Fréttablaðið - 08.01.2010, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 08.01.2010, Blaðsíða 2
2 8. janúar 2010 FÖSTUDAGUR NEYTENDUR Rúmlega sex prósenta samdráttur var í sígarettusölu á síðasta ári miðað við árið á undan. Rúmlega ein og hálf milljón kart- ona af sígarettum var seld á síð- asta ári, um hundrað þúsund færri en 2008. Tíu pakkar eru í kartoni og tuttugu sígarettur í pakka. Síg- arettusala jókst örlítið milli áranna 2007 og 2008. Um leið og sígarettusalan dróst saman varð mikil aukning í sölu neftóbaks og enn meiri í sölu pípu- tóbaks. Sala þess jókst um meira en 40 prósent á síðasta ári frá árinu á undan en samdráttur var í sölu píputóbaks milli áranna 2007 og 2008. Sala píputóbaks er mæld í kíló- um. Á síðasta ári seldust rúm níu tonn af píputóbaki en árið 2008 nam salan tæplega sex og hálfu tonni. Tuttugu prósenta aukning varð á sölu neftóbaks. Tæplega 24 tonn seldust á síðasta ári en tæp 20 tonn árið áður. Árið 2007 seldust tæp sautján tonn af neftóbaki. Neftóbak er, eins og nafnið gefur til kynna, tekið í nefið en ekki síður í vörina. Þórdís, ætlarðu að láta útrásar- víkingana svitna? „Þeir fá sko að svitna.“ Þórdís J. Sigurðardóttir tók þátt í ýmsum útrásarverkefnum í uppsveiflunni tengd- um Dagsbrún, svo sem útgáfu danska fríblaðsins Nyhedsavisen, kaupum á bresku prentsmiðjunni Wyndeham og var stjórnarformaður nokkurra fyrirtækja. Hún starfar í dag sem cross-fit þjálfari og heilsuráðgjafi. Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755 Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755 Súr Hvalur Hákarlinn er kominn Laxafl ök Beinlaus og Flott Humar Skelfl ettur BRUNI Ungur maður, rétt tæplega 26 ára, lést í eldsvoða við Hverfisgötu í gærmorgun. Fjórir lögreglumenn þykja hafa unnið þrekvirki þegar þeir björguðu öðrum manni úr risi hússins þar sem eldurinn logaði. „Við vorum alveg að fara að hörfa þegar við sáum þennan mann koma fálmandi í reyknum,“ segir Pétur Guðmundsson, einn lögreglumanna. „Við vorum alveg á síðustu sekúnd- unum. Við bókstaflega hlupum út undan reyk, sprengingum og hita með manninn með okkur.“ Maðurinn sem bjargaðist hafði vaknað þegar lögreglumennirnir hrópuðu og bönkuðu á hurðir. „Það hefði ekki mátt muna nema sekúnd- um í viðbót, þá hefði hann aldrei vaknað,“ segir Pétur. Pétur hefur verið lögregluþjónn í 20 ár og hefur tvisvar áður bjarg- að manneskju úr brennandi húsi. „Núna er þessi björgunartilfinn- ing svo blendin út af manninum sem lætur þarna lífið,“ segir hann. „Það hefði náttúrlega verið draum- ur að geta bjargað öllum, en það var bara ekki möguleiki.“ Að mati Péturs hefði verið óðs manns æði að rjúka inn í hina ris- íbúðina, þar sem maðurinn lá og eldurinn logaði. „Það hefði bara verið vitleysa að reyna að fara inn í þykkan, svartan reyk og mikinn hita, algjörlega án allra tækja. Það er ekki hægt.“ Þar fyrir utan frétti lögregla ekki fyrr en síðar að ein- hver væri í íbúðinni. Alls voru sex manns í fimm íbúð- um hússins þegar eldurinn kom upp skömmu eftir klukkan fjögur, og náði lögregla að sjá til þess að fimm kæmust út. Reykkafarar slökkviliðs fundu svo þann sjötta meðvitundar- lausan. Hann var úrskurðaður lát- inn við komuna á sjúkrahús. Birkir Grétar Halldórsson var sofandi á hæðinni fyrir neðan risið. „Ég vaknaði við brunalykt, kíkti fram en varð ekki var við neitt,“ segir Birkir. „Svo heyrði ég mikil læti og þá var lögreglan að berja á allar hurðir. Ég fékk bara nokkrar sekúndur til að fara í föt og út.