Fréttablaðið - 08.01.2010, Qupperneq 12
12 8. janúar 2010 FÖSTUDAGUR
Óvissa vegna synjunar forseta
Elica og Miele háfarnir eru einstakt sambland af
tækni og fagurfræði. Þessir einstöku háfar fást
vegghengdir og yfir eyjur. Elica og Miele háfarnir eru
frábær lausn fyrir eldhúsið.
TILBOÐ
30-50%
AFSLÁTTUR
Elica & Miele háfar
glæsileg hönnun
og fágað yfirbragð
Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur
Steingrímur J. Sigfússon
fjármálaráðherra segist op-
inn fyrir öllum möguleikum
til að leysa Icesave-deiluna.
Ríkisstjórnin sé á fullu við
að undirbúa þjóðaratkvæða-
greiðslu eins og henni beri.
Honum finnst stjórnarand-
staðan skulda skýringu á
viðsnúningi sínum varðandi
þjóðaratkvæðagreiðslu og
telur gagnrýni á samning-
ana mjög ómaklega.
Fyrir Alþingi, sem kemur saman í
dag, liggur að setja lög um þjóðar-
atkvæðagreiðslu. Í henni fær þjóð-
in að velja hvort lög um breyting-
ar á lögum um ríkisábyrgð vegna
Icesave verða enn í gildi eða ekki.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokksins,
og Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, sögðu í Frétta-
blaðinu í gær að þeir teldu að betra
væri að fara í nýja samninga en
þjóðaratkvæðagreiðslu.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra segir þá yfirlýs-
ingu nokkuð sérstaka í ljósi þess
að sömu aðilar hafi talað fyrir og
greitt atkvæði með tillögu um þjóð-
aratkvæðagreiðslu á síðasta degi
þingsins. Þá hafi þeir hvatt forset-
ann óspart til að vísa lögunum til
þjóðarinnar.
Hann segir stjórnina vinna að
atkvæðagreiðslunni, enda sé það
henni skylt. Hún loki hins vegar ekki
neinum dyrum. „Við útilokum ekki
neitt og munum ekki loka á neina
möguleika og staðan er alvarleg.
Það má segja að forsetinn hafi sett
þetta í nýtt samhengi og það væri
eðlilegt að forystumenn í stjórnmál-
um töluðu saman eins og aðrir við
þessar aðstæður.“
Steingrímur segir að komi til
atkvæðagreiðslu muni ríkisstjórn-
in tala fyrir sínum málstað. Of
snemmt sé að segja hvort um eigin-
lega kosningabaráttu verði að ræða,
en stjórnin muni miðla upplýsingum
um málið og útskýra og rökstyðja
hvers vegna hlutirnir eru eins og
þeir eru. „Ef við leggjum af stað í
þessa kosningabaráttu fer ég í hana
með því hugarfari að hún vinnist.“
Óbilgjörn umræða
Steingrímur telur umræðuna um
Icesave hafa verið mjög óbilgjarna.
„Það er nú búið að hamast og menn
eru búnir að rægja þessa samninga
með allri sinni orku í sex, sjö mán-
uði, eins og þeir séu aðalvandamál-
ið, en ekki vandamálið sjálft. Þetta
er eins og að það sé pappírinn sem
skuldaviðurkenningin er á en ekki
skuldin sjálf sem sé aðalvandamál-
ið og auðvitað er þessi umræða búin
að vera með endemum.“
Þá segir Steingrímur að það hefði
verið ágætt að vita það fyrr að menn
séu tilbúnir að ábyrgjast lágmarks-
innistæðu á Icesave. „Núna segja
allir – og gleðilega – nei, nei, við
eigum að borga. Við höfum alltaf
viljað að við borgum og við viljum
að við stöndum við okkar skuldbind-
ingar. Það er gott. Þá skulum við fá
það á hreint, er þá eftir allt saman
full samstaða um það að Ísland eigi
að ábyrgjast lágmarksinnistæðurn-
ar allt að 20.887 evrur á hverjum
reikningi? Það hefði nú einfaldað
umræðuna ef það hefði legið fyrir
áður.“
Nú vilji enginn viðurkenna annað
en menn hafi alltaf sagt að Íslend-
ingar ættu að borga. „Það er svolítið
skemmtilegt, því auðvitað hefur það
ekkert alltaf verið, hvað sem menn
segja núna. Því auðvitað voru þau
sjónarmið líka uppi að við ættum
bara að sýna mönnum puttann og
segja að við borgum ekki neitt og
vísa mönnum á Héraðsdóm Reykja-
víkur. En mér sýnist nú að málið sé
ekki svona einfalt.“
Eitthvað nýtt?
En er möguleiki á að ná betri samn-
ingum við Breta og Hollendinga?
„Ja, menn geta náttúrlega bara
spurt sig að því og svarað sér í raun
sjálfir. Er líklegt að eitthvað alveg
nýtt sé í spilunum? Enn sem stend-
ur er ekkert slíkt í skoðun í þeim
skilningi að þessi fyrstu samtöl og
símtöl og samskipti núna hafa fyrst
og fremst bara snúist um að bregð-
ast við niðurstöðu forsetans og eyða
misskilningi, miðla upplýsingum
og halda kontöktum í framhaldinu.
Það er því ótímabært að segja neitt
mikið meira um það.“
Steingrímur segist hafa átt fjöl-
mörg samtöl við erlenda starfsbræð-
ur sína, meðal annars átt góð símtöl
við hollensku og bresku fjármála-
ráðherrana Wouter Bos og Alistair
Darling. Þá hélt hann utan í gær
til að ræða við ráðherra Noregs
og Danmerkur. Hann segir að þær
umræður muni að mestu snúast um
Norðurlandalánin og fjármögnun
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Staðan
í Icesave-málinu muni þó að sjálf-
sögðu einnig verða rædd.“
Kröfur gætu orðið hærri
Samkvæmt samningum ábyrgist
Ísland endurgreiðslu á lágmarks-
tryggingu á hverjum innistæðu-
reikningi í Bretlandi og Hollandi.
