Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.01.2010, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 08.01.2010, Qupperneq 46
34 8. janúar 2010 FÖSTUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÁRÉTT 2. umrót, 6. borðaði, 8. svif, 9. fugl, 11. mjöður, 12. brestir, 14. pjátur, 16. skóli, 17. síðan, 18. andi, 20. bor, 21. staðarnafn. LÓÐRÉTT 1. líkamshluti, 3. í röð, 4. skvetta, 5. frostskemmd, 7. segulband, 10. poka, 13. stígandi, 15. lampi, 16. skammst., 19. tveir eins. LAUSN LÁRÉTT: 2. rask, 6. át, 8. áta, 9. lóm, 11. öl, 12. snark, 14. blikk, 16. ma, 17. svo, 18. önd, 20. al, 21. oddi. LÓÐRÉTT: 1. háls, 3. aá, 4. stökkva, 5. kal, 7. tónband, 10. mal, 13. ris, 15. kola, 16. möo, 19. dd. Hinn litríki Haffi Haff kom fram á homma- og lesbíuklúbbnum Neighbours í Seattle á gamlárskvöld. Haffa var vel tekið á klúbbnum, sem er risavaxinn og á þremur hæðum. Vefútgáfa Seattle Gay News birti ítarlegt viðtal við Haffa rétt fyrir áramót þar sem kom meðal annars fram að myndarlegustu karlmennirnir eru þaðan að mati Haffa og að hann hafi endurfæðst þegar hann flutti til Íslands. Og íslenski kvikmyndabransinn virðist vera að taka þann banda- ríska sér til fyrirmyndar. Miklar vinsældir barna- og fjölskyldu- myndarinnar Algjör sveppur og leitin að Villa fóru vart fram hjá neinum og nú eru tökur á mynd númer tvö þegar hafnar. Gert er ráð fyrir því að hún verði frumsýnd í september en hún ber heitið Algjör sveppur og dular- fulla hótelherbergið. Leikstjóri er sem fyrr Bragi Þór Hin- riksson en ásamt Sveppa verða þeir Vilhelm Anton og Guðjón Davíð Karlsson í helstu hlut- verkum. Og ögn meira af Sveppa og hans vinum því hann ásamt Auðuni Blöndal fær góðan gest til sín í kvöld þegar Strákarnir fara aftur á stjá. Sjálfur Eiður Smári Guðjohnsen mun þá setjast í heita sætið og ætla þeir Sveppi og Auddi að kasta vinahamnum og spyrja hann í þaula út í fremur mis- heppnaðan flutning yfir til Mónakó og umfjöllun DV um fjárhag knattspyrnu- mannsins sem hann hefur reyndar kært. FRÉTTIR AF FÓLKI Fimleikakonan Svava Björg Örlygs- dóttir leikur djöfla og gamalmenni í leikritinu Faust sem verður frum- sýnt í Borgarleikhúsinu 15. jan- úar. „Þetta er æðislegt,“ segir Svava Björg, sem verður í þrem- ur hlutverkum. „Þetta er rosalega skemmtilegt fólk sem ég er að vinna með og manni leiðist ekkert á æfing- um.“ Gísli Örn Garðarsson, leikstjóri Faust, og Jóhannes Níels Sigurðs- son, sem sér um að koma leikurun- um í gott form, æfðu báðir fimleika í Ármanni, rétt eins og Svava Björg. Hún er margfaldur Íslands- og bik- armeistari í hópfimleikum auk þess sem hún varð Norðurlandameistari í hópfimleikum 2007 og í öðru sæti á tveimur Evrópumótum í hópfimleik- um. Sú reynsla nýtist henni heldur betur vel í Faust, þar sem hún hopp- ar um allt í svörtum latex-búningi með litla púka-vængi á bakinu. Hún segir að engin hætta sé á ferðum í Borgarleikhúsinu þrátt fyrir allan hamaganginn. „Alls ekki. Við erum alltaf með örygg- ið til staðar og erum ekkert að ana út í neitt. Þetta virðist margt vera mjög hættulegt en auðvitað er ekki hægt að láta okkur gera neitt sem er hættulegt, þá yrði engin sýning. Maður þarf bara að láta vaða,“ segir hún og óttast engan sviðsskrekk þrátt fyrir að þetta sé fyrsta leik- sýningin hennar. „Maður er vanur að gera alls konar hluti enda hef ég yfirleitt verið ein í fimleikunum. Ég get ekki beðið.