Fréttablaðið - 08.01.2010, Blaðsíða 4
4 8. janúar 2010 FÖSTUDAGUR
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
8°
-2°
-3°
-3°
-1°
-4°
-4°
-4°
-4°
20°
1°
8°
1°
13°
-6°
-2°
16°
-6°
Á MORGUN
Strekkingur V-lands,
lægir síðdegis.
SUNNUDAGUR
5-13 m/s, hvassast
á Vestfjörðum.
5
4
4
3
1
-1
0
-6
2
0
-6
7
6
8
8
7
5
6
5
3
3
6
6
5
4
2
4
6
5
4
-2
3
HELGARVEÐRIÐ
Það bætir í vind og
vætu vestast í kvöld
og á morgun verður
strekkingur framan
af degi og rigning
um allt vestanvert
landið. Á sunnu-
dag verður heldur
skaplegra veður og
styttir víðast upp.
Austan til verður víða
bjart með köfl um og
hægari vindur. Hitinn
um helgina verður
á bilinu 2-7 stig en í
kringum frostmark
austanlands.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
BANDARÍKIN, AP Ríkisstjórn Baracks
Obama í Bandaríkjunum býr sig nú
undir eina tilraunina enn til þess
að koma friðarviðræðum Ísraela og
Palestínumanna af stað.
Fundir háttsettra ráðamanna í
Washington og nokkrum höfuðborg-
um Evrópu í bæði þessari viku og
næstu þjóna því hlutverki að kanna
möguleikana á frekari viðræðum.
Meðal annars munu fulltrúar frá
Egyptalandi og Jórdaníu koma til
viðræðna í Washington.
Fyrsti fundurinn í þessari lotu
var þó í Katar á mánudag þegar
Hillary Clinton, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, hitti Sheikh
Hamad bin Jassim Jabr Al-Thani,
forsætis- og utanríkisráðherra
þess lands.
Katar er eitt þeirra arabaríkja
sem Bandaríkin vilja að styðji við-
ræðurnar.
Tilraunir Baracks Obama til þess
að þoka friðarferlinu áfram í fyrra,
á fyrsta ári sínu í embætti, hófust af
krafti þegar hann fékk þaulreyndan
sáttasemjara, George Mitchell, til
að taka að sér að vera sérlegur full-
trúi sinn í Mið-Austurlöndum.
Þær tilraunir fóru þó fljótlega
út um þúfur, enda blóðugri innrás
Ísraela á Gasaströnd nýlokið og ný
stjórn tekin við völdum í Ísrael sem
virðist enn tregari en fyrri stjórnir
til samninga. - gb
Bandaríkjastjórn undirbýr enn eina tilraun til að koma friðarferli af stað:
Reynt að blása í glæðurnar
CLINTON Í KATAR Fundur utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna með Sheikh
Hamad bin Jassim Jabr Al-Thani, forsæt-
is- og utanríkisráðherra Katar.
NORDICPHOTOS/AFP
STJÓRNMÁL Gunnsteinn Sigurðs-
son, bæjarstjóri í Kópavogi,
ætlar ekki að gefa kost á sér í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
í bænum fyrir
komandi sveitar-
stjórnarkosning-
ar. Gunnsteinn
tilkynnti um
þetta í gær.
Ástæðuna
segir hann vera
óviðunandi
togstreitu og
óró leika í röðum
sjálfstæðis-
manna í Kópavogi sem hafi verið
viðvarandi síðan síðasta sumar.
Ástandið torveldi allt starf og
valdi flokkadráttum. „Ég get ekki
hugsað mér að taka þátt í próf-
kjöri flokksins við þessar aðstæð-
ur“, segir Gunnsteinn í yfirlýs-
ingu. Samstarfið í bæjarstjórn
hafi þó gengið vel. - sh
Bæjarstjóri Kópavogs hættir:
Gunnsteinn fer
ekki í framboð
GUNNSTEINN
SIGURÐSSON
BANDARÍKIN, AP Barack Obama
Bandaríkjaforseti leggur hart
að flokksfélögum sínum bæði í
öldunga- og fulltrúadeild Banda-
ríkjaþings að samþykkja sem
allra fyrst endanlega útgáfu heil-
brigðisfrumvarpsins, sem báðar
deildirnar samþykktu hvor í sínu
lagi fyrir jól.
Á þriðjudaginn féllust leiðtogar
demókrata í báðum þingdeildum
á að hraða afgreiðslu málsins.
Fulltrúadeildin fái það verkefni
að semja sameiginlega útgáfu
deildanna í staðinn fyrir að form-
leg nefnd beggja deilda þurfi að
leysa úr því sem á milli ber.
- gb
Obama ýtir á þingið:
Vill heilbrigðis-
lög sem fyrst
VIÐSKIPTI Björgólfur Guðmunds-
son, fyrrverandi formaður
bankaráðs Landsbankans, og
sonur hans, Björgólfur Thor, sem
ásamt föður sínum var aðaleig-
andi Landsbankans, hafa ekki
verið kallaðir fyrir rannsóknar-
nefnd Alþingis. Stöð 2 hefur fjall-
að um þetta.
Bankaráðsmaðurinn Kjartan
Gunnarsson, sem jafnframt var
formaður endurskoðunarnefndar
bankans, hefur ekki heldur komið
fyrir nefndina, frekar en hinir
nefndarmennirnir tveir; Þorgeir
Baldursson og Andri Sveinsson.
Endurskoðunarnefndinni bar
samkvæmt lögum að ganga úr
skugga um að nægjanlegt eftir-
lit væri með Icesave og öðrum
rekstri bankans. - sh
Rannsóknarnefnd Alþingis:
Björgólfsfeðgar
ekki yfirheyrðir
VIÐSKIPTI Framhjáhald banda-
ríska kylfingsins Tigers Woods
hefur skilið meira eftir sig en
tætta fjölskyldu
og í kringum
tug hjákvenna.
Nýleg könnun
sem birt var í
Bandaríkjunum
í síðustu viku
bendir til að
hluthafar átta
fyrirtækja sem
gert höfðu aug-
lýsingasamning
við snillinginn með kylfuna hafa
tapað samtals tólf milljörðum dala,
jafnvirði 1.500 milljarða íslenskra
króna, á gengisfalli hlutabréfa í
fyrirtækjum sem honum tengdust.
Netmiðillinn The Street hefur
upp úr könnuninni, sem stjórnun-
arskólinn UC Davis í Kaliforníu-
ríki gerði, að gengi hlutabréfa fyr-
irtækjanna hafi almennt lækkað
um 2,3 prósent eftir að upp komst
um framhjáhald golfsnillingsins.
- jab
Framhjáhald Tigers Woods:
Hluthafar tapa
milljörðum
TIGER WOODS
DÓMSMÁL Maður á þrítugsaldri,
Birkir Arnar Jónsson, hefur verið
ákærður af ríkissaksóknara fyrir
tilraun til manndráps.
Honum er gefið að sök að hafa
í nóvember 2009 farið grímu-
klæddur og vopnaður hlaðinni
haglabyssu að heimili manns að
Þverárseli í Reykjavík. Þegar
húsráðandi opnaði rak hann
byssuhlaupið í enni hans og skaut
fimm skotum úr haglabyssunni.
Tvö skotanna hæfðu hurðina en
þrjú fóru inn í íbúðina í gegnum
rúðu við útidyrnar. Húsráðandinn
hlaut hringlaga sár á enni sem
sauma þurfti með átta sporum.
Húsráðandi krefst miskabóta
að fjárhæð 900.000 krónur. - jss
Skaut að manni:
Tilraun til
manndráps
KÖNNUN Stuðningur við Vinstri
græn eykst verulega samkvæmt
nýrri skoðanakönnun Frétta-
blaðsins. Fylgi við Samfylking-
una minnkar, en stjórnarflokk-
arnir myndu halda meirihluta
yrðu niðurstöður kosninga í
samræmi við útkomuna í könn-
uninni.
Stjórnarflokkarnir mælast
með stuðning 53,2 prósenta kjós-
enda samkvæmt könnuninni.
Flokkarnir fengju 34 þingmenn
kjörna samkvæmt könnuninni,
jafn marga og þeir eru með í dag,
en tveir þingmenn myndu færast
frá Samfylkingunni til Vinstri
grænna yrðu þetta niðurstöður
þingkosninga.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist
sem fyrr stærsti flokkurinn, og
fengi atkvæði 31,1 prósents kjós-
enda væru niðurstöður kosninga
í samræmi við könnun Frétta-
blaðsins. Flokkurinn fékk 23,7
prósenta fylgi í síðustu þingkosn-
ingum og 16 þingmenn, en fengi
20 þingmenn samkvæmt könnun-
inni.