Steingrímur segir að gildi samn-
ingarnir ekki væri sá möguleiki
til staðar að við yrðum krafin um
tvöfalda þá upphæð. Ekkert væri
til dæmis tryggt ef dómstólaleiðin
væri farin.
„Já, ýmsir telja að við værum ekk-
ert örugg gagnvart því. Vegna þess
að við verðum að muna að bresk og
hollensk stjórnvöld eru að taka á sig
um það bil svipaða, eða jafnvel ívið
meiri byrði til að gera upp við fólk,
en þá sem Ísland tekur á sig.
Í Bretlandi ábyrgjast þeir allt að
50 þúsund pund á reikning og ef ég
man rétt fara Hollendingar upp í
100 þúsund evrur. Þetta er þeirra
tryggingarkerfi með bakstuðningi
ríkjanna sem sér um þetta.
Við tökum aldrei nema upp að
20.887 evrum á þeim reikningum
sem svo mikið er inni á. Auðvitað
er talsvert af þessum reikningum
sem voru með minni innistæður og
þá er náttúrlega aldrei bætt nema
bara innistæðan.“
kolbeinn@frettabladid.is
Lokum engum dyrum
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að
mikið þurfi að koma til til þess að þjóðin sé svipt
þeim rétti sem synjun forsetans á lögum um
Icesave hafi fært henni. Stjórnvöld hafi þær
skyldur í þeirri stöðu sem upp er komin að
undirbúa þjóðaratkvæðagreiðslu.
„Ef kemur fram eindreginn vilji, bæði
hjá þingi og þjóð, um að fallið sé frá þjóð-
aratkvæðagreiðslunni þá munum við
skoða það. Ef menn sjá eitthvað nýtt í stöð-
unni sem gerir það að verkum að menn telja
að hægt sé að setja málið í einhverja sátt,
erum við tilbúin til að skoða það. En
það má vera mikil breyting til að við
séum tilbúin til þess.“
Jóhanna undrast viðsnúning
stjórnarandstöðunnar. „Þessi viðsnúningur virkar
mjög sérkennilega á mann. Stjórnarandstaðan lagði
mikla áherslu á það á þinginu nú fyrir ára-
mót að málið færi í þjóðaratkvæðagreiðslu.“
Jóhanna minnir á að Icesave hverfi ekki; sé
lögunum hafnað taki lögin frá í ágúst gildi.
Jóhanna hefur gert forsætisráðherrum
Hollands og Bretlands grein fyrir þeirri
stöðu sem hér er komin upp. Hún segir
þá hafa lýst vonbrigðum, en þó sýnt því
skilning að tryggja þyrfti farsælar lyktir
í málinu. Þá hefur hún rætt við kollega
sinn í Noregi um lán Norðurland-
anna.
„Ég hef sagt við alla að ég
væri hvenær sem er tilbúin til
að koma út og hitta þá, ef það
myndi greiða fyrir málinu.“
- kóp
Forsætisráðherra hissa á viðsnúningi stjórnarandstöðu um þjóðaratkvæði:
Þarf mikið til að hætt sé við
JÓHANNA Hefur átt samræður við kollega
sína úti í heimi til að útskýra málstað
Íslendinga.
„Fréttir síðustu daga frá Íslandi,“
segir sænski þingmaðurinn Carl
B. Hamilton á bloggi sínu, „gera
það að verkum að Svíþjóð getur
ekki greitt nein lán til Íslands.“
Hamilton er þingmaður Frjáls-
lynda þjóðarflokksins, eins
stjórnarflokka Fredriks Rein-
feldts forsætisráðherra, og jafn-
framt formaður Evrópusam-
bandsnefndar sænska þingsins.
Hann segir sænsk stjórnvöld
ekki geta veitt Íslendingum nein
lán fyrr en Ísland hefur fallist á
uppgjör skulda sinna, meðal ann-
ars við Bretland og Holland, og
vísar þar til samþykktar fjár-
laganefndar sænska þingsins frá
því í október síðastliðnum.
„Með neitun forsetans,“ segir
Hamilton, „verður bæði dýrt
og erfitt fyrir Ísland að fá lán
erlendis. Án samkomulags við
bæði Alþjóðagjaldeyrissjóðinn,
Norðurlönd-
in og Evrópu-
sambandið
verða vext-
irnir hærri
o g l á n i n
færri.“
Fréttastof-
an Reuters
hefur sömu-
leiðis eftir
ónafngreind-
u m e m b -
ættismanni
í fjármála-
ráðuneyti Finnlands, að ákvörð-
un Ólafs Ragnars Grímssonar um
að undirrita ekki Icesave-lögin
verði líklega til þess að fresta
lánagreiðslum frá Norðurlönd-
unum til Íslands. Nú muni Norð-
urlöndin þurfa að endurskoða
skilyrði lánveitingar sinnar til
Íslands. - gb
Formaður ESB-nefndar sænska þingsins:
Ekki hægt að af-
greiða lán til Íslands
CARL B. HAMILTON
FJÁRMÁLARÁÐHERRA Steingrímur hefur verið í samskiptum við ráðherra og fjölmiðla
um allan heim eftir að forsetinn synjaði Icesave-lögunum staðfestingar. Hann fór í
gær til að hitta norræna ráðherra vegna Norðurlandalánanna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN