Fréttablaðið - 08.01.2010, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 08.01.2010, Blaðsíða 38
26 8. janúar 2010 FÖSTUDAGUR folk@frettabladid.is Þeim Íslendingum sem notfæra sér Twitter-skila- boðavefinn fjölgar með degi hverjum. Almannatengill- inn Andrés Jónsson er einn fyrsti Twitter-notandinn hér á landi og spáir miklum uppgangi í íþróttinni. Andrés giskar á að um þrjú þúsund Twitter-notendur séu hér á landi. Enn sem komið er nota langflest- ir Íslendinga Facebook en hann telur að Twitter eigi eftir að sækja í sig veðrið. „Það hefur ekki orðið sprenging í Twitter-notkun hér á landi, að hluta til af því að Face- book hefur orðið svo ógurlega vin- sælt,“ segir Andrés. „Þeir sem nota Twitter mikið á Íslandi eru tölvu- áhugamenn, áhugamenn um þjóð- mál, hönnuðir og tónlistarmenn. Það eru ákveðnar stéttir sem nota þetta mjög mikið.“ Erlendir stjórnmálamenn hafa verið duglegir við að nota Twitt- er til að koma sínum hugleiðingum á framfæri í knöppu sms-formi, þar á meðal Barack Obama, Gor- don Brown og Jens Stoltenberg. Íslenskir stjórnmálamenn hafa verið lengur að átta sig og eru fæstir farnir að nota Twitter. Áhuginn virðist þó vera til staðar, enda verða sveitastjórnarkosning- ar haldnar í vor auk þess einhverj- ir vilja vafalítið koma skoðunum sínum um Icesave á framfæri þessa dagana. „Það eru nokkrir búnir að stofna reikning. Þeir eru byrjaðir að átta sig á þessu,“ segir Andrés, sem hefur gert töluvert að því að kenna stjórnmálamönnum og fólki úr stjórnsýslunni á Twitt- er. „Sumir hafa sagt að í fyrsta sinn sem ráðherra setur skúbb á Twitter þá muni allir blaðamenn vera komnir á Twitter daginn eftir. Þannig gerist sprengingin með stjórnmálamennina.“ Andrés lýsir Twitter sem þró- aðri útgáfu af MSN þar sem menn eru sínir eigin herrar. „Twitter er eins og gagnlegt MSN. Þótt MSN geti verið gaman er það tímaþjóf- ur og truflandi í vinnunni en með Twitter kemur maður upplýsing- um beint til þeirra sem hafa áhuga á að fá þau,“ segir hann og bætir við að Twitter hafi vaxið mun hraðar en Facebook og Myspace á sínum tíma og framtíðin sé því björt. Á meðal nýrra íslenskra Twitt- er-notenda eru Jónsi í Sigur Rós, handboltakappinn Logi Geirsson og Mugison. Aðrir sem notfæra sér þjónustuna eru ritstjórinn fyrrverandi Jónas Kristjánsson, söngkonurnar Hafdís Huld og Elíza Newman, poppararnir Ólaf- ur Arnalds og Einar Örn Bene- diktsson og hagfræðingurinn Jón Steinsson. Hljómsveitirnar Dikta og Ourlives eru einnig á meðal notenda. Feta þessir „Twittarar“ í fótpor þekktra erlendra stjarna á borð við Jim Carrey, Ben Still- er, Matt Lucas, Lily Allen og John Cleese. freyr@frettabladid.is Söngkonan Beyoncé hefur verið gagnrýnd fyrir að þiggja um 250 milljónir króna fyrir að koma fram í gamlárspartíi sem Hannibal Gaddafi, sonur Líbíu- leiðtogans umdeilda, Muammar Gaddafi, hélt. Partíið var haldið á eyjunni St. Bart í Karíbahaf- inu og söng Beyoncé í klukku- tíma fyrir framan Gaddafi og stjörnugesti á borð við Lindsay Lohan, Usher, og eiginmann sinn Jay-Z. Söng fyrir son Gaddafi Grínistinn Russell Brand og söng- konan Katy Perry hafa staðfest orðróm um trúlofun þeirra. Parið byrjaði saman í september og töldu flestir að sambandið myndi ekki endast nema í nokkrar vikur þar sem Brand er þekktur