Fréttablaðið - 08.01.2010, Page 42
30 8. janúar 2010 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
KÖRFUBOLTI Nick Bradford var
rekinn frá finnska liðinu Kataja á
dögunum og það eru miklar líkur
á því að hann semji við íslenskt
lið. Bradford fer þó ekki til
Grindavíkur þar sem hann gerði
svo góða hluti í fyrravetur.
„Hann gerði frábæra hluti
fyrir okkur en ég er búinn að
skrifa undir samning við Dar-
rell Flake og ég er mjög ánægður
með hann,“ segir Friðrik Ragn-
arsson, þjálfari Grindavíkur.
„Bradford er frábær leikmaður
og undir öllum öðrum kringum-
stæðum hefði ég reynt að svífa á
hann en ég er kátur með Flake.
Hann er búinn að vera þrusudug-
legur og var hér sem dæmi um öll
jólin til þess að koma sér í betra
form. Ég er mjög sáttur með hans
hugarfar og hann sem leikmann,“
segir Friðrik en hann býst við
að sjá Bradford í íslensku liði á
þessu tímabili. „Þeir sem fá hann
eru heppnir. Þetta er algjört topp-
eintak,“ sagði Friðrik. - óój
Nick Bradford er laus:
Ekki á leiðinni
til Grindavíkur
TWITTER-SÍÐAN BANABITINN Nick
Bradford var rekinn frá Finnlandi fyrir
ummæli um liðsfélaga sína á Twitter-
síðu sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VIHELM
> Ragnar inn í EM-hópinn
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari valdi í
gær Ragnar Óskarsson í íslenska landsliðshópinn sem
undirbýr sig nú fyrir EM í Austurríki. Logi Geirsson er
meiddur og því var ákveðið að kalla á Ragnar
sem spilar með Dunkerque í Frakklandi.
Þórir Ólafsson hefur átt við meiðsli í
kálfa að stríða og þess vegna hafði Rúnar
Kárason verið kallaður inn í hópinn í
upphafi vikunnar. Guðmundur hefur
einnig valið 16 leikmenn í ferð til Þýska-
lands en þjóðirnar mætast í tveimur
æfingalandsleikjum um helgina. Logi
Geirsson og Þórir Ólafsson, sem eru
meiddir, sitja eftir heima sem og
Rúnar Kárason.
KÖRFUBOLTI Í gær var tilkynnt um
úrvalslið og bestu leikmenn fyrri
hluta tímabilsins í Iceland Express-
deildum karla og kvenna. Þau sem
þóttu skara fram úr voru þau Mar-
grét Kara Sturludóttir, leikmaður
KR, og Bandaríkjamaðurinn Just-
in Shouse hjá Stjörnunni.
Shouse hefur lengi verið á
Íslandi og er því öllum hnútum
kunnugur í íslenska körfuboltan-
um. Hann hefur farið fyrir sínum
mönnum í Stjörnunni sem átti frá-
bæru gengi að fagna á síðasta ári.
„Við urðum bikarmeistarar og
lukum frábæru ári á toppi deild-
arinnar,“ sagði Justin við Frétta-
blaðið í gær. „En við gerum okkur
fulla grein fyrir því að við erum
ekki komnir á þann stall sem við
viljum vera á. Það er vissulega frá-
bært að vera í efsta sæti deildar-
innar um jólin en það hefur ekk-
ert að segja ef við fylgjum því svo
ekki eftir á nýju ári. Við þurfum
að halda áfram á sömu braut og
vonandi skilar það áfram góðum
úrslitum.“
Justin á von á því að áhuga-
menn um körfubolta reikni ef til
vill frekar með því að sögufræg lið
á borð við Suðurnesjaliðin og KR
muni síga fram úr Stjörnunni á síð-
ari hluta tímabilsins.
„Ég er viss um að margir eigi
von á að það gerist. Það eru önnur
lið í deildinni sem öll hafa unnið
marga titla en við erum hins vegar
með tiltölulega nýtt lið. Ég held þó
að síðasta ár hafi gert mikið fyrir
okkur hvað reynsluna varðar. Það
eru leikmenn í liðinu sem hafa
unnið titla og spilað til úrslita um
Íslandsmeistaratitil-
inn. Við vitum því
vel hvað við þurf-
um að gera til að
ná árangri.“
Margrét Kara
viðurkenndi að það
hefði komið henni á
óvart að hún var
valin besti
leikmaður
deildarinn-
ar að þessu
sinni. „Ég
bjóst sterk-
lega við því
að Heath-
er Ezell í
Haukum
yrði valin
enda hefur
hún sýnt
að þarna
fer frá-
bær leikmaður í alla
staði,“ sagði Margrét
Kara sem segir að hún
hafi æft vel á undir-
búningstímabilinu.
„Ég hef líka breytt
hugarfarinu mínu og
kannski að ég sé að upp-
skera eftir það. En þetta
snýst fyrst og fremst um að
leggja mikið á sig og að gera
sitt besta hverju sinni. Stund-
um gengur það upp.“
Hún hrósaði einnig Benedikt
Guðmundssyni, þjálfara KR, sem
tók við liðinu fyrir tímabilið.
