Fréttablaðið - 12.01.2010, Page 18
12. janúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR4
„Í stuttu máli sagt er ég að
kenna golfurum æfingar til að
bæta frammistöðuna á vellin-
um í sumar,“ segir Guðjón Berg-
mann jógakennari, sem er farinn
af stað með nýtt jóganámskeið í
World Class í Laugum en það er
sérstaklega ætlað áhugamönnum
um golf.
Á námskeiðinu er meðal ann-
ars lögð áhersla á jafnvægis-, lið-
leika- og styrktaræfingar. „Þetta
er það sem vantar einna helst upp
á hjá kylfingum,“ útskýrir Guð-
jón og bætir við að með æfing-
unum sé leitast við að draga úr
stirðleika, losa spennu og styrkja
stoðkerfi líkamans. „Með
því að styrkja kvið-
og bakvöðva,
sem styðja við
hrygginn, er
verið að efla sveifl-
una og draga úr líkum
á meiðslum.“
Þá segist Guð-
jón fara sérstak-
lega í öndunar- og
einbeitingaræfing-
ar. „Eitt af því sem
kylfingar tala um er
að ná algjörri ein-
beitingu og ró á golf-
vellinum. Að mínu
mati er hæglega
hægt að ná færni
í þessu tvennu
utan vallar með
góðri þjálfun, til
dæmis í jóga,“
útskýrir hann.
Guðjón segir
ekkert nýnæmi
að íþróttafólk sjái
sér hag í því að
stunda jóga enda
sé löngu vitað mál
að það geti bætt
afköst í íþrótt-
um. „Ég færði til
að mynda rök fyrir
því í vandaðri bók,
eins konar uppfletti-
riti, sem ég gaf út
árið 2002 og hefur
verið að seljast mjög
vel í seinni tíð, sjálf-
sagt vegna þess að
almenningur er
orðinn upplýst-
ari um ávinn-
inginn af jóga-
iðkun,“ segir
hann. „Þar er
að finna alls
kyns fróðleik
fyrir þá sem
vilja tvinna
þetta saman,
íþróttir og jóga
og meira að segja sérstakur kafli
helgaður golfi.“
Guðjón viðurkennir að hann
sé sjálfur enginn afreksmaður í
golfi. Þó hafi hann sýnt ágætis
takta meðan hann dvaldi ásamt
fjölskyldunni í Texas í vetur.
„Við bjuggum hjá ættingjum
konu minnar og þar gafst mér
eitt sinn færi á að skreppa með
karlpeningnum út á völl. Þá kom
bersýnilega í ljós að ég kunni nú
ekki mikið en menn undruðust
samt á því hvað ég tók leiðbein-
ingum vel. Eftir á að hyggja efