“
Akureyri byrjaði leikinn mun
betur og komst í 6-1 á fyrstu mín-
útunum. Jólasteikin virtist sitja í
Hafnarfjarðarliðinu til að byrja
með en það náði þó að koma sér
í gang og búa til leik. Staðan var
18-13 í hálfleik. Um miðjan síðari
hálfleik náði FH frábærum leik-
kafla og skyndilega var munurinn
aðeins eitt mark, 23-22.
FH fékk tækifæri til að jafna
metin en það tókst þeim ekki.
Viðvörunarbjöllur voru farn-
ar að hringja hjá Akureyringum
sem fóru aftur að gefa í og sigldu
örugglega fram úr, þeir unnu á
endanum sannfærandi sigur með
níu marka mun.
„Ég lít svo á að skýringin á því
að við hleypum þeim aftur inn í
leikinn sé að við vorum værukær-
ir. Við erum ekki nægilega öflug-
ir í að halda forystu og menn voru
farnir að gera þetta af 80% krafti.
Þegar menn eru að leggja sig alla
í þetta erum við með hörku gott
lið,“ sagði Rúnar Sigtryggsson,
þjálfari Akureyrar. Hann vonast
til þess að sínir menn verði með
af 100% krafti allan leiktímann í
úrslitaleiknum í kvöld.
Spurður út í þessa deildabikar-
keppni segir Rúnar keppnina vera
kærkomna. „Ég er á því að við
séum að gera hlé á deildarkeppn-
inni of snemma. Það er vel hægt
að leika í deildinni út desember.
Það er virkilega erfitt fyrir okkur
þjálfarana að skipuleggja okkar lið
með svona tveggja mánaða hléi í
miðju móti. Það er lengsta hlé sem
þekkist held ég. Að mínu mati er
það því kærkomið að fá allavega
einhver verkefni á þessum tíma-
punkti,“ sagði Rúnar.
Sigur Hauka aldrei í hættu
Haukar mættu Val í hinum und-
anúrslitaleiknum fyrr í gær og
unnu sannfærandi 29-22. Sigur
Hauka var aldrei í hættu en Vals-
menn skoruðu aðeins tvö mörk á
fyrstu fimmtán mínútum í seinni
hálfleik. Haukavörnin og Aron
Rafn Eðvarðsson voru líka í miklu
stuði á þessum kafla þar sem úrslit
leiksins réðust.
„Það vantaði leikmenn í bæði
lið en mér fannst mínir menn
sína ágætis sigurvilja og bar-
áttuanda,“ sagði Aron Kristjáns-
son, þjálfari Hauka, eftir leikinn.
„Menn voru að berjast vel í vörn-
inni, mark varslan var góð og sókn-
arleikurinn öflugur. Maður getur
því ekki annað en verið sáttur. Ég
ákvað að gefa eldri leikmönnum
frí í þessum leik,“ sagði Aron sem
vildi ekki segja til um hvort þeir
myndu líka fá frí í úrslitaleiknum.
elvargeir @frettabladid.is
Kjúklingarnir fengu að spreyta sig
Haukar og Akureyri mætast í úrslitum deildabikarsins í karlaflokki í íþróttahúsinu við Strandgötu í kvöld.
Margir reynsluboltar voru hvíldir í undanúrslitaleikjunum sem fram fóru í gær.
FYRSTI ÚRSLITLEIKURINN Akureyri komst í gær í sinn fyrsta úrslitaleik síðan KA og
Þór fóru að spila undir sama nafni í handboltanum. Hér sést Andri Snær Stefánsson
fara inn úr horninu í leiknum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI