Fréttablaðið - 08.01.2010, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 08.01.2010, Blaðsíða 8
8 8. janúar 2010 FÖSTUDAGUR Óvissa vegna synjunar forseta Ólafur Ragnar Grímsson, for- seti Íslands, telur áhrif ákvörð- unar hans um að synja Icesave- lögunum staðfestingar hafa verið minni en hann átti von á. Bæði ætti það við um viðbrögð stjórn- valda í Bretlandi og Hollandi og fjármálaheimsins. Hann segir ákvörðunina þá erfiðustu sem hann hefur tekið en hún hefur að hans mati styrkt stöðu Íslands í deilunni. Ólafur segist hafa orðið var við mikinn skilning á málstað Íslend- inga erlendis frá síðustu daga og þar hafi jafnframt komið fram stuðningur við ákvörðun hans. Vitnaði hann þar sérstaklega í leiðara Financial Times. „Þær hrakspár sem komu fram hafa ekki reynst réttar enn sem komið er,“ sagði Ólafur um þær efnahagslegu afleiðingar sem ríkisstjórnin, verkalýðshreyf- ingin, atvinnulífið og fjölmarg- ir sérfræðingar töldu að synjun laganna gæti haft í för með sér. Sagði hann þau ítarlegu gögn sem honum bárust hafa verið „vanga- veltur um hvað myndi gerast færi allt á versta veg“ sem hann hefði ekki getað látið hafa úrslitaáhrif á ákvörðun sína. Um efnahags- legar afleiðingar sagði Ólafur jafnframt að markaðurinn myndi aldrei vega þyngra við ákvörðun- artöku hans heldur en lýðræðið sjálft. Í rökstuðningi sínum fyrir ákvörðuninni um að synja lög- unum vísaði Ólafur í áskoran- ir þingmanna þegar hann sagð- ist telja að meirihluti væri fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu. Um þessi ummæli vildi forsetinn ekki fjalla sérstaklega en eins og kunn- ugt er var tillaga um að málið yrði sett í þjóðaratkvæði felld á Alþingi nokkrum dögum fyrr. Sagði hann þetta aukaatriði þrátt fyrir að forsvarsmenn stjórnar- andstöðunnar lýsi því nú yfir að þjóðaratkvæðagreiðsla sé þeim ekki efst í huga við lausn máls- ins. Ólafur segist ekki hafa verið blekktur; mestu hafi skipt allur sá fjöldi fólks sem hafði komið á framfæri ósk sinni um að hann synjaði lögunum sem hafi ráðið mestu um ákvörðun hans. Úrslit þjóðaratkvæðagreiðsl- unnar telur Ólafur ekki hafa nein áhrif á stöðu hans sem for- seta eða á það hvort ríkisstjórnin situr áfram verði þau felld. Ólafur viðurkenndi að æski- legra hefði verið að ákvörðun hans hefði verið kunn ríkisstjórninni áður en hún var kynnt almenn- ingi. Baðst hann forláts á því en hann hefði ekki viljað kynna for- ystumönnum ríkisstjórnarinnar ákvörðun sína símleiðis, heldur að þau gætu kynnt sér rökstuðning hans í heild. svavar@frettabladid.is Telur ákvörðun sína styrkja stöðu Íslands Ólafur Ragnar Grímsson telur ákvörðun sína um að synja Icesave-lögunum hafa styrkt stöðu þjóðarinnar í málinu. Hann segir að úrslit þjóðaratkvæða- greiðslunnar eigi ekki að hafa áhrif á stöðu hans eða líftíma ríkisstjórnarinnar. Á BESSASTÖÐUM Í GÆR Ólafur Ragnar boðaði til sín fjölmiðlafólk til að gefa þeim kost á að ræða um ákvörðun hans um að synja Icesave-lögunum staðfestingar á þriðjudag. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Neitun forseta Íslands við að stað- festa Icesave-lögin er tilræði við fulltrúalýðræði á Íslandi og yfirlýs- ing um að Ísland ætli sér að yfirgefa umheiminn, segir Uffe Ellemann- Jensen, sem lengi var utanríkis- ráðherra Dana og formaður Ven- stre. Hann skrifar á vef Berlingske Tidende í gær að veruleikaskynið virðist hafa yfirgefið Íslendinga. „Þetta segi ég, sem hef lengi verið Íslandsvinur. Ímyndið ykkur þá hvernig aðrir upplifa þessar aðstæð- ur.“ „Það er útbreidd skoðun að þetta sé allt að kenna nokkrum villingum í viðskiptalífinu; almennir Íslend- ingar eigi ekki að bera ábyrgð á viðskiptum þeirra. Það sjónarmið stenst ekki skoðun,“ spyr Uffe Ell- emann og segir síðan: „Í siðuðu samfélagi ber fólk sameigin- lega ábyrgð á aðgerðum ríkis- valdsins. Og það er íslenska ríkið sem ber ábyrgð á bankaeftirliti sem greinilega brást.“ Danska dag- blaðið Jyllands- posten skrifar einnig harðorðan leið- ara í garð Íslendinga í gær og segir ákvörðun forseta Íslands dæmi um flótta frá pólitískri ábyrgð. Íslend- ingum hefði verið nær að koma í veg fyrir lánveitingar bankanna til að kosta „fráleita herferð íslenskra draumóramanna á hendur evrópsku efnahagslífi“. Uffe Ellemann-Jensen segist vera Íslandsvinur: Ísland að yfirgefa umheiminn? UFFE ELLEMANN-JENSEN „Það vinnst ekkert við það að setja Íslendinga í skuldafangelsi,“ segir í leiðara breska viðskiptablaðsins Financial Times í gær. Lærdómurinn af máli Lands- bankans ætti að vera sá að Evr- ópa sameinist um að endurskoða lög og bæta bankarekstur í álf- unni. Líklegast sé að þau lög, sem forseti Íslands neitaði að staðfesta, verði felld í þjóðaratkvæðagreiðslu. „Kannski kennir það leiðtogum Hollendinga og Breta að það skil- ar takmörkuðum árangri að beita harðræði. Sá lærdómur mun hins vegar koma of seint til þess að það gagnist nokkrum.“ Breska dagblaðið The Independ- ent fjallar einnig um Ice save-deil- una í leiðara undir fyrirsögninni: „Engan yfirgang gegn Íslending- um“. Blaðið átelur framferði breskra stjórnvalda gagnvart Íslendingum á öllum stigum Ice save-deilunnar. Breska ríkisstjórnin hafi gert illt verra með framgöngu sinni og með því að koma fram við hjálparvana nágranna í Evrópu eins og útlaga- ríki. Hún skammist sín fyrir að hafa ekki staðið vaktina og brugð- ist við hættunni áður en íslensku bankarnir hrundu. Sú skömm skýri hörkuna í yfirlýsingum Breta eftir nýjustu tíðindi frá Íslandi. Leiðarar Financial Times og Independent: Ekki setja Ísland í skuldafangelsi Breska stórblaðið The Econom- ist fjallar um Icesave-deiluna í tveimur greinum á síðum blaðs- ins í gær. Greinarhöfundar fjalla þar um ákvörðun forseta Íslands og þjóðaratkvæðagreiðsluna sem fram undan er. Í annarri greininni er saga deil- unnar rakin en jafnframt tekið fram að lagaleg skuldbinding Íslendinga til að greiða Bretum og Hollendingum sé langt frá því að vera augljós. Þar er því sýnd- ur skilningur að íslensku þjóðinni ofbjóði að þurfa að greiða þær upphæðir sem um ræðir; og séu gríðarlegar í þjóðhagslegu sam- hengi. Eins er fjallað um ákvörðun Ólafs Ragnars um að synja lög- unum staðfestingar og sagt að sú ákvörðun geti auðveldlega sprung- ið framan í forsetann og almenn- ingur snúist gegn honum. Þar er talið víst að lögin verði felld í þjóðaratkvæðagreiðslu og þá séu dagar ríkisstjórnarinnar taldir. Þess utan hafi ákvörðun forset- ans lagt efnahagsáætlun Íslands í rúst. - shá The Economist fjallar um Icesave-deiluna: Útlitið kolbikasvart

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.