Fréttablaðið - 08.01.2010, Blaðsíða 25
8. janúar föstudagur 5
KÓNUM
seríunni af raunveruleikaþættin-
um sínum My BFF. Ég er gífurlega
spennt eftir að þetta fari í loftið.
Hún sumsé var það hrifin að hún
er með Gyðju-vörurnar í sínum
einka fataskáp og notar þetta við
ýmis tækifæri. Ég trúi þessu varla
enn þá, þetta er svo óraunveru-
legt,“ hlær hún. „En það eru sumsé
fleiri stjörnur í samningsviðræð-
um við mig og slíkur samningur
felst í því að þær fá að ganga í vör-
unum og í staðinn er þetta mik-
ill heiður og auglýsing fyrir mig
þegar þær eru myndaðar í Gyðju.
Ég tel þó ekki tímabært að upplýsa
um nöfn þeirra fyrr en allt er frá-
gengið.“ Sigrún Lilja segir að það
vefjist ekki fyrir útlendingum að
bera fram nafnið Gyðja. „Ég vildi
hafa íslenskt nafn og ég er stolt af
því að vera Íslendingur.“
GÖNGUFERÐIR Í HRAUNINU
VEITA INNBLÁSTUR
Sigrún Lilja segist þó vera mjög
varkár, sérstaklega í ljósi erfiðra
tíma. „Ég ígrunda hvert einasta
atriði mjög vel. Ég er með um
fimm manns í að vinna fyrir mig
núna og svo hef ég einnig fengið
frábæra aðstoð frá kærastanum
mínum sem stendur á bak við
mig í einu og öllu. Við erum barn-
laus enn þá enda er sólarhringur-
inn minn ekki nógu langur núna
til þess að hafa tíma fyrir barn-
eignir! Ég vil standa mig í báðum
hlutverkum, að vera móðir og að
vera viðskiptakona og þess vegna
tók ég meðvitaða ákvörðun um
að fresta því aðeins að eignast
fjölskyldu,“ segir Sigrún Lilja
„En það er nóg að gera heima við,
utan vinnunnar. Við erum stuðn-
ingsforeldrar níu ára stúlku sem
kemur til okkar reglulega. Hún er
yndisleg og við teljum okkur eiga
dálítið í henni líka!“ segir Sig-
rún Lilja með breiðu brosi. „Svo
eigum við tvo yndislega Síberíu
husky-hunda og það gefur mér
afskaplega mikið að bregða mér
út í náttúruna með hundana. Það
sem veitir mér mestan innblást-
ur í lífinu er að fara út í Hafnar-
fjarðarhraunið, bara ég og hund-
arnir mínir!“ En er ekki alveg
hægt að búast við því að Sig-
rún Lilja þurfi að fórna íslenska
hrauninu fyrir glamúr og glys í
Hollywood? Hún hlær. „Það getur
auðvitað farið svo að maður þurfi
eitthvað að flytjast búferlum út
af fyrirtækinu. En ég elska land-
ið mitt og ræturnar verða alltaf
íslenskar. “
Tilb kr 379.000
DUX CLASSIC
2 DUX Classic 90x200cm/Xtandard
yfirdýna 180x200cm og fætur
DUX VISTA CLASSIK PAKKI
2 DUX Classic 90x200cm/Xtandard
yfirdýna 180x200cm/23cm fætur/
Vista höfuðgafl og Mathilda rykfaldur.
Tilb kr 479.000
Ármúla 10 | sími: 5689950 | www.duxiana.com
C
Undanfarnar vikur hefur verið sérlega kalt í veðri.
Kremin sem við notum dags daglega virka ekki alltaf í
kuldanum og því er mikilvægt að finna sér krem sem
verndar húðina í frostinu. Comfort On Call frá Clinique
hentar sérstaklega vel fyrir þá sem stunda skíði eða
útivist á veturna, en það verndar húðina fyrir skemmd-
um vegna vinda, kulda og annarra veðratengdra
árása. Kremið er ofnæmisprófað og róar húðina eftir
áreiti umhverfisins. Turnaround-maski og body lotion
eru einnig nýjungar frá Clinique sem leika við kropp-
inn. Maskinn virkar eins og mild húðslípun eftir að
hann hefur verið á andlitinu í fimm mínútur og body
lotionið gerir þurra húð mjúka og geislandi á ný.
Verndaðu húðina
í kuldanum
Falin perla:
Súpubarinn í Listasafni Reykja-
víkur er með æðislegan mat
sem stendur alltaf fyrir sínu og
er hollur í þokkabót.