„Hann hefur aðeins breytt leik-
skipulaginu okkar þó svo að við
leggjum enn mikla áherslu á varn-
arleikinn sem er okkar
sterkasti þáttur. En
hann er flottur þjálf-
ari sem leikmenn bera
virðingu fyrir. Maður
vill því alltaf gera sitt
besta fyrir hann.“
K R er en n
taplaust á toppi
deildarinnar en
það eina sem
varpar skugga
á tímabilið er
að liðið tap-
aði fyrir
Njarðvík í 16 liða úrslitum bikar-
keppninnar.
„Það var afar svekkjandi að tapa
í bikarnum og sá leikur sló okkur
út af laginu. En ég held að það hafi
einnig verið hollt að fá smá spark í
rassinn sem og að fá það frí sem var
í deildinni. Nú erum við hungraðar
aftur.“
Hún segir að KR-ingar eigi þó enn
eftir að toppa. „Við erum vissulega
búnar að spila mjög vel en eigum
kannski eftir að ná algerum topp-
leik bæði í vörn og sókn. Við höfum
haft efni á því að hiksta í sókninni
því varnarleikurinn hefur verið það
sterkur. En við erum enn að bíða
eftir þessum 100 prósent leik.“
Margrét Kara gekk í raðir KR
fyrir ári síðan og sér ekki eftir því í
dag. „Mér líður mjög vel í KR og þar
verð ég áfram.“ eirikur@frettabladid.is
Þurfum að halda áfram á sömu braut
Þau Justin Shouse, Stjörnunni, og Margrét Kara Sturludóttir, KR, voru í gær útnefnd bestu leikmenn fyrri
hluta tímabilsins í Iceland Express-deildum karla og kvenna. Bæði þessi lið tróna á toppi sinna deilda.
ÚRVALSLIÐ KVENNA Heather Ezell, Bryndís Guðmundsdóttir , Sigrún
Ámundadóttir, Margrét Kara Sturludóttir og Signý Hermannsdóttir.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Guðmann Þórisson skrifaði í fyrradag undir tveggja ára samning við
norska B-deildarfélagið Nybergsund. Hann er uppalinn í Breiðabliki
en samningur hans við félagið rann út núna um áramótin. Honum
var því frjálst að ganga til liðs við hvaða félag sem er.
„Þetta leggst afar vel í mig. Það var kominn tími á að prófa
eitthvað nýtt og ég lít á þetta sem frábært tækifæri til að
spreyta mig í Noregi. Ég vona bara að það muni ganga vel,“
segir Guðmann.
Og honum líst vel á nýja félagið. „Þjálfaranum leist vel á
mig og strákarnir í liðinu eru frábærir. Liðið er ungt og ætlar
sér í toppbaráttuna í deildinni og helst að reyna að komast
upp í úrvalsdeildina.“ Guðmann hefur bæði spilað
sem miðvörður og bakvörður en á von á að hann
muni fyrst og fremst spila í hjarta varnarinnar. „Það
eru bakverðir hjá liðinu sem þjálfarinn ætlar að
nota enda finnst mér skemmtilegra að spila sem
miðvörður – það er mín staða.“
Hann segir að það hafi vissulega verið erfið
ákvörðun að yfirgefa Breiðablik. „Þetta er félagið
sem ég hef verið í síðan ég var sex ára. Óli [Ólafur Kristjánsson]
er frábær þjálfari og leikmennirnir vinir mínir rétt eins og margir
stuðningsmenn. Það var þó ekki erfið ákvörðun að yfirgefa Ísland á
þessum tímapunkti enda ekki margt sem heldur í mann þar,“ segir
Guðmann sem neitaði því ekki að það verði fínt að fá borgað
í norskum krónum.
Nybergsund varð í níunda sæti norsku B-deildarinnar
en þá lék Viktor Bjarki Arnarsson með því. Hann er þó
farinn frá félaginu. En Guðmann á von á því að deildin
sé sterkari en efsta deild á Íslandi, ef eitthvað er.
„Ég veit þó ekki mikið um deildina hér úti en
hef tekið eftir því að hraðinn er meiri. Ég á því
von á að ég muni þurfa að undirbúa mig vel,“
segir hann og ætlar ekki að velta sér of mikið
upp úr framtíðinni.
„Núna er ég fyrst og fremst að hugsa um
að standa mig vel hjá þessu félagi. Ef eitthvað
annað og meira gerist í framtíðinni mun það
bara koma í ljós.“
GUÐMANN ÞÓRISSON: SAMDI VIÐ NYBERGSUND Í NOREGI TIL TVEGGJA ÁRA
Ekki erfið ákvörðun að yfirgefa Ísland
FÓTBOLTI KR-ingar gátu í gær loks-
ins gengið frá nýjum samningi
við hinn stórefnilega Ingólf Sig-
urðsson en þessi 17 ára strákur
vakti mikla athygli á síðasta ári,
fyrst fyrir snilldartakta í auglýs-
ingu á vegum Intersport og svo
fyrir að skora í 3-0 sigri á ÍBV
aðeins fimm mínútum eftir að
hann kom inn á sem varamaður í
sínum fyrsta leik í efstu deild.
