Fréttablaðið - 08.01.2010, Blaðsíða 41
FÖSTUDAGUR 8. janúar 2010 29
Írski leikarinn Colin Farrell heim-
sótti langveik börn á sjúkrahúsi í
heimalandi sínu fyrir jólin. Þetta
er ekki í fyrsta sinn sem Farrell
gerir slíkt, því hann hefur verið
reglulegur gestur á sjúkrahús-
inu Our Lady‘s Hospital í Cruml-
in undanfarin ár. Farrell er einn-
ig ötull talsmaður fyrir bættum
hagsmunum fatlaðra víða um
heim og hefur verið það síðan
ungur sonur hans, James, var
greindur með Angelman Syn-
drome.
Starfsmaður á sjúkrahúsinu í
Crumlin segir börnin mjög hænd
að Farrell og eyðir hann dágóð-
um tíma með þeim í hvert sinn
sem hann heimsækir spítalann.
„Hann kom með tölvuleiki handa
börnunum og lék við þau. Hann
er mjög einlægur og er vinsæll
bæði meðal barnanna og starfs-
manna sjúkrahússins,“ var haft
eftir starfsmanninum.
Colin er kannski ekki þekktur
fyrir slíka hegðun en hann var
tíður gestur á forsíðum slúður-
blaðanna vegna drykkjuláta og
sambands síns við fjölmargar
frægar konur. Hann virðist hins
vegar hafa tekið sig allmikið á
eftir að hann varð pabbi og hefur
raunar lýst því yfir að sonur hans
hafi breytt sínum lífsviðhorfum
og lífstíl.
Með gott hjarta
GÓÐHJARTAÐUR Colin Farrell heimsótti
langveik börn um jólin.
Rokkekkjan Courtney Love
ætlar í tónleikaferð um Evrópu
undir merkjum hljómsveitarinn-
ar Hole, þrátt fyrir að enginn af
núverandi hljóðfæraleikunum
hennar hafi nokkru sinni verið
í sveitinni. Fyrrum gítarleikari
Hole, Eric Erlandson, hefur áður
talað um að Love hafi ekki leyfi
til að nota nafnið án þess að hann
komi við sögu. Love lætur það
ekki aftra sér og ætlar greinilega
að nota Hole-nafnið til að kynna
sína nýjustu sólóplötu, Nobody´s
Daughter, sem átti upphaflega að
koma út árið 2007.
Love notar
Hole-nafnið
COURTNEY LOVE Ekkja Kurts Cobain úr
Nirvana er á leiðinni í tónleikaferð um
Evrópu.
Rapparinn Eminem var sölu-
hæsti tónlistarmaður síðasta ára-
tugar í Bandaríkjunum með rúm-
lega 32 milljón eintaka plötusölu.
Í öðru sæti lentu Bítlarnir með
rúmar þrjátíu milljónir. Þeir eiga
aftur á móti söluhæstu plötu ára-
tugarins, eða safnplötuna 1, sem
seldist í rúmum ellefu milljónum
eintaka. Eminem á tvær plötur
á topp fimm, eða The Marshall
Mathers LP sem seldist í rúmum
tíu milljónum eintaka og The
Eminem Show sem seldist aðeins
minna. Í þriðja og fjórða sæti
yfir söluhæstu tónlistarmenn-
ina voru sveitasöngvararnir Tim
McGraw og Toby Keith. Popp-
prinsessan Britney Spears náði
fimmta sætinu.
Söluhæstur á áratugnum
EMINEM Rapparinn Eminem var sölu-
hæsti tónlistarmaður síðasta áratugar í
Bandaríkjunum.
Fyrsta fræðslukvöld Útón á árinu
verður haldið á þriðjudagskvöld
í Norræna húsinu. Farið verð-
ur yfir alla helstu sjóði er standa
tónlistarfólki til boða og hvernig
þeir starfa. Fulltrúar nokkurra
sjóða, bæði úr einkageiranum og
hinum opinbera, halda erindi og
fjalla um hvernig starfi þeirra er
háttað. Þeirra á meðal eru Þuríð-
ur Kristjánsdóttir frá Norræna
menningarsjóðnum, Rósa Þor-
steinsdóttir frá Menningaráætl-
un Evrópusambandsins og Eldar
Ástþórsson frá tónlistarsjóðnum
Kraumi. Hægt er að skrá sig á
námskeiðið hjá kamilla@iceland-
music.is eða í síma 511 4000.
Útón heldur
fræðslukvöld
ELDAR ÁSTÞÓRSSON Eldar Ástþórsson
hjá tónlistarsjóðnum Kraumi heldur
erindi á fræðslukvöldi Útón.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR