Samtíðin - 01.04.1960, Side 7
3. blað 27
arg.
I\lr. 261
Apríl 1960
SAMTIÐIN
HEIIVIILISBLAÐ TIL SKEMMTUNAR 0G FRÓDLEIKS
SAMTIÐIN kemur út mánaðarlega nema í jan. og ágúst. Ritstjóri og útgefandi: Siguröur Skúla-
son> Reykjavík, sími 12526, pósthólf 472. Afgreiðslusími 18985. Árgjaldið, 65 kr. (erl. 75 kr.),
Sreiðist fyrirfram. Áskriftir miðast við áramót. Áskriftargjöldum veitt móttaka í Bókaverzlun
ísafoldar, Austurstræti 8. — Félagsprentsmiðjan hf.
Leikföng lánuð eins og bækur
ATHYGLISVERÐ lánastarfsemi er nýlega haf-
In i Kaupmannahöfn. Þar geta börn á aldrinum
ára nú fengið léð alls konar leikföng á
Svipaðan hátt og fólk fær léðar bækur í bóka-
söfnum. Áskilið er aðeins, að börnin hafi með-
^erðis vottorð frá foreldrum sínum. Síðan getur
hyert barn fengið léð eitt leikfang vikutíma gegn
jeforði um að fara vel með það. Hins vegar segja
ernin, að engin rekistefna sé gerð, þó að leik-
lenS brotni eða týnist! En þegar sama barnið
hefur haft 20 leikföng að láni um 20 vikna skeið
Snmfleytt, er það orðið fyrirmyndar-lánþegi og
að verðlaunum leikfang að gjöf eftir frjálsu
valj.
Rrúður eru í sérflokki, af því að vitað er, að
telpur geta orgjg mj0g hrifnar af þeim. Er telp-
Unum gert að koma þrisvar með brúðurnar til
skoðunar á hálfsmánaðar fresti. Sjái þá ekki á
Peim, er telpunum afhent gjafabréf fyrir þeim,
0g ern brúðurnar þá orðnar eign þeirrm.
Lánastarfsemi af þessu tagi hófst í borginni
08 Angeles í Bandaríkjunum fyrir 25 árum og
efur gefið svo góða raun, að nú eru lánastöðv-
Srnar þar orðnar 48, lánþegar eru orðnir sam-
,als 740.000, og 9.000.000 leikföng hafa verið þar
1 umferð. f Vestur-Berlín hófust leikfangalánin
ar*ð 1952, og eru þar nú 10 lánastöðvar. ítalir
°K Norðmenn hafa einnig tekið upp þessa starf-
semi.
Þess er að sjálfsögðu vandlega gætt, mð leik-
nB>n séu jafnan sótthreinsuð, er þau skipta um
staði. Dönsk kona, Dagny Ingfelt að
nafni, hefur tekið þátt í þessari starfsemi í Los
Angeles. Er það hún, sem hefur komið því til
leiðar, að leikfangalánin hafa verið tekin upp
í Khöfn. Hafa Dönum fyrir atbeina konu þessar-
ar verið sendar allmiklar leikfangabirgðir að
gjöf frá Los Angeles, og hafa þeir vel kunnað að
meta þá hugulsemi.
Reynslan hefur sýnt, að hér er um mjög merki-
lega og einkar vinsæla uppeldisstarfsemi að
ræða. Skapferð barnanna hefur tekið æskileg-
um þroska við leikfangalánin. f fyrrnefndum
borgum eru fjöldamörg börn, sem hafa ekki efni
á að eignast ýmis leikföng, sem hugur þeirra
girnist mjög. Með þessu fyrirkomulagi hefur
börnunum verið gert kleift að hafa afnot af
þeim, en jafnframt hefur þeim aukizt mjög
ábyrgðartilfinning og skyldurækni vegna hluta,
sem þeim er trúað fyrir, en aðrir eiga. Börnin
læra einnig, sem mikils er um vert, að vanda
val sitt á leikföngum í stað þess að þiggja gnægð
þeirra, valda af öðrum og þá mjög oft af algeru
handahófi.
Ætla mætti, að full ástæða væri til, að íslenzk-
ir uppeldisfrömuðir gæfu þessu merkilega ný-
mæli gaum. Vonandi hefur gervi-auðlegð sú, er
hér hefur ríkt síðan á stríðsárunum og íslenzk
börn hafa vanizt, ekki ruglað þau svo í ríminu,
að ógerlegt þyki að sinna því fordæmi, sem
miklu auðugri menningarþjóðir telja börnum
sínum giftusamlegt.