Hollenska liðið Heerenveen átti
rétt á uppeldisbótum fyrir Ingólf.
„Við gengum frá nýjum samningi
við Ingólf í desember og höfum
verið í viðræðum við Hollending-
ana síðan þá og fá lausn á þessu
máli. Það gekk loksins upp í dag
þannig að samningur Ingólfs fer
inn í KSÍ á morgun og hann verð-
ur samningsbundinn okkur í þrjú
ár í viðbót,“ sagði Rúnar Kristins-
son, yfirmaður knattspyrnumála
hjá KR.
„Þetta hefur verið dálítið langt
ferli og tekið alveg nokkra mán-
uði. Ég er mjög sáttur við að þetta
sé loksins komið. Þeir þurftu eitt-
hvað að semja við Herenveen af
því að ég var hjá þeim í eitt ár,“
sagði Ingólfur í gær.
„Við erum búnir að vera í samn-
ingaviðræðum við Herenveen um
að fá að greiða þessar uppeldis-
bætur bara síðar ef Ingólfur fer
erlendis einhvern tímann. Upp-
eldisbæturnar eru orðnar það
háar á milli landa og þá sérstak-
lega svona stórri þjóð eins og Hol-
landi. Við tókum Icesave-samning
á þetta,“ sagði Rúnar hlæjandi en
hann er mjög kátur með að Ingólf-
ur verði áfram hjá KR. „Við erum
gríðarlega ánægðir með að festa
drenginn í KR,“ sagði Rúnar en
Ingólfur var í Val áður en hann
fór út til Heerenveen.
Rúnar sér mikið efni í strákn-
um. „Hann er gríðarlega efnileg-
ur og hefur mikið fram að færa.
Ef hann heldur rétt á spöðunum,
hugsar vel um sig, æfir vel og
þroskast sem leikmaður þá getur
hann náð langt,“ sagði Rúnar.
„Síðasta sumar var ég mest-
megnis á bekknum og kom lítið
við sögu. Ég vil gera betur næsta
sumar, fá stærra hlutverk í liðinu
og standa mig betur. Það er mjög
góður leikmannahópur hjá KR og
það eru bara virkilega góðir leik-
menn sem komast í byrjunarliðið
þarna,“ segir Ingólfur sem býst
við að spila mest sem kantmaður.
„Ég ætla bara að reyna að standa
mig vel og vona að KR vinni titla,“
sagði Ingólfur að lokum. - óój
KR-ingar sömdu um uppeldisbætur við Heerenveen fyrir Ingólf Sigurðsson:
Tóku Icesave-samning á þetta
FÓTBOLTI Kári Árnason hefur
framlengt samning sinn við
enska b-deildarliðið Plymouth
Argyle um tvö ár og gildir nýju
samningurinn hans til sumarsins
2012. Kári hefur slegið í gegn í
nýrri stöðu sem miðvörður.
„Ég er mjög ánægður og þetta
er góður dagur fyrir félagið,“
sagði Paul Mariner, stjóri Plym-
outh Argyle, eftir að Kári Árna-
son skrifaði undir í gær. „Arnie
er búinn að vera í aðalhlutverki
í uppgangi liðsins. Hann hefur
tekið að sér leiðtogahlutverk í lið-
inu og hefur lagast fljótt að nýrri
stöðu,“ sagði Mariner.
„Arnie er algjör draumaleik-
maður. Hann getur ekki beðið
eftir því að komast á æfingu,
tekur vel eftir öllu sem er í gangi
og er staðráðinn í að verða enn
betri,“ segir Mariner og sparaði
ekki hrósið á Kára á heimasíðu
félagsins í gær. - óój
Kári Árnason framlengdi:
Fær mikið hrós
frá þjálfaranum
KÁRI Er kallaður Arnie. MYND/OLE NIELSEN
Í KR TIL 2012 Ingólfur Sigurðsson
gekk frá samningi við KR í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Patrick Vieira staðfesti í
gær að hann myndi fara til enska
úrvalsdeildarliðsins Manchester
City. „Ég hef sett mér það mark-
mið að spila á HM. Það er mik-
ilvægt fyrir mig að fara til City
og sýna þjálfaranum Roberto
Mancini að ég er sami leikmaður
og spilaði fyrir hann hjá Inter,“
sagði Vieira sem lék sinn síðasta
leik fyrir Inter í fyrrakvöld.
„Hann var frábær í síðasta
leiknum fyrir okkur,“ sagði José
Mourinho, þjálfari Inter.
Vieira er mikill sigurvegari
en hann vann þrjá meistaratitla
og fjóra bikarmeistaratitla með
Arsenal og varð fjórum sinnum
ítalskur meistari. - óój
Patrick Vieira til Man. City:
Sá fyrsti í húsi
hjá Mancini
FRÁBÆR HJÁ ARSENAL Patrick Vieira
ætlar að spila á HM í sumar. MYND/AFP
SÁ BESTI Stjörnumað-
urinn Justin Shouse á
fullri ferð í leik liðsins
í vetur.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM