Fréttablaðið - 08.01.2010, Qupperneq 24
4 föstudagur 8. janúar
✽
b
ak
v
ið
tj
öl
di
n
Sagan á bak við Gyðju,
skólínu Sigrúnar
Lilju Guðjónsdóttur
hönnuðar, er ævintýri
líkust. Fyrirtækið klæðir
nú stjörnur eins og Anitu
Briem, Kylie Minogue
og Paris Hilton og er í
stöðugri sókn.
Viðtal: Anna Margrét Björnsson
Ljósmyndir: Ásta Kristjánsdóttir
É
g ólst upp í Vestur-
bænum og fluttist í
Elliðaárdalinn þegar
ég var níu ára. Gekk
í Ártúnsskóla og var
hamingjusamt barn,“ segir Sigrún
Lilja með smitandi bros á vör. Við
erum staddar á skrifstofu hennar
í Lækjargötu en þar má sjá Gyðju-
skóna uppi í hillum, skó, sem hafa
orðið talsvert þekktir undanfarið
og komist í pressuna þegar stjörn-
urnar Anita Briem og Kylie Min-
ogue fóru að ganga í þeim. Það
er augljóst að bæði skófatnaður-
inn og fylgihlutir eru sem sniðn-
ir fyrir stórstirni en þar eru háir
hælar, málmlitir og kristallar í fyr-
irrúmi.
„Áhugi á hönnun hefur fylgt
mér alveg síðan ég var lítil. Ég
keypti mér til dæmis saumavél
fyrir fermingarpeningana mína!
Ég fór á textílhönnunarbraut í FB
en eftir það skipti ég alveg um pól
og hélt að það yrði erfitt fyrir mig
að vinna fyrir mér með hönnun.
Ég hellti mér þá út í viðskipta-
fræðina og tók stúdentspróf af
viðskiptabraut í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja.Þess má geta að ég
vann líka í fjölskyldufyrirtækinu
Tanna auglýsingavörum. Þar var
ég sölumaður og síðar sölustjóri
í fimm ár. Ég fékk ómetanlega
reynslu þar, sem ég er afar þakk-
lát fyrir, og lærði til dæmis mikið
um framleiðsluferli, samskipti við
viðskiptavini og hvernig unnið er
með verksmiðjum.“
BYRJAÐI Á LOS ANGELES
Vendipunkturinn í lífi Sigrúnar
Lilju var ferð sem hún fór í með
fjölskyldu sinni árið 2006. „Við
fórum til Egyptalands um jólin
í frí og það var mjög sérstök og
skemmtileg reynsla. Ég var meðal
annars í bænum Hourgada og
eins og alltaf þegar ég ferðast þá
langaði mig til þess að versla. Ég
rambaði inn í verslun sem seldi
leðurskó og töskur og fannst eitt-
hvað verulega sérstakt við hana.
Ég spurði hvort ég mætti hanna
tösku og skó á sjálfa mig og hvort
þetta gæti verið tilbúið eftir þrjá
daga, því þá væri ég að fara!“ Þeir
lofuðu öllu fögru og ég lét fram-
leiða bleikar og hvítar vörur úr
úlfaldaleðri.“ Loforðið stóðst og
Sigrún Lilja fékk vörurnar í hend-
urnar þremur dögum síðar. „Ég
varð ótrúlega ánægð og þá fór
ég að hugsa um hvað það væri
nú skemmtilegt að geta unnið
við að hanna svona hluti, en við
konur erum samt alltaf dugleg-
ar að draga úr okkur og segjum,
þetta gæti ég aldrei. Þegar fólk
hins vegar fór að skoða vörurnar
sem ég hafði látið hanna þá voru
margir hrifnir og ég fékk mikla
hvatningu. Þá fór ég að spá í þetta
betur og ákvað að setja upp fyrir-
tæki með lítilli yfirbyggingu sem
væri byggt á vefverslun, en slíkt
var ekki algengt á þessum tíma. Ég
skoðaði framleiðendur á mörgum
stöðum, en ég hafði lagt áherslu á
gæðin og gott hráefni. Þetta ferli
tók mig tvö ár og á þeim tíma
fór ég á námskeið hjá Nýsköp-
unarmiðstöð Íslands sem heit-
ir Brautargengi fyrir konur í við-
skiptum. Það var alveg stórkost-
legt. Við konur getum verið mjög
gagnrýnar á okkur sjálfar og höld-
um oft að hugmyndir okkar verði
skotnar í kaf við minnsta tæki-
færi en þarna fékk maður mikla
hvatningu og leiðsögn. Ég útskrif-
aðist þaðan árið 2007 og í kjölfar-
ið fór Gyðju-vefurinn í loftið. Við-
brögðin voru samstundis góð og
ég fór strax að huga að útrás.“ Sig-
rún Lilja tók í kjölfarið þátt í verk-
efni hjá Útflutningsráði þar sem
gerð var markaðsáætlun fyrir fyr-
irtæki hennar og hún fékk ýmsa
ráðgjöf. um sölu erlendis.
