Samtíðin - 01.10.1961, Side 25

Samtíðin - 01.10.1961, Side 25
SAMTÍÐIN 21 maðurinn fram úr rúminu. Hann opnaði alla glugga á íbúðinni, livolfdi peninga- seðlunum úr töskunni, dreifði þeim um öll herbergi liússins og kveikti síðan i þeim. Að þvi loknu staulaðist hann upp í rúm og breiddi upp yfir höfuð. SLÖKKVILIÐ bæjarins var viðbragðs- fljótt þennan laugardag. Málarameistar- inn hafði ekið framhjá húsi fornsalans, séð, að þar var eldur laus og hringt í of- boði á slökkvistöðina. Stuttu síðar spúðu hinar kraftmiklu dælur óhemju vatns- magni inn um glugga gamla hússins. Með snarræði tókst að hjarga eiganda þess ósködduðum úr eldinum. Hann var þeg- ar fluttur í sjúkrahús, liresstist hrátt og komst, læknunum til mikillar undrunar, til sæmilegrar heilsu. En hús hans gereyðilagðist af völdum elds og vatns. Það var því ekki nóg með, að málarinn missti alla arfsvon sína þennan laugardag, heldur varð forn- salinn sjálfur alger öreigi. Og nokkrum árum seinna andaðist hann á elliheimili, eins og áður er getið. VERIÐ VAR að kvikmynda sögu enskra afbrotamanna. Eitt atriðið var knatt- spyrnukappleikur fanga á velli fyrir ut- an tugthús. Allt í einu kallaði kvikmynda- tökumaðurinn: „Það eru 12 fangar í hvoru kappliði. Þetta er ólöglegt!“ „Við vitum það vel,“ anzaði einn af föngunum, „en við erum alltaf að brjóta lögin. Af því erum við hér!“ „ÞÚ ÆTTIR að fara að setjast hér að og taka þér konu,“ sagði faðir við son sinn, sem lengi hafði verið á flakki er- lendis. „Og af hverjum á ég að taka hana?“ spurði sonurinn. FAÐIR nokkur vildi ganga úr skugga um lærdóm sonar síns og spurði hann: „Hvaða menn eru frægir i mannkyns- sögunni?“ „Alexander mikli, Napóleon mikli, kennari minn og ég,“ svaraði pilturinn. „Hvernig stendur á því, að kennarinn og þú skuli vera orðnir frægir i sög- unni???“ „Það hlýtur að vera, því strax eftir landafræðiprófið i fyrradag sagði kenn- arinn við mig: „Nú förum við í mann- kynssöguna.“ “ EKKJUMAÐUR ákvað að geyma aðeins einn hatt af höttum nýlátinnar konu sinn- ar til minningar um hana. Hatturinn var látinn á efstu hillu í glerskáp. Þegar maðurinn missti næstu konu sína, hirti hann aðeins sparihatt hennar og setti hann hjá hinum hattinum. Þar kom, að maðurinn kvæntist í þriðja sinn. Þegar hann sýndi nýju frúnni hatt- ana, varð henni að orði: „Ágætt, en það ætla ég að láta þig vita, að næsti hatturinn verður af þér, en ekki mér!“ UNG FRU kom þjótandi inn í lögreglu- stöð. „Það var hrotizt inn í íbúðina okkar á föstudagsnóttina,“ sagði hún, „og stolið dýrindis perlufesti frá mér. Allt er á tjá og tundri í íbúðinni, allar skúffur opnar og tauið í svefnherbergisskápnum út um allt.“ „Og þetta tilkynnið þér okkur fyrst eft- ir fjóra daga!“ sagði lögreglan. „Það er af því, að ég saknaði ekki perlu- festarinnar fyr en áðan. Ég hélt bara, að maðurinn minn hefði verið að leita sér að hreinni skyrtu.“ GÓÐUR MÁNUÐUR byrjar með því að ger- ast áskrifandi að SAMTÍÐinni.

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.