“ - fb Fimleikastjarna sýnir mikla fimi í Faust „Stelpum finnst þetta mjög spenn- andi. Þetta er líka svo hryllilega gaman,“ segir súludanskennarinn Inga Dungal. Súlufitness hefur verið í boði á Íslandi síðustu ár og nú hafa Inga og Halldóra Kröyer opnað stúd- íó í líkamsræktarstöðinni Jaka- bóli. Þær sérhæfa sig í súluformi, -dansi, -jóga og hinum djarfa bur- lesque-dansi. Fimmtán súlur hafa verið sérsmíðaðar og settar upp í stúdíóinu og ásóknin í námskeið- in er mikil að sögn Ingu, en hún byrjaði að auglýsa í byrjun vik- unnar og síminn hefur ekki stopp- að síðan. „Allar stelpur sem byrja halda áfram. Flestar koma líka sjálfum sér alveg rosalega á óvart í fyrsta tímanum. Þær fara upp og á hvolf strax og þeim finnst alveg stór- merkilegt hvað þær geta,“ segir Inga. Inga segir stóran mun á súlu- dansi og súluformi, en sá síðar- nefndi er meira líkamlega krefj- andi. „Í súluformi eru þær að gera krefjandi æfingar,“ segir hún. „En í súludansi er meira um snún- inga og dans. Þetta eru tvö rosa- lega mismunandi námskeið. Súlu- formið býr til vöðva alveg rosalega hratt en í súludansi eru stelpurnar meira sexí og að dilla sér. En þetta er ekki stripp, þær klæða sig ekki úr neinum fatnaði. Það er semsagt ekki verið að þjálfa stelpur í að vera nektardans- meyjar? „Nei. Á strippstöðunum eru þær að gera allt annað. Þessi list sem er á súluforminu er ekki inni á strippstöðunum. Þetta er meiri íþrótt. Tekur miklu meira á.“ Nán- ari upplýsingar er að finna á Face- book undir „súluform“. Josy Zareen býður upp á súlufitn- ess í Happy Eyes Studio og segir líkamsræktina vera mjög vinsæla. „Það er algengt að fólk byrji um áramót,“ segir hún. „Málið með súluna er að hún styrkir hendurn- ar og lagar „bingóið“ hratt.“ Josy vísar þar í spik sem safnast saman undir upphandleggnum. „Ég byrjaði að auglýsa í vikunni og flest námskeiðin eru þegar full,“ segir Josy og bætir við að konur af öllum stærðum og gerð- um sæki námskeiðin. „Konurnar líta á súluna og segjast ekki geta haldið sér á súlunni. En svo upp- götva þær að þær geta það. Allar konur geta það.“ atlifannar@frettabladid.is INGA DUNGAL: FIMMTÁN SÚLUR Í NÝJU STÚDÍÓI Íslenskar konur flykkjast í súludans eftir hátíðarnar FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M SVÍFUR UM SVIÐIÐ Svava Björg svífur um sviðið með litla púka-vængi á bakinu og í svört- um latex-búningi í leikritinu Faust. MORGUNMATURINN „Ég fæ mér oft smoothie, enda er ég snillingur í smoothie-gerð.“ Diljá Ámundadóttir, framleiðandi hjá CCP. Íslenska tískumerkið Nikita fagnar tíu ára starfsafmæli á árinu með stæl því það er komið í samstarf við stórfyr- irtækið K2 sem er einn stærsti snjó- brettaframleiðandi heims og afar virt. „Við erum búin að hanna fyrir þá bæði snjóbretti og bindingar fyrir stelpur og þetta verður selt undir nöfnum beggja fyrirtækja. Svo verða einnig uppá kom- ur erlendis í samstarfi við dreifing- araðila og verslanir þar,“ segir Rúnar Ómarsson, einn af stofnendum fyrir- tækisins. Síðan þau Rúnar, Heiða Birgisdóttir og Valdimar Hannesson stofnuðu fyrir- tækið árið 2000 hefur mikið vatn runnið til sjávar. Nikitavörurnar eru nú fáan- legar í um 1.500 verslunum í yfir þrjá- tíu löndum. „Við ætlum að gera ýmis- legt til að halda upp á þennan áfanga, það helsta er auðvitað að hafa opnað Nikitabúðina á Laugavegi nú í haust. Nikitahúsið á Laugaveginum þjónar bæði sem verslun og vinnuaðstaða fyrir starfsfólk fyrirtækisins og að auki er leik- og listagarður á bak við húsið. „Það er fimmtíu fermetra útigallerí í garðin- um þar sem hægt er að halda sýningar og einnig stórt svið þar sem við munum halda tónleika þegar við á í góðu sam- starfi við nágranna.“ Aðspurður segir Rúnar að það hafi alltaf verið ætlunin að Nikita mundi vaxa og dafna með árunum. „Þetta var alltaf planið og við hefðum sjálfsagt ekki náð svona langt ef það hefði ekki verið svo frá upphafi. Velgengnin kemur því kannski ekki á óvart en við erum mjög ánægð með þetta,“ segir Rúnar að lokum. - sm Nikita hannar snjóbretti fyrir K2 FAGNA VELGENGNI Rúnar og Heiða Birgisdóttur ásamt Valdimar Hannessyni stofnuðu Nikita fyrir tíu árum. Fyrirtækið hefur hannað snjóbretti og bindingar fyrir K2. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Á SÚLUNNI Inga Dungal og Hall- dóra Kröyer hafa opnað stúdíó undir líkamsrækt á súlu. Fimmtán súlur eru í stúdíóinu og mun þær meðal annars bjóða upp á súlu- form og súlufitness. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A N TO N

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.