„Ég var því að velta fyrir mér í
hvaða landi væri best að byrja með
Gyðju. Á þessum tíma var leik-
konan Anita Briem farin að vera
í vörunum frá mér og það hafði
vakið athygli á þeim vestanhafs.
Mér hafði verið bent á að skoða
Skandinavíu og Bretland en eftir
ýmsar vangaveltur kom Los Ang-
eles upp á yfirborðið. Við kýldum
á þetta, gerðum útflutningsáætl-
un og þremur mánuðum síðar var
ég komin til LA. Núna er ég komin
með fólk í vinnu bæði í París og í
LA og næst á dagskrá hjá mér er
heilmikið ferðalag. Ég fer fyrst til
Parísar á sölufundi og á tískuvik-
una þar. Því næst er ég að fara til
Bandaríkjanna og þá byrjum við í
New York og tískuvikunni þar, svo
förum við til Las Vegas og verðum
með Gyðju þar á vörusýningu. Við
endum svo í Los Angeles þar sem
við verðum með þéttskipaða dag-
skrá í nokkrar vikur.“
STJÖRNURNAR HRÍFAST
Velgengni Gyðju er ekki síst því að
þakka að stjörnurnar ytra virðast
falla unnvörpum fyrir vörunum.
„Ég er núna í samvinnu við nokkr-
ar stjörnur og það er í rauninni
mjög viðkvæmt fyrir mig að segja
hverjar þær eru akkúrat núna. Ég
er með starfsmann úti sem vinn-
ur við markaðssetningu og samn-
ingurinn við Kylie Minogue kom
til vegna þess að stílistinn henn-
ar fékk bæklinga frá stílista ann-
arrar stjörnu sem er mjög hrifin af
vörunum okkar.“ Og hvaða stóra
stjarna er það? „ Það er Paris Hilt-
on, hún fékk vörur frá mér,“ segir
Sigrún Lilja með hlédrægu brosi.
„Hún varð mjög hrifin af minni
framleiðslu og notaði í nýjustu
PARIS HILTON FÉLL FYRIR SK
Með Síberíuhundana sína
Sigrún Lilja nýtur þess að fara í
gönguferðir úti í íslenskri náttúru en
þaðan sækir hún innblástur sinn.
Fjölþrepa
bakbrettið
• Eykur sveigjanleika
• Linar bakverki
• Bætir líkamsstöðu
• Auðvelt í notkun
• Má nota hvar sem er
Opið virka daga frá kl. 9 -18
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Verð: 7.950 kr.
Auglýsingasími
– Mest lesið
Besti tími dagsins:
Hádegið stendur upp úr, mér finnst æðislegt að
hitta vinkonurnar reglulega yfir hádegismat til að
kjafta og hlæja.
Skemmtilegast að gera:
Að ljúka krefjandi verkefni og geta slappað af
áhyggjulaus.
Leiðinlegast að gera:
Hlusta á niðurdrepandi umræður um efnahags-
ástandið og Icesave.
Uppáhaldsborgin:
Washington DC er æðis-
leg en það er erfitt að
gera upp á milli.
Skemmtileg-
asti staðurinn:
Uppblásin plast-
sundlaug á sólríkum
degi í Elliðaárdalnum
með vinkonum og kokk-
teilum, gerist ekki betra.
Best að borða:
Vegamót er staðurinn minn og búinn að vera í
mörg ár.
Bókin á náttborðinu:
Vigdís – Kona verður forseti.