Fréttablaðið - 08.01.2010, Blaðsíða 36
24 8. janúar 2010 FÖSTUDAGUR
menning@frettabladid.is
Stuttmynd Brynju Valdís-
ar leikkonu, Einu sinn var …
verður endursýnd vegna
fjölda áskorana á Skjá einum
kl. 19.00 í opinni dagskrá í
kvöld.
„Þetta er létt mynd með
glöðu yfirbragði,“ segir
Brynja. „Hún er litrík og stíl-
færð bæði í leik og útliti og
mikið fyrir augað. Ég hef allt-
af haft mjög gaman af mynd-
um Mel Brooks og myndum
eins og Airplane og Naked
Gun-myndunum og þess gætir
í Einu sinni var …“
Myndin fjallar um Reg-
ínu Ínu (leikin af Arnbjörgu
Hlíf Valsdóttir), sem er sak-
laus sveitastúlka sem ákveð-
ur að hefja nýtt líf og flytur
í borgina. Hún er skítblönk í
kreppunni og leitar athvarfs
hjá Guddu frænku sinni. Lífið
er enginn dans á rósum en
það breytist í borginni þar
sem ævintýrin gerast enn.
Önnur hlutverk leika meðal
annars Benedikt Erlingsson
og Laddi.
Einu sinni var … er útskrift-
arverkefni Brynju Valdísar af
leikstjórnar- og framleiðslu-
sviði Kvikmyndaskóla Íslands
og Eyrúnar Helgu Guðmunds-
dóttur af tæknisviði Kvik-
myndaskóla Íslands.
Skítblönk í kreppunni
UNDIR ÁHRIFUM FRÁ NAKED GUN
Stuttmynd Brynju Valdísar er sýnd
á Skjá einum í kvöld.
kl. 20.00
Kvæðamannafélagið Iðunn byrj-
ar félagsstarf sitt á nýju ári með
fræðslu- og skemmtifundi í kvöld kl.
20 í menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi. Steindór Andersen stýrir
fundinum, en rímnalaganefnd sér
um dagskrá fundarins að þessu
sinni sem verður með áramótasniði.
Fundurinn er öllum opinn.
Nánar á www.rimur.is.
> Ekki missa af …
Á sunnudaginn kveðja trúð-
arnir Barbara, Úlfar og Bella í
leikritinu Jesú litla. Verkið er
eftir þau Benedikt Erlingsson
– sem leikstýrir – og Berg
Þór Ingólfsson, Halldóru
Geirharðsdóttur og Kristjönu
Stefánsdóttur, sem leika
trúðana. Það var frumsýnt í lok
nóvember á Litla sviði Borgar-
leikhússins. Í þessu fallega en
hárbeitta verki er sagan á bak
við guðspjallið sögð á harm-
rænan en bráðfyndinn hátt
sem hefur heillað áhorfendur
frá frumsýningu.
Í kvöld frumsýnir leikhóp-
urinn Munaðarleysingjar
nýtt verk eftir Dennis
Kelly, eitt ferskasta leik-
skáld Bretlandseyja. Þessi
funheiti þriller verður
sýndur í sal Norræna húss-
ins í janúar.
Verkið nefnist Munaðarlaus á
íslensku. Leikstjóri sýningarinn-
ar er Vignir Rafn Valþórsson sem
jafnframt þýðir verkið. Leikhópur-
inn samanstendur af ungum leik-
urum; Hannesi Óla Ágústssyni,
Stefáni Benedikt Vilhelmssyni og
Tinnu Lind Gunnarsdóttur.
„Við Stefán útskrifuðumst í
fyrra og ákváðum að kýla bara
á þetta þar sem við vorum báðir
atvinnulausir, taka bara yfirdrátt
og taka smá séns,“ segir Hannes
Óli. „Við settumst niður með fullt
af handritum sem við fengum send
og völdum þetta verk, Munaðar-
laus. Fengum svo Tinnu og Vigni
með okkur í þetta. Það var smá
lægð í atvinnumálum okkar allra.