kvenna- maður. Brand bauð Perry til Ind- lands yfir hátíðarnar þar sem þau skoðuðu meðal annars Taj Mahal. Tímaritið The Sun flutti fyrst allra fréttirnar af trúlofuninni og stuttu síðar staðfesti Brand orðróminn. Perry trúlofuð Brand ÁSTFANGINN MAÐUR Russell Brand hefur beðið Katy Perry um að giftast sér. Spjallþáttastjórnandinn Jonat- han Ross ætlar að hætta hjá BBC eftir þrettán ára starf. Samning- ur hans við BBC rennur út í júlí og hefur hann ákveðið að endur- nýja hann ekki. Hann segir að peningar hafi ekkert að gera með ákvörðun sína. Auk þess að stjórna vinsælum kvöldþætti á föstudögum, stjórn- ar hann útvarps- og kvikmynda- þætti. „Hjá BBC hef ég unnið með yndislegu og hæfileikaríku fólki og tekið viðtöl við marg- ar af stærstu stjörnum heims- ins. Ég vil þakka BBC fyrir þessu reynslu.“ Ross hættir á BBC JONATHAN ROSS Spjallþáttastjórnandinn vinsæli hættir hjá BBC í júlí. > KVÆNTUR MAÐUR Leikarinn Vince Vaughn giftist unnustu sinni, fast- eignasalanum Kyla Weber, við látlausa at- höfn á laugardaginn var. Þetta er í fyrsta sinn sem Vaugh gengur í hið heilaga, en hann átti áður í sambandi við leikkonuna Jennifer Aniston. „Við hvetjum til jákvæðni, samheldni þingmanna og allrar þjóðarinnar,“ segir Ágúst Guðbjartsson, sem ásamt konu sinni, Agnesi Reynisdóttur, leggur nú sitt á vogarskálar Nýja Íslands með Facebook-síðu, undir- skriftasöfnun og bloggsíðu á bloggheimar.is/jakvaett – allt í anda jákvæðni og bjartsýni. Þau safna und- irskriftum til 26. janúar og ætla að afhenda þær Alþingi þá. Hjónin eru að sögn Ágústs bara venjulegt fólk í Hafnarfirði sem vill aftur fá virðingu fyrir Alþingi Íslendinga. Þau tala örugglega fyrir munn flestra. „Við viljum ein- ungis minna alþingismenn á, burtséð hvaða flokki þeir til- heyra, að vera málefnalegir og lausnamiðaðir í umræðum sínum, og gæta þess að fest- ast ekki í neikvæðni og nið- urrifi. Þeir eru að kalla hver annan landráðamann og fleira í þeim dúr og eru bara engan veginn nógu góð fyrirmynd. Ég held að vondi mórallinn á Alþingi smiti út frá sér. Fólk á nú bara að brosa meira til hvað annars. Það sé ekki fullt af böl móði. Það er ekki allt að fara til fjandans. Við höfum lent í krísum í gegnum tíð- ina og alltaf komist í gegnum þær.“ Ágúst var sölumaður í byggingarvöruverslun áður en hann missti vinnuna í desember. „Ég neita að leggj- ast í þunglyndi. Það kemur ekkert út úr því. Fólk hugsar skýrar ef það er jákvætt, en þegar það er reitt. Við hjón- in eigum von á fyrsta barninu okkar í næstu viku og viljum bara að drengurinn okkar komi inn í samfélag þar sem gott er að ala börn upp í.“ - drg Hafnfirsk hjón vilja meiri jákvæðni VILJA BETRA SAMFÉLAG Ágúst og Agnes hvetja Alþingi til að koma sér upp úr neikvæðninni og niðurrifinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Útsalan er hafin Laugavegi 7 101 Reykjavík Sími 561 6262 www.kisan.is Heimsþekkt vörumerki eins og Sonia Rykiel, Bonpoint, Isabel Marant , Orla Kiely og fleiri ... Opnunartími: mán - lau 11:00 - 18:00 TWITTER SÆKIR Í SIG VEÐRIÐ TWITTER-FÓLK Andrés Magnússon er einn af helstu Twitter-notendum Íslands. Jónsi í Sigur Rós er á meðal nýrra notenda ásamt Loga Geirssyni, Hafdísi Huld, Einari Erni og Barack Obama.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.