Fréttablaðið - 28.12.2009, Side 62
54 28. desember 2009 MÁNUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
HVAÐ SEGIR MAMMA?
„Ég fékk gat á hausinn og lækn-
irinn vildi meina að ég væri höf-
uðkúpubrotinn,“ segir einkaþjálf-
arinn Vilhjálmur Árni Sveinsson,
einnig þekktur sem Villi WRX.
Villi slasaðist í lok nóvember
þegar járnstykki losnaði af tæki
sem hann var að nota í World Class
Laugum. „… Svo endaði stykkið á
viðbeininu og beinhimnan lyftist
upp þannig að það blæddi undir
hana – læknirinn sagði að það tæki
sex mánuði að jafna sig á því,“
segir Villi.
Margir muna eftir Villa WRX úr
sjónvarpsþáttunum Kallarnir, sem
sýndir voru á Sirkus árið 2006.
Egill Gillz Einarsson hjálpaði Villa
að komast í form og í dag starfa
þeir báðir sem einkaþjálfarar. Villi
hefur falið lögfræðingi að kanna
réttarstöðu sína gegn World Class,
en hann segir viðmót starfsmanna
stöðvarinnar ekki hafa verið gott
þegar hann fór fram á bætur eftir
slysið. „Ég fór með þetta beint
í lögfræðing vegna þess að þeir
voru með stæla við mig þegar ég
reyndi að fá eitthvað út úr þeim,“
segir hann. „Hann er að renna í
gegnum málið til að sjá hvort ég
geti fengið einhverjar bætur frá
World Class – eða hvort trygging-
arnar sjái um þetta.“
Villi segir að viðhald tækjanna í
Laugum gæti verið betra og bætir
við að tæki stöðvarinnar séu betri
í Hafnarfirði og Kópavogi. Hann
sér þó fram á að æfa annars staðar
í framtíðinni. „Þetta var tæki sem
var búið að vera bilað í hálft ár.
Ég var að pressa niður einhverj-
um þyngdum og það brotnaði ein-
hver festing, sem var búin að vera
biluð,“ segir Villi spurður nánar
út í slysið. „Það var alltaf eitthvað
vesen á þessum pinna. Svo þurfti
ég að vera heppinn og fá draslið í
hausinn.“
Villi hefur starfað sem einka-
þjálfari frá árinu 2007, aðeins ári
eftir að hann fór í líkamsræktar-
átakið. „Það hefur gengið rosa-
lega vel,“ segir hann. Spurður
hvort hann sé kominn í harða sam-
keppni við Egil Gillz, félaga sinn,
segir hann svo ekki vera. „Hann
er mikið með þessa fjarþjálfun, ég
er meira að þjálfa fólk augliti til
auglitis, en það má segja að fyrsti
alvörukúnni Egils hafi fetað í fót-
spor hans.“
Ekki náðist í stöðvarstjóra World
Class í Laugum við vinnslu fréttar-
innar. atlifannar@frettabladid.is
VILHJÁLMUR ÁRNI SVEINSSON: BÚINN AÐ LÁTA LÖGFRÆÐING Í MÁLIÐ
VILLI WRX FÉKK GAT
Á HAUSINN Í RÆKTINNI
FÉKK GAT Á HAUSINN Villi slasaðist þegar járnstykki losnaði af tæki í ræktinni og
hafnaði í höfðinu á honum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Það kom
mér svolítið
á óvart hvað
hún var
áhugasöm.
Þegar hún
var fimm ára fór hún að smella
saman melódíum og töktum
eins og fullorðin kona og finnst
þetta rosalega skemmtilegt. Svo
er hún mjög tæknivædd og kann
betur á vídeótæki en ég. Hún er
það áhugasöm að ég býst við að
hún eigi eftir að leggja tónlistina
fyrir sig, en það er númer eitt,
tvö og þrjú að hafa gaman af
þessu.“
Tanya Pollock, móðir Isis Helgu Pollock
sex ára, en Isis semur raftónlist undir
nafninu The Form og heldur úti eigin
MySpace-síðu.
„Já, ég er örugglega búinn að gefa 60 lítra,“ segir
Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi og
formaður Blóðgjafafélags Íslands.
Ólafur Helgi gaf blóð í 133. skiptið í síðustu viku.
Hann gaf fyrst blóð 10. mars árið 1972 og gefur að
jafnaði fjórum sinnum á ári.
Og er nóg eftir, er framleiðslan svona gríðarleg?
„Já já, það er talið að séu milli fimm og sjö lítrar
að meðaltali í hverjum manni. Ef við gerum ráð fyrir
að ég sé í meðaltalinu og að sex lítrar renni í gegn-
um mig á hverjum degi þá er þetta tífalt blóðmagnið í
líkamanum. Svona, svo að það sé einhver skemmtileg
tala líka þá er ég búinn að gefa sjálfan mig tíu sinnum.
Geri aðrir betur,“ segir Ólafur í léttum dúr.
Spurður hvað það var sem rak hann út í að gefa blóð
segir hann að það hafi meðal annars forvitni. „Og
líka vegna þess að pabbi gaf blóð, ég vissi það,“ segir
hann. „Ég hef alltaf sagt það þannig að það sem hafi
rekið mig aðallega hafi verið að geta náð fríi í tveimur
kennslustundum í MR – með því að vera alveg á milli
þeirra. Það var auglýst eftir blóðgjöfum í skólanum.
