Samtíðin - 01.10.1961, Blaðsíða 23

Samtíðin - 01.10.1961, Blaðsíða 23
SAMTÍÐIN 19 lúxusbíl, sem hamingjan mætti vita, hvernig fenginn væri! Gamli fornsalinn var loks farinn að trúa ýmsu af þessu rausi. Ekki sízt því, að uppmælingar væru óverjandi fjár- dráttur. Og nú sá hann lát rægikarlsins í blaðinu. Andlátsfregnin kom yfir öld- unginn eins og þruma úr heiðskíru lofti. Hann lá veikur, þegar hann las hana. Samt beið hann ekki boðanna, en kall- aði á vinnustúlkuna og skipaði henni að fara undir eins niður í banka og taka út alla peningainnstæðu sína. „Farðu með þessa tösku undir seðlana,“ sagði hann og benti á gömlu skjalatöskuna sína. Stúlkan kom aftur eftir góða stund með seðlabúntin í töskunni. Öldungurinn borgaði henni þriggja mánaða kaup fyr- irfram og sagði henni svo upp vistinni. Hann kvaðst vilja dejTja einsamall i friði og ró. I sannleika sagt hafði þessi gamli forn- sali aldrei ált neina vini. Jafnvel kona hans hafði ekki elskað hann. Skuggi hjákonunnar hafði lengst af hvílt á sam- búð þeirra. Dóttir karlsins hafði brugð- izt honum, enda hlaupizt á brott með blá- ókunnum, amerískum kynblendingi. Hjá- kona hans hafði alla tíð haft hann að fé- þúfu. Og þ essir náungar, sem liann hafði i'ausnazt við að ánafna eigur sínar, voru ekki annað en viðbjóðsleg snikjudýr, sem heðið höfðu þess með óþreyju, að hann lirykki upp af. Sjúklingurinn var orðinn einn í hús- *nu, og hann íhugaði nú sitt ráð. Var annars nokkurt vit í að fara að arfleiða þennan málara að eigum sínum? Eftir því, sem meðerfinginn sálugi hafði sagt honum, var þetta nýríkt skoffín, sem honum fannst sizt góðra gjalda vert. Nei, nú skyldi hann þó loks gera hreint fyrir sínum dyrum. Með veikum burðum staulaðist gamli Ný gerð AUTO-LITE rafkerlanna þýðir betn ræsingu og jafnari gang vélannnar. Þ. Jónsson & Co.# Brautarholti 6. Símar 19215 — 15362.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.