Fréttablaðið - 08.01.2010, Blaðsíða 6
6 8. janúar 2010 FÖSTUDAGUR
lyf?
Kynntu þér þinn rétt á lfi.is
Þarft þú að nota lyf að staðaldri?
Frumtök • Hjartaheill • Beinvernd • Lyfjafræðingafélag Íslands
v
ÚTSALA
OPIÐ UM HELG
INA
Suðurlandsbraut 16 108 Reykjavík
Sími 5880500
250 útsöluvörur á rafha.is
144 cm hár frystiskápur
með 5 skúffum + 1 hólf með
loki.
A orkuflokkur
208 ltr brúttó/183 ltr nettó
Hraðfrystingog hitastillir
HxBxD: 144x54,2x60 cm
Verð áður kr 84.900
Verð nú 25.000
59.900
ÞÚ SPARAR
144
CM
SVEITARFÉLÖG Fjárhagsáætlun,
sem bæjarstjórn Reykjanesbæj-
ar samþykkti á þriðjudag, hefur
það að forsendu að 2.700-2.900
ný störf skapist í sveitarfélaginu
vegna ýmissa nýframkvæmda á
þessu ári, svo sem álver og höfn
í Helguvík, virkjanir og gagnaver
á Keflavíkurflugvelli.
Nýframkvæmdirnar auki
útsvarstekjur sveitarfélagsins
um 680 milljónir króna, eða um
16,6 prósent frá síðasta ári. Bæj-
arsjóður skili þannig 47,2 millj-
óna króna tekjuafgangi.
Áætlunin gerir ráð fyrir því að
launakostnaður bæjarins hækki
um þrjú prósent en rekstrargjöld
lækki um fimm prósent milli
ára, úr 8,3 milljörðum króna í 7,7
milljarða á þessu ári.
Íbúar Reykjanesbæjar eru
rúmlega 14.000 talsins og fækk-
aði um 118 frá 2008 til 2009. Nú
er gert ráð fyrir að þeim fjölgi í
ár um 280 manns.
„Þar sem tafir hafa orðið á
mörgum stórum verkefnum,
verða tekjur af þeim lægri á
þessu ári, en vænta mátti. Engu
síður skapa þau stórbætta fjár-
hagsstöðu bæjarins á þessu ári,“
segir í bókun meirihluta sjálf-
stæðismanna í bæjarstjórninni.
Í bókun minnihlutans segir
að áætlun meirihlutans byggi á
væntingum um tekjur, sem alls
ekki eru í hendi og á niðurskurði
sem eigi sér vart hliðstæðu.
„Fræðslusviðið sem heldur
utan um leik- og grunnskólastarf
þarf að skera niður um 355 millj-
ónir á árinu og það er rúmlega
tvöfaldur sá niðurskurður sem
Reykvíkingum er ætlað að taka
á sig,“ segir minnihlutinn. Nið-
urskurður á fræðslusviði sé 10,7
prósent að teknu tilliti til fram-
reikninga, fjölskyldu- og félags-
svið skeri niður um 14,5 prósent,
íþrótta- og tómstundasvið um
14,4 prósent, menningarsvið um
14,7 prósent og umhverfis- og
skipulagssvið um 22,8 prósent.
„Við skulum vona að niðurstaða
þessarar áætlunar gangi eftir en
verum þess jafnframt viðbúin
að það muni skeika um hundruð
milljóna eða jafnvel milljarða,“
segir minnihlutinn.
Árni Sigfússon bæjarstjóri
svaraði með annarri bókun þar
sem segir að þrátt fyrir vantrú
Samfylkingar munu sjálfstæð-
ismenn halda ótrauðir áfram að
koma álversverkefninu í Helgu-
vík fram og trúa þar af leiðandi
á eðlilega tekjuaukningu sem af
því hlýst.
peturg@frettabladid.is
Útsvarstekjur hækki
um 16,6 prósent
Í fjárhagsáætlun fyrir þetta ár gengur meirihluti bæjarstjórnar Reykjaness út
frá því að 2.700 til 2.900 störf skapist vegna nýframkvæmda. Tekjurnar eru alls
ekki í hendi og niðurskurðurinn á sér vart hliðstæðu, segir minnihlutinn.
KEFLAVÍKURGANGA Suðurnesjamenn fóru nýlega í svokallaða Keflavíkurgöngu til
að berjast fyrir nýjum stórframkvæmdum í atvinnumálum. Trúin á að þær verði að
veruleika setur mark sitt á fjárhagsáætlun sveitarfélagsins á þessu ári.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
VIÐSKIPTI Líklegt er að bræðurnir Ágúst og Lýður
Guðmundssynir, kenndir við Bakkavör, missi hlut
sinn í Existu á næstu dögum en nauðasamning-
ar félagsins verða lagðir fram í næsta mánuði. Þeir
kveða á um yfirtöku kröfuhafa á Existu og brott-
rekstri forstjóra félagsins.
Líklegt er að Exista verði leyst upp í núverandi
mynd auk þess sem eignarhlutur bræðranna í Bakka-
vör verði tekinn af þeim. Þeir muni eftir sem áður
stýra félaginu með það fyrir augum að tryggja
heimtur kröfuhafa. Slíkt þykir beggja hagur enda
kann svo að fara að bræðurnir eignist hlut í Bakka-
vör á nýjan leik eftir nokkur ár að lokinni greiðslu
skulda.