Við fórum, ég og félagi minn, og gáfum blóð. Og nýtt-
um tímann til hins ýtrasta. Svo má ekki gleyma því að
besta kaffistofan í bænum er í Blóðbankanum.“ - afb
60 lítrar af sýslumannsblóði
NÓG AF BLÓÐI Ólafur Helgi er búinn að gefa blóð 133 sinnum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Essasú-froskur Vodafone hefur aldeil-
is slegið í gegn upp á síðkastið. Einn af
hugmyndasmiðum hans er Bragi Valdi-
mar Skúlason, Baggalútur, sem vinnur
hjá auglýsingastofunni Fíton. „Froskur-
inn var „instant“ skyndilausn sem átti að
redda Vodafone fyrir horn í þrjá daga,
en óx öllum svona líka upp fyrir haus,“
segir Bragi.
„Alltaf þegar við höldum að hann sé
búinn stekkur hann upp á næsta plan.
Hann er kominn í bullandi útrás núna.
Fólk er farið að hrella einhverja malas-
íska táningsstúlku með honum og það
hafa birst fréttir af því í Daily Telegr-
aph.“
Bragi ítrekar að margir komi að sköp-
un frosksins. „Mennirnir hjá Miðstræti
sem eru að teikna hann eiga auðvitað
mikið í honum. Það eru miklir snilling-
ar og sjá um að hreyfa kvikindið. Pétur
Jóhann talar svo það sem við skrifum
fyrir froskinn. Við förum náttúrlega
ekki að láta stjörnuna skrifa sjálfa. Þetta
essasú-dæmi er komið frá okkur en í ein-
hverri útfærslunni var hundurinn hans
Péturs kominn í spilið. Við skulum láta
það liggja á milli hluta. Það talar náttúr-
lega enginn barnamál eins og Pétur, það
verður ekki tekið af honum.“
Risastór froskur hefur
farið á milli barnaspít-
ala og fólk keppist við að
mynda sig með honum í
Smáralind. Sigurganga
frosksins er hugsan-
lega bara rétt að byrja.
„Við höfum skapað
skrímsli. Mér sýn-
ist á öllu að hann
sé að öðlast sjálfstætt líf og ætli við
förum ekki bara að sleppa honum laus-
um,“ segir Bragi og bætir við, meira í
gríni en alvöru: „Er ekki bara stefnan
að Vodafone-myndin sprengi öll kvik-
myndahús næsta sumar? Auglýsing í
fullri lengd!“ - drg
FROSKURINN Í BÍÓ NÆSTA
SUMAR? Essasú-froskur Vod-
afone hefur öðlast sjálfstætt
líf. Bragi Baggalútur hjá
auglýsingastof-
unni Fíton bjó
hann til ásamt
öðrum.
Bragi Baggalútur á bak við froskinn
LÁRÉTT
2. íþrótt, 6. fíngerð líkamshár, 8.
kk gælunafn, 9. heyskaparamboð,
11. sjúkdómur, 12. skopleikrit, 14.
starfsaðferð, 16. grískur bókstafur, 17.
skurðbrún, 18. tunna, 20. gangþófi,
21. glufa.
LÓÐRÉTT
1. skref, 3. líka, 4. nagdýr, 5. ögn, 7.
eilífð, 10. útsæði, 13. atvikast, 15.
blóðsuga, 16. krass, 19. frá.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. golf, 6. ló, 8. gæi, 9. orf,
11. ms, 12. farsi, 14. tækni, 16. pí, 17.
egg, 18. áma, 20. il, 21. rifa.
LÓÐRÉTT: 1. klof, 3. og, 4. læmingi,
5. fis, 7. óratími, 10. fræ, 13. ske, 15.
igla, 16. pár, 19. af.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1. Mið-Ísland.
2. Geir Jón Þórisson.
3. Winnipeg í Kanada.
Frammistaða Jóhönnu Guðrún-
ar í síðustu Eurovision-keppni
var kosin sú besta af notendum
vefsíðunnar ESC Today á dögun-
um. Jóhanna fékk rúman þriðjung
atkvæða, en í öðru sæti var hin
franska Patricia Kass og í þriðja
sæti hafnaði Jade Ewan frá
Bretlandi. Jóhanna
á greinilega upp
á pallborðið hjá
aðdáendum keppn-
innar þar sem hún
komst á blað í ann-
arri kosningu; var
í öðru sæti yfir
bestu söngkon-
ur keppninnar
þar sem sú
franska náði
fyrsta sæt-
inu …
ESC Today er stærsta og vinsælasta
Eurovision-vefsíða heims. Kosning-
in stóð yfir í þrjár og hálfa viku og
þúsundir greiddu atkvæði. Íslenski
hópurinn stóð sig gríðarlega vel í
keppninni og notendur
vefsíðunnar kunna að
meta það. Bakradd-
irnar, með Friðrik
Ómar, fremstan í
flokki voru kosnar
besti bakradda-
hópurinn með
hátt í 40 pró-
sent atkvæða,
en norski
hópurinn var í
öðru sæti og
sá sænski í
því þriðja.
Jólamót Tennissambands Íslands
stendur yfir þessa dagana og í
gær var keppt í nokkrum flokkum.
Uppstandarinn og ljóðskáldið
Bergur Ebbi Benediktsson kom,
sá og sigraði, í einum leik, en tap-
aði í öðrum. Þótti
hann sýna fína
takta á köflum
þrátt fyrir
að búa yfir
lítilli reynslu af
íþróttum. - afb
FRÉTTIR AF FÓLKI