“ Birkir játar að hann hafi verið hræddur eftir að hann kom út. „Jú, svolítið. Þegar maður sat inni í löggubíl og horfði á húsið brenna og vissi af manninum sofandi inni,“ segir hann. Eldsupptök eru ókunn og ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. stigur@frettabladid.is Ungur maður fórst í bruna á Hverfisgötu Einn lést í bruna á Hverfisgötu í gærmorgun. Lögreglumönnum tókst að vekja aðra íbúa hússins og fundu einn á síðustu stundu fálmandi í svörtum reyk í risinu. Björgunartilfinningin er blendin út af þeim sem lést, segir einn þeirra. MIKIÐ TJÓN Húsið er mikið skemmt, og risið nánast ónýtt. Enn var unnið á vettvangi í gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA PÉTUR GUÐMUNDSSON Hefur nú þrisvar bjargað manneskju úr brennandi húsi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ORKUMÁL „Þetta eru meðvitaðar aðgerðir til þess að reyna að halda uppi atvinnustiginu,“ segir Kristj- án Haraldsson, orkubústjóri í Orku- búi Vestfjarða, sem hyggur á fram- kvæmdir fyrir um eitt þúsund milljónir króna. Í nýju framkvæmdunum felst bygging nýrrar 1,15 megavatta virkjunar við Borgarhvilftarvatn sem er ofan Mjólkárvirkjunar í Borgarfirði inn af Arnarfirði. Þá er ætlunin að leysa af hólmi eldri 5,7 megavatta vél í Mjólkárvirkj- un með nýrri 7 megavatta vél. Þar er nú einnig 2,4 megavatta vél. Raf- orkuframleiðslan á svæðinu verð- ur þannig samtals 10,55 megavött í staðinn fyrir 8,1 megavatt. Öfugt við flest önnur orkufyr- irtæki hérlendis er fjárhagsstaða Orkubús Vestfjarða afar sterk. Kristján segir að fyrir utan eldri lífeyrisskuldbindingar sé Orkubú- ið skuldlaust. Það helgist af því að fyrirtækið hafi um áratuga skeið ekki fjármagnað framkvæmdir með lánsfé heldur þeim fjármunum sem reksturinn hafi skilað. Þessari stefnu verði haldið áfram. Að sögn Kristjáns er stefnt að því að bjóða út jarðvinnu og bygg- ingu stöðvarhúss í næsta mánuði. „Þeirri vinnu og uppsetningu vél- arinnar á að vera lokið í nóvember,“ segir Guðmundur og ítrekar að farið sé í þessar framkvæmdir nú til að treysta atvinnulífið á Vestfjörðum. „Þó að þetta sé ekki stórt á lands- mælikvarða og við vitum náttúr- lega ekki hvaðan verktakarnir koma skiptir þetta máli hérna fyrir vest- an.“ - gar Orkubú Vestfjarða með nýja virkjun og eykur afl Mjólkárvirkjunar: Framkvæma fyrir milljarð án lántöku MJÓLKÁRVIRKJUN Framleiðslan verður aukin með nýrri vélasamstæðu. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR TÓBAKSSALAN Þróunin milli áranna 2007 og 2008 og áranna 2008 og 2009. ´07 og ´08 ´08 og ´09 Sígarettur 0,44% -6,25% Píputóbak -3,70% 41,22% Neftóbak 17,76% 19,25% Sala sígarettna dróst saman á síðasta ári en sala á pípu- og munntóbaki jókst: Sala píputóbaks jókst um 40% TÓBAKSINS NEYTT Neftóbak, sem bæði er tekið í nef og vör, seldist mun meira á síðasta ári en árið á undan. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA SLYS Karlmaður um fertugt slas- aðist alvarlega þegar hann ók vélsleða á húsvegg við Funa- höfða á öðrum tímanum í gær. Maðurinn var fluttur á gjör- gæsludeild Landspítalans með áverka víða um líkamann, meðal annars höfuðáverka. Tildrög slyssins liggja ekki ljós fyrir, að sögn varðstjóra lögreglu, að öðru leyti en því að maðurinn virðist hafa verið að prufukeyra eigin vélsleða á göt- unni að lokinni viðgerð þegar hann missti stjórn á honum. Lögreglan rannsakar málið og hefur vélsleðinn meðal annars verið tekinn til rannsóknar. - sh Ók á húsvegg við Funahöfða: Slasaðist alvar- lega á vélsleða AF VETTVANGI Ekki liggur fyrir á hversu miklum hraða maðurinn var þegar sleðinn skall á veggnum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR ALÞINGI Stjórnarfrumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslu vegna synjunar forseta verður tekið til meðferðar á Alþingi í dag. Málið verður lagt fram á þingfundi, sem hefst klukkan hálf ellefu, og er stefnt að því að lögfesta það áður en dagur er að kveldi kominn. Upphaflega var áformað að þinghald að loknu jólaleyfi hæfist þriðjudaginn 26. janúar. Undanfarinn rúman áratug hefur þing á nýju ári jafnan haf- ist í annarri eða þriðju viku árs- ins. Á því var undantekning 1999 þegar þing kom saman 6. janúar til að bregðast, með lagasetningu, við Valdimarsdómnum. - bþs Frumvarp um þjóðaratkvæði: Stefnt á að ljúka málinu í dag Sprakk á einkaþotu Loka þurfti Keflavíkurflugvelli í fimmt- án mínútur eftir hádegi í gær þegar einkaþota af gerðinni Falcon 2000 hringsnerist á vellinum. Við lendingu sprakk á dekki vélarinnar með fyrr- greindum afleiðingum. Draga þurfti vélina af flugbrautinni. SAMGÖNGUR LÖGREGLA Lögreglan á Selfossi fann á þriðja hundrað kannabis- plöntur í íbúðarhúsi í Hveragerði á miðvikudag. Á staðnum fannst einnig á annað kíló af tilbúnu marijúana og lítið eitt af hass- olíu. Karlmaður sem var í íbúðinni var handtekinn og yfirheyrð- ur bæði á miðvikudag og í gær. Hann játaði að hafa staðið að ræktuninni og sagðist hafa verið einn að verki. Honum var í kjöl- farið sleppt úr haldi. Við ræktunina voru notaðir gróðurhúsalampar, en lögregla segir afar varasamt að nota svo sterka lampa innanhúss vegna eldhættu. - sh Handtekinn í Hveragerði: Upprættu stóra kannabisrækt Stakk af frá leigubílaskuld Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt konu á fertugsaldri í eins mánaðar fangelsi, skilorðsbundið, fyrir að svíkja leigubílstjóra um greiðslu. Konan lét aka sér úr Faxafeni í Reykjavík til Selfoss. Þar stakk hún af frá sextán þúsund króna skuld. Hún hefur síðan greitt féð og játaði brotið skýlaust. DÓMSMÁL EFNAHAGSMÁL Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara, sagði í sam- tali við RÚV í gær að of mikill þrýstingur hafi verið settur á Íslendinga í Icesave-málinu. Hennar skoðun er sú að ekkert liggi á í málinu, enda sé verið að fjalla um sam- komulag sem eigi að gilda til ársins 2024, og fara eigi aftur á byrjunarreit með samningana. Eva segir að hún hafi fengið það staðfest frá höfundum Evr- ópureglugerðar um innstæðu- tryggingar að reglunum hafi ekki verið ætlað að taka á eins djúp- stæðum vanda og bankahrun heillar þjóðar vissulega er. Hún segir reglugerðina meingallaða og það sé ástæða vandans. Íslend- ingar hafi því öflug rök fyrir því að ábyrgðin sé ekki eingöngu Íslands. - shá Eva Joly um Icesave: Rétt að fara á byrjunarreit EVA JOLY SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.