Í síðustu skoðanakönnun
Fréttablaðsins, sem gerð var 15.
október síðastliðinn, mældist
Sjálfstæðisflokkurinn með 34,8
prósenta fylgi. Stuðningur við
flokkinn hefur því minnkað um
3,7 prósentustig milli kannana.
Samfylkingin tapar um tveimur
prósentustigum frá síðustu könn-
un. Flokkurinn mælist nú með
stuðning 28,7 prósenta kjósenda,
en fékk 29,8 prósent atkvæða í
þingkosningum síðasta vor.
Samfylkingin er með 20 þing-
menn í dag, en fengi 18 þingmenn
samkvæmt könnun Fréttablaðs-
ins. Fylgi flokksins mældist 29,8
prósent í könnun blaðsins í okt-
óber.
Vinstri græn bæta við sig 5,4
prósentustiga fylgi og fengi 24,6
prósent atkvæða ef kosið yrði
nú. Flokkurinn fékk 21,7 prósent
atkvæða í síðustu kosningum, og
er því umtalsverð yfir kjörfylgi.
Í síðustu skoðanakönnun
Fréttablaðsins mældust Vinstri
græn með 19,2 prósenta fylgi, og
bæta sig því verulega milli kann-
ana, eða um rúman fjórðung.
Vinstri græn eru nú með 14
þingmenn, en bættu við sig tveim-
ur yrðu niðurstöður kosninga í
takt við nýja könnun Fréttablaðs-
ins.
Framsóknarflokkurinn stend-
ur því sem næst í stað frá síð-
ustu könnun. Flokkurinn mælist
með stuðning 13,7 prósenta kjós-
enda, en fékk 14,8 prósent í síð-
ustu þingkosningum.
Í síðustu könnun Fréttablaðs-
ins mældist flokkurinn með 14,1
prósents fylgi. Framsóknarflokk-
urinn er með níu þingmenn í dag
og myndi halda þeim öllum sam-
kvæmt niðurstöðum könnunar-
innar.
Hvorki Borgarahreyfingin né
klofningsflokkur hennar, Hreyf-
ingin, myndu koma manni á þing
miðað við könnunina. Borgara-
hreyfingin mælist með stuðning
0,4 prósenta kjósenda, en fékk 7,2
prósenta fylgi í kosningum.
Hreyfingin nýtur stuðnings 1,6
prósenta aðspurðra í könnuninni.
Það er raunar umtalsverð hlut-
fallsleg aukning frá síðustu könn-
un, þegar Hreyfingin fékk stuðn-
ing 0,4 prósenta aðspurðra.
Hringt var í 1.100 manns
fimmtudaginn 7. janúar. Svar-
endur skiptust jafnt eftir kyni, og
hlutfallslega eftir búsetu. Spurt
var; Hvaða lista myndir þú kjósa
ef gengið yrði til kosninga í dag?
Alls tóku 64,3 prósent afstöðu til
spurningarinnar.
brjann@frettabladid.is
Fylgi Vinstri grænna
eykst um fjórðung
Vinstri græn mælast með stuðning fjórðungs kjósenda í nýrri skoðanakönnun.
Stuðningur við Sjálfstæðisflokkinn dregst umtalsvert saman milli kannana og
allnokkru færri styðja Samfylkinguna. Hreyfingin kemur ekki manni að.
40
35
30
25
20
15
10
5
%
FYLGI STJÓRNMÁLA-
FLOKKANNA
29,8
25
. a
pr
íl
20
09
28
. j
úl
í 2
00
9
15
. o
kt
ób
er
2
00
9
7.
jan
úa
r 2
01
0
Ko
sn
in
ga
r
Samkvæmt könnunum Fréttablaðsins
frá kosningum 2009 til 7. jan. 2010.
23,7
21,7
14,8
7,2
34,8
30,8
19,2
0,8
0,4
14,1
31,1
28,7
24,6
13,7
1,6
0,4
GENGIÐ 07.01.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
233,5491
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
125,24 125,84
199,44 200,40
179,69 180,69
24,144 24,286
21,906 22,036
17,599 17,703
1,3473 1,3551
195,55 196,71
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR