Fréttablaðið - 08.01.2010, Qupperneq 39
FÖSTUDAGUR 8. janúar 2010
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 8. janúar 2010
➜ Opnanir
17.00 Í Bryggjusal Edinborgarhússins
við Aðalstræti á Ísafirði opnar sam-
sýning sex listamanna. Anton Vilhelm
Ásgeirsson, Baldvin Einarsson, Bergur
Thomas Andersson, Gunnar Jónsson,
Sigurður Atli Sigurðsson og Sindri Snær
Sveinbjargar Leifsson. Opið til 14. jan-
úar kl. 16-18.
➜ Sýningar
Sæþór Örn Ásmundsson sýnir Portrait
myndir á Mokka við Skólavörðustíg 3a.
Opið alla daga kl. 9-18.30.
Í Íslenskri grafík við Tryggvagötu 17
(hafnarmegin) stendur yfir sögusýning
sem varpar ljósi á sögu grafíklistar á
Íslandi í máli og myndum. Opið fim.-
sun. kl. 14-18.
➜ Síðustu forvöð
Í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi
(Gerðuberg 3-5) lýkur tveimur sýn-
ingum á sunnudag. Það er annars
vegar sýning um líf og skáldskap Höllu
Eyjólfsdóttur en einnig lýkur sýningu
Sigurbjargar Sigurjónsdóttur í Boganum.
Opið virka daga kl. 11-17 og um helg-
ar kl. 13-16.
➜ Dansleikir
Kong Fú verða á Players við Bæjarlind
í Kópavogi.
➜ Fyrirlestrar
12.00 Ingjaldur
Hannibalsson flytur
erindið „Efnahagsþró-
unin í Kína og viðskipti
Kína við Íslands“ á
Háskólatorgi HÍ við
Sæmundargötu 4 (st.
103).
Plata með tónlistinni við heim-
ildarmyndina Draumalandið er
nýkomin út á vegum útgáfunnar
Bedroom Community. Tónlistin er
eftir Valgeir Sigurðsson, sem síð-
ast gaf út sólóplötuna Ekvilibríum
árið 2007. Hér teflir hann saman
kammersveit, hörpu, slagverki,
píanói og torkennilegri rafsuðu
sem mynda blæbrigðaríka og sér-
stæða heild. Félagar Valgeirs í
Bedroom Community, Nico Muhly,
Sam Amidon og Ben Frost, koma
allir við sögu á plötunni. Frost
leggur til elektróník, Muhly útset-
ur og stjórnar hljómsveit og Amid-
on syngur Grýlukvæði á íslensku.
Víóluleikarinn Nadia Sirota kemur
einnig við sögu á plötunni ásamt
fjölda annarra hljóðfæraleikara.
Tónlistin við
Draumaland
VALGEIR SIGURÐSSON Plata með tónlist
Valgeirs við Draumalandið er nýkomin út.