Þegar þannig er, er bara að spýta
í lófana og redda sér.“
Hannes segir verkið ekki vera
neitt þungmeti. „Það mætti lýsa
því sem þriller, en samt með sterk-
um vísunum í samfélagið. Verkið
hefst á því að inn í fínt matarboð
dettur ættingi heimilisfólksins,
allur útataður í blóði. Hann segist
hafa komið að manni sem hefur
orðið fyrir líkamsárás. Nú hefst
atburðarás sem vindur sífellt upp
á sig. Verkið tekur nýja stefnu á
fimm mínútna fresti og endar svo
í miklu uppgjöri.“
Þetta er fyrsta verk Dennis
Kelly sem sýnt er á Íslandi. „Hann
er um fertugt og fór frekar seint
í gang, en hefur verið mjög dug-
legur frá því hann byrjaði,“ segir
Hannes. „Það hafa verið sýnd eitt
eða tvö verk á ári eftir hann síðan
það fyrsta kom árið 2003. Hann
hefur hlotið mikið lof og mikið
verið leikinn utan Bretlands, í
Evrópu og Ameríku. Hann er til
að mynda orðinn mjög þekktur
í leikhúsheiminum í Berlín, sem
er öðruvísi en þessi textamiðaði
stofudramaveruleiki í Bretlandi.“
Norræna húsið er óhefðbund-
inn staður fyrir leiksýningu, en
Hannes Óli er mjög ánægður með
samstarfið. „Þau tóku okkur mjög
vel og sögðust alveg vera til í að
vera með fleiri leiksýningar. Þetta
ættu að vera góð tíðindi því sjálfs-
stæðu leikhúsin hafa löngum verið
á hrakhólum með húsnæði. Salur-
inn hentar okkar sýningu mjög vel
þótt hann sé kannski ekki hefð-
bundinn.“
Munaðarlaus, Orphans á frummál-
inu, var frumsýnt á Edinborgarhá-
tíðinni í fyrrasumar við frábærar
undirtektir. Verkið fékk m.a. fimm
stjörnur hjá Time Out og mjög
góða dóma í öllum helstu fjölmiðl-
um Bretlands. Aðeins eru fyrir-
hugaðar átta sýningar á verkinu og
má nálgast miða í síma 895-9919
og munadarlaus@gmail.com.
drgunni@frettabladid.is
Þriller í Norræna húsinu
TAKA SMÁ SÉNS Munaðarleysingjarnir: Hannes Óli Ágústsson, Stefán B. Vilhelmsson, Tinna Lind Gunnarsdóttir og Vignir Rafn
Valþórsson.
Leitað að handritum
Forlagið og Verðlaunasjóður
íslenskra barnabóka auglýsa eftir
handritum að skáldsögu fyrir
börn og unglinga í samkeppni um
Íslensku barnabókaverðlaunin.
Samkvæmt upplýsingum frá
aðstandendum verðlaunanna á
sagan að vera að lágmarki 50
blaðsíður að lengd, ekki er gert
ráð fyrir því að bókin sé mynd-
skreytt en skilafrestur er til 1.
febrúar. Dómnefnd velur besta
handritið en ráðgert er að bókin
komi út haustið 2010.
Verðlaunin í keppninni eru
500.000 krónur og höfundarlaun.
Handritum skal skila í fjórriti til:
Verðlaunasjóður íslenskra barna-
bóka / Forlagið / Bræðraborgar-
stíg 7 / 101 Reykjavík. Handrit á
að merkja með dulnefni en rétt
nafn fylgir með í umslagi.
