Samtíðin - 01.10.1961, Blaðsíða 11

Samtíðin - 01.10.1961, Blaðsíða 11
SAMTÍÐIN 7 máli gegnir, þegar veriö er í baði. En á eftir er rétt að bursta húðina vand- lega með horðum bursta, einkum oln- liogana og linén, sem einnig á að bera handáburð á, þegar gengið er til hvild- ar á kvöldin. Margt kvenfólk burstar neglur á hönd- um, en ekki þarf síður að bursta negl- ur á tám. Burstið einnig vandlega iljarn- ar og hælana til þess að koma i veg fyrir, að húðin þykkni þar og harðni. Ef þú burstar hárið, verður það mjúkt og liðað. Þú ferð á dansleik og reynir áður að snyrta þig sem bezt. En á dansleik er það ekki sizt baksvipur þinn, sem mest er tekið eftir. Þess vegna þarf að vanda vel til hárgreiðslunnar, og ef kjóllinn er fleginn að aftan, þarf að hreinsa og nudda húðina á hálsi og baki með nægum fyrirvara. Einnig þarf að athuga vel bakið á ballkjólnum. Ef þú hefur verið í honum áður, skaltu atliuga, hvort ekki sést þar far eftir hendur karlmanna. Ef kjóllinn er stuttur, þarf að athuga vel, hvort sokk- arnir fara nógu vel. Eftir því taka karl- nienn fljótt. Eins verða hælarnir á skón- um að vera mátulega liáir, miðað við vöxt þinn og kjólinn. Sokkabandabelti þitt má ekki vera svo þröngt, að felling- ar myndist í húð og holdi. ★ Kvartað um undirhöku LÓA skrifar mér og biður um ráð til að losna við undirhöku. Hún segist vera 23ja ára gömul. SVAR: Þér og öðrum, sem eins stend- ur á fyrir, vil ég segja þetta: Borðið minna, einkum af því, sem er fitandi, og venjið ykkur á að l)era höfuð hátt í bók- staflegri merkingu. Fólk getur fengið Undirhöku af þvi einu að venja sig á að vera mjög álútt. Iskyggilegur aldursmunur MÓÐIB skrifar: Freyja mín. Ilvað á ég að gera? Dóttir mín er orðin ástfang- in í pilti, sem er 11 árum yngri en hún, og vill óð giftast. Mér lirýs hugur við þessu, því þótt ótrúlegt megi virðast, hef- ur staðið alveg eins á fyrir mér! Maður- inn minn var 10 árum yngri en ég, og hann vfirgaf mig og tók saman við miklu yngri konu. Ég liafði sannarlega ekki ætlað mér að skipla mér af ástamálum barnanna minna. En nú er mér nóg boð- ið. Ég sé fyrir mér hjónaskilnað dóttur minnar eftir 10—12 ár. Það er eins og þetta séu álög á okkur mæðgunum. Hvað á ég að gera? BUTTEBICK-snið nr. 9879 í stærðunum 7—14. Smekklegur skólafatnaður á telpur. Sniðin fást hjá SÍS, Austurstræti 10 og kaupfélögunum um land allt.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.