Fréttablaðið - 08.01.2010, Page 20
Borgarbókasafnið er
fyrirtaks afþreyingar-
staður fyrir fjölskyld-
una um helgar þar
sem barnadeildin er
með sérstakt leik-
svæði fyrir yngstu kyn-
slóðina. Skírteini fyrir
börn og unglinga eru
ókeypis til 18 ára ald-
urs og jafnframt mega
þau hafa fimmtán
gögn að láni í einu.
www.borgar-
bokasafn.is
SÖNGHÁTÍÐ verður haldin í Húnaveri á laugardag en þá halda
Samkórinn Björk, Kór Blönduóskirkju, Rökkurkórinn og Karlakór
Bólstaðarhlíðarhrepps sameiginlega söngskemmtun. Skemmtunin
hefst klukkan 20.30 en húsið verður opnað klukkan 20.00.
Borgarbúum, sem langar að prófa
nýjar sundlaugar, er bent á skemmti-
legan bíltúr sem hægt er að fara út
fyrir borgina en Vatnaveröld í Reykja-
nesbæ er yfirbyggður vatnsleikja-
garður. Þar eru leiktæki fyrir yngstu
kynslóðina í 50 metra vatnaver-
öld en auk þess er hægt að fara í 25
metra útilaug, heita potta og gufu.
Laugin er opin frá 8-18 um helgar.
Nánari upplýsingar eru á
www.sundlaugar.is
Fjölskylduparadís
í Vatnaveröld
Í REYKJANESBÆ ER SKEMMTILEGUR
VATNSLEIKJAGARÐUR FYRIR BÖRN
Vatnaveröld í Reykjanesbæ nýtur mikilla
vinsælda á meðal barna.
Mörkinni 6 • Sími 588 5518
Opið virka daga 10-18
Laugard.-sunnud. 12-16
Startarar
fæst í Sólningu Kópavogi, Njarðvík,
Selfossi og Barðanum Skútuvogi
Startaðu betur í vetur
TUDOR rafgeymirinn er hannaður til að lifa allan
veturinn af. Forðastu óvæntar uppákomur.
TUDOR rafgeymar - betra start í allan vetur!
„Við byrjum jafnan fundina á litlu
hagyrðingamóti þar sem þrír ein-
staklingar hafa úr þremur yrkisefn-
um að spila. Oft koma fram ágæt-
ar vísur enda hafa menn haft tíma
frá síðasta fundi til að yrkja þær
og þurfa ekki að hreyta þeim úr sér
umhugsunarlítið. Að þessu sinni sjá
tveir Sigurðar og einn Sigmund-
ur um kveðskapinn undir forystu
Helga Zimsen,“ byrjar Steindór
lýsingu sína á dagskrá kvöldsins.
Hann segir um venjulegan fund
að ræða hjá Kvæðamannafélaginu
Iðunni sem haldnir séu reglulega á
föstudögum í Gerðubergi í byrjun
hvers mánaðar og séu opnir gestum
og gangandi.
Í prentaðri dagskrá stendur að
Unnur Kolbeins, heiðursfélagi í
Iðunni, ætli að flytja kveðskap og
vísur úr sinni sveit á samkomu
kvöldsins. Steindór er inntur eftir
hvaða sveit það sé. „Hún Unnur er
dóttir Kolbeins í Kollafirði, merkis-
kona og móðir Þórunnar Sigurðar-
dóttur leikskálds og Jóns fyrrver-
andi ráðherra,“ svarar hann og
heldur ótrauður áfram. „Svo mun
Sigmundur Benediktsson fara með
áramótabrag eftir sjálfan sig ásamt
fleiru. Sigmundur býr á Akranesi
og er mikill hagyrðingur, einn af
þeim sem leikur það létt á tungu að
gera vísur.“
Þá á Steindór auðvelt með að
kynna til sögunnar næsta flytjanda
sem tilgreindur er á dagskránni,
Rósu Jóhannesdóttur, sem kveður
áramótavísur. „Rósa er hálfsystir
mín, fiðluleikari, kennari og söng-
kona. Hún er öll að koma til í kveð-
skapnum. Stundum er það þannig
að ef menn eru búnir að ofmennta
sig í sönglistinni þá eiga þeir bágt
með að ná takti við rímurnar en
Rósa hefur tileinkað sér þær ágæt-
lega. Svo eru rímnalögin misjöfn og
sum þeirra melódískari en önnur,
þannig að menn geta svolítið valið
sér viðfangsefni með það í huga.“
Bára Gríms og Chris Foster
eru landsþekkt hæfileikafólk, þau
flytja nokkur lög á fundinum í
kvöld. Eftir það verður almennur
söngur þar sem áramótalög verða
tekin til flutnings við undirleik
Bjarna Valtýs Guðjónssonar, org-
anista á Mýrum vestur. Sá er frá
Svarfhóli í Hraunhreppi að sögn
Steindórs. „Það getur orðið alveg
ágætis skemmtun að koma þarna og
ekki kostar það neitt,“ segir hann.
„Nema hvað fólk þarf að borga ef
það ætlar að fá sér kaffi í hléinu
og kökur að eigin vali í kaffistofu
Gerðubergs.“
gun@frettabladid.is
Ort og kveðið við áramót
Hagyrðingar og kvæðamenn í Iðunni halda fræðslu- og skemmtifund í Gerðubergi í kvöld sem er öllum
opinn. Dagskráin verður með léttum áramótabrag að sögn Steindórs Andersen sem stýrir henni.
Kvæðalagaæfingar eru ávallt haldnar tveimur kvöldum fyrir skemmtifundina, ein slík
var síðasta miðvikudagskvöld. MYND/GUN.
„Rímnalögin eru misjöfn og sum þeirra melódískari en önnur,“ segir Steindór Ander-
sen kvæðamaður. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI