Fréttablaðið - 08.01.2010, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 08.01.2010, Blaðsíða 19
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 Guðrún Ögmundsdóttir, verkefn- isstjóri í menntamálaráðuneytinu, eldar eftir veðri og á veturna er rjúkandi kjötsúpa oft og iðulega á borðum. „Súpan gefur orku í kroppinn og svo dugar hún í að lágmarki tvo daga,“ segir Guð- rún. Hún reynir að gera súpuna eins barnvæna og kostur er. „Mér finnst svo mikilvægt að börn læri að borða kjötsúpu og reyni því að hafa eins lítið gums og ég get enda eru þau ekki alltaf hrifin af því.“ Guðrún sker til að mynda laukana til helminga í stað þess að saxa þá niður og veiðir þá síðan upp úr áður en hún ber súpuna fram enda tilgangurinn aðallega að fá úr þeim kraft. „Þá reyni ég að hafa ekki of mikið í súpunni til að þau fúlsi síður við henni.“ Guð- rún notar einnig haframjöl til að þykkja súpuna en því vandist hún sem barn. Guðrún er mikill matgæðing- ur og var ávallt með uppskrift- ir á heimasíðu sinni þegar hún var þingmaður. „Stundum held ég að þær séu það eina sem fólk saknar eftir að ég hætti á þingi,“ segir hún og hlær. Guðrún hefur þó fundið uppskriftunum nýjan farveg og skrifar reglulega mat- arpistla á Miðjuna sem má skoða á slóðinni www.midjan.is. „Mér finnst gaman að gera tilraunir og nýta gamlar hefðir og grunna og blanda þeim við nýtt.“ Til- raunastarfsemi Guðrúnar nær hámarki í sultugerðinni en hún státar af þónokkrum verðlauna- sultum sem fást í verslunum á borð við Frú Laugu, Búrinu og Melabúðinni undir nafninu Mat- arkveðja frá Guðrúnu Ögmunds. Þetta eru rabarbarapaprikumauk, finnsk ættuð tómatsulta, gul, rauð og græn chilli-sulta og bláberja- lauks-jólasulta. „Ég hef gaman af því að prófa nýjar samsetningar og nota sultur með óhefðbundn- um hætti eins og út í sósur, sýrð- an rjóma og ofan á kjöt og fisk.“ vera@frettabladid.is Eldar barnvæna kjötsúpu Matgæðingurinn Guðrún Ögmundsdóttir eldar kjötsúpu þegar kalt er í veðri og gerir hana þannig úr garði að börnum líki innihaldið enda telur hún mikilvægt að þau læri að borða þennan herramannsmat. Guðrún hefur gaman af því að gera tilraunir í eldhúsinu, nýta gamla grunna og blanda þeim við nýtt. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 1 kg súpukjöt eða sérvalið lambakjöt eftir smekk 1 rófa meðalstór, skorin í bita 5 gulrætur, skornar í bita 2 laukar, skornir til helminga 1 sellerístöng, afar smátt skorin (má sleppa) hvítkál í strimlum (má sleppa) 1 lúka haframjöl ½ bolli hrísgrjón 3 teningar kjötkraftur frá Honig salt og pipar Sjóðið kjötið og laukana í um það bil tuttugu mínútur og fleytið jafn- óðum ofan af það gums sem kemur. Látið vatnið fljóta vel yfir kjötið. Síðan er öllu öðru bætt út í ásamt hafra- mjöli og hrísgrjónum. Látið sjóða í klukku- stund. Veiðið laukana upp úr áður en súpan er borin fram en þeir eru einungis hugsaðir sem kraftur. KJÖTSÚPA GUÐRÚNAR KRISTINN ARNÞÓRSSON ULLARFRÆÐ- INGUR flytur fyrirlestur um ull og ullarframleiðslu á öldinni sem leið í Amtsbókasafninu á Akureyri á laug- ardag klukkan 14. Um leið verður opnuð sýning Iðnaðar- safnsins um ull og ullarframleiðslu á síðustu öld og stendur hún til 31. janúar. 9. janúar - 28. febrúar Tilvalið fyrirárshátíðina! Góð tækifærisgjöf ! Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207 Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is Hinn árvissi 4ra rétta „Allt í steik“ seðill gleður bragðlaukana. Skyldumæting fyrir alla sem unna góðum mat á góðu verði. HUMAR OG SALTFISKKRÓKETTUR með tómatsultu, blönduðu salati og humarmajonesi RJÓMALÖGUÐ SJÁVARRÉTTASÚPA með steiktum tígrisrækjum, rjómatoppi og karrýolíu FISKUR DAGSINS ferskasti hverju sinni, útfærður af matreiðslumönnum Perlunnar (4.990 kr.) PÖNNUSTEIKTUR FASANI með polentu og kóngasveppasósu (5.590 kr.) PRIME RIBS með kartöfluturni, Bearnaisesósu og steinseljurótarmauki (6.590 kr.) NAUTALUND með grænmetismósaík og blönduðum skógarsveppum (7.590 kr.) SÚKKULAÐIFRAUÐ með hindberjahlaupi, ferskum ávöxtum og passionís 1 2 3 4 VELDU MILLI FJÖGURRA AÐALRÉTTA

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.