Exista var stærsti hluthafi Kaupþings áður en
bankinn fór í þrot og átti stóra hluti í norrænu fjár-
mála- og tryggingafyrirtækjunum Sampo í Finnlandi
og Storebrand í Noregi. Viðskiptablaðið segir í gær
að semja þurfi við lánardrottna Bakkavarar áður
en til endurskipulagningar Existu kemur en sömu
kröfuhafar eru á bak við bæði félögin. Þá þurfa nið-
urstöður að liggja fyrir um gjaldmiðlaskiptasamn-
inga Existu við skilanefndir Glitnis og Kaupþings.
Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að Exista
verði á meðal stærstu kröfuhafa í bú Kaupþings. - jab
BAKKAVARARBRÆÐUR Lýður og Ágúst Guðmundssynir geta
líklega eignast Bakkavör að einhverju leyti þegar þeir hafa
greitt skuldir eftir nokkur ár. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Kröfuhafar Bakkavarar og Existu taka bæði félög yfir í skuldir á næstu vikum:
Bræðurnir eru að missa tökin
STJÓRNMÁL Kínverska sendiráðið hefur fest kaup
á stórhýsi á Skúlagötu 51 og hyggst flytja þang-
að starfsemi sína. Um er að ræða 4.182 fermetra
nýbyggingu beint neðan við lögreglustöðina á
Hverfisgötu. Það var félagið 2007 ehf. sem seldi
Kínverjum húsið í desember.
Kínverjar hafa áður sóst eftir að fá byggingarlóð
í Reykjavík fyrir nýja sendiráðsbyggingu en ekki
hefur orðið af því. Fréttablaðið sagði frá því 12. júní
2007 að þeir fengu liðsinni utanríkisráðuneytisins
sem talaði máli þeirra við borgaryfirvöld. Kom þá
fram að Kínverjarnir teldu húsnæði sitt alltof lítið
og vildu fá fjögur til fimm þúsund fermetra lóð í
miðborginni. Af öryggisástæðum þyrfti sú lóð að
vera fjarri bensínstöðvum og háhýsum.
Þá kom einnig fram í Fréttablaðinu árið 2007 að
til stæði að byggja hið nýja hús í kínverskum stíl í
samráði við íslenska hönnuði. Sendiráð Kínverja er
nú til húsa í 725 fermetra byggingu við Víðimel 29
auk þess sem Viðskiptaskrifstofa Kína á 1.018 fer-
metra í Garðastræti 41. - gar
Kínverjar hættir við að reisa nýbyggingu í kínverskum stíl og flytja á Skúlagötu:
Kaupa stórhýsi fyrir sendiráð
SKÚLAGATA 51 Nýbyggingin þar sem Sjóklæðagerðin var áður
á nú að hýsa sendiráð Kínverja á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
VIÐSKIPTI Virði krafna í bú gamla
Landsbankans hefur hækkað um
tuttugu prósent frá því á þriðju-
dag eftir að forsetinn neitaði að
staðfesta Icesave-lögin. Fjárfest-
ar höfðu vænst þess að fá á milli
fjögur til 4,75 prósent upp í kröf-
ur þegar kröfulýsingarfrestur í
þrotabú bankans rann út 30. okt-
óber. Í gær var krafan, sem end-
urspeglar væntingar um heimtur,
komin í 5,75 prósent og hafa fjár-
festar aldrei vænst þess að fá jafn
mikið úr búi gamla bankans.
Innan bankageirans segja mis-
skilnings gæta í röðum fjár-
festa, sem margir eru erlendir,
enda eygi þeir nú von um að ríkið
standi ekki við Icesave-skuld-
bindingarnar. Við það falla Icesa-
ve-kröfur í flokk með almennum
kröfum og fá þeir því meira fyrir
sinn snúð. - jab
Kröfuhafar misskilja málið:
Eygja von um
betri heimtur
Tók forseti Íslands rétta ákvörð-
un í Icesave-málinu?
Já 64%
Nei 36%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur þú séð kakkalakka á
Íslandi?
Segðu skoðun þína á visir.is.
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Suður-
nesjum handtók fyrr í vikunni
meintan samstarfsmann rúm-
ensks manns, sem tekinn var með
hálft kíló af kókaíni við komuna
hingað til lands 4. desember.
Sá rúmenski, maður á þrítugs-
aldri, var með efnin innvort-
is en skilaði þeim fljótlega af
sér. Hann var að koma hingað til
lands frá Kaupmannahöfn. Hann
situr í gæsluvarðhaldi til 11. jan-
úar. Samstarfsaðilinn meinti er
íslenskur karlmaður á þrítugs-
aldri. Hann var úrskurðaður
í gæsluvarðhald í fyrradag til
dagsins í dag, grunaður um aðild
að smyglinu. - jss
Hálft kíló af kókaíni:
Samstarfsmað-
ur smyglara inn
Hestamenn fjarlægi hús
Yfirvöld í Hafnarfirði gáfu í nóvember
eigendum bygginga sem reistar voru
í óleyfi og utan skipulags á athafna-
svæði hestamanna við Kleifarvatn
fjögurra vikna frest til að útskýra mál
sitt. Engin svör hafa borist.
HAFNARFJÖRÐUR
LANDBÚNAÐUR
Mikilvægi garðyrkju kannað
Skýrsla um þjóðhagslegt mikilvægi
garðyrkjunnar verður gerð opinber
í lok febrúar. Samband garðyrkju-
bænda stendur fyrir útgáfunni.
Glitnir áfrýjaði dómi
Áfrýjað hefur verið til Hæstaréttar
úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur
frá því í desember um að skilanefnd
Glitnis beri að afhenda Vilhjálmi
Bjarnasyni fjárfesti gögn sem varða
lánveitingar Glitnis til eignarhaldsfé-
lagsins Fons.
DÓMSMÁL
KJÖRKASSINN