BARNABÓKAKEPPNI Forlagið og verð-
launasjóður íslenskra barnabóka leita
að nýjum barna- og unglingabókum.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Lau 9/1 kl. 16:00 Aukas. U
Lau 9/1 kl. 20:00 7. K Ö
Sun 10/1 kl. 16:00 Aukas. U
Sun 10/1 kl. 20:00 8. K U
Fim 14/1 kl. 19:00 Ö
Oliver! (Stóra sviðið)
Brennuvargarnir (Stóra sviðið)
Fös 8/1 kl. 20:00 Ö
Fös 15/1 kl. 20:00 Ö
Fim 21/1 kl. 20:00 Ö
Fös 22/1 kl. 20:00 Ö
Fim 28/1 kl. 20:00
Fös 5/2 kl. 20:00
Lau 16/1 kl. 15:00 Aukas. U
Lau 16/1 kl. 19:00 Ö
Lau 23/1 kl. 15:00 Aukas. Ö
Lau 23/1 kl. 19:00 Ö
Fös 29/1 kl. 19:00 Ö
Lau 30/1 kl. 15:00 Ö
Lau 30/1 kl. 19:00 Ö
Lau 6/2 kl. 15:00 Ö
Lau 6/2 kl. 19:00 Ö
Fös 12/2 kl. 20:00 Frums. U
Lau 13/2 kl. 20:00 2. K U
Fös 19/2 kl. 20:00 3 K Ö
Gerpla (Stóra sviðið)
Lau 20/2 kl. 20:00 4. K Ö
Fös 26/2 kl. 20:00 5. K Ö
Lau 27/2 kl. 20:00 6. K Ö
Fös 5/3 kl. 20:00 7. K Ö
Lau 6/3 kl. 20:00 8. K Ö
Tryggið ykkur sæti - miðarnir rjúka út!
Sýningum fer fækkandi!
Miðasala hafin - tryggið ykkur sæti á fyrstu sýningar!
Lau 13/3 kl. 15:00 Frums. U
Sun 14/3 kl. 13:00 Ö
Sun 14/3 kl. 15:00 Ö
Fíasól (Kúlan)
Lau 20/3 kl. 13:00 U
Lau 20/3 kl. 15:00
Sun 21/3 kl. 13:00
Sun 21/3 kl. 15:00
Nú er hægt að kaupa miða á Fíusól!
Lau 9/1 kl. 15:00 Ö
Sun 10/1 kl. 15:00
Lau 16/1 kl. 15:00
Sindri silfurfi skur (Kúlan)
Sun 17/1 kl. 16:00
Lau 23/1 kl. 15:00
Sun 24/1 kl. 16:00
Lau 30/1 kl. 15:00
Sun 31/1 kl. 15:00
Undurfalleg sýning fyrir yngri börnin. Miðaverð aðeins 1500 kr.
Karlakórinn Heimir Skagafi rði
Upp skalt á kjöl klífa
Tónleikar í Langholtskirkju
Laugardaginn 9. janúar kl. 16:00
Forsala aðgöngumiða í Eymundsson
Kringlunni og Austurstræti.
Stjórnandi: Stefán R. Gíslason
Handrit: Agnar H. Gunnarsson
Undirleikur: Thomas R. Higgerson
Lesarar: Agnar H. Gunnarsson og Hannes Örn Blandon
Hljóðmynd: Arnar Halldórsson
Einsöngur: Óskar Pétursson og Ásgeir Eiríksson
Sjá nánar á www.heimir.is
Sími 575 7700
www.gerduberg.is
Föstudagur 8. janúar kl. 20
Kvæðamannafélagið
Iðunn
Fyrsti fundur ársins verður með
áramótasniði. Fundurinn er öllum
opinn. www.rimur.is
Síðasta sýningarhelgi
• Svanurinn minn syngur.
Sýning um líf og skáldskap
Höllu Eyjólfsdóttur.
• Í gegnum tíðina.
Sigurbjörg Sigurjónsdóttir sýnir
postulín og myndir í Boganum.
Sýningarnar eru opnar virka daga
frá 11-17 og um helgar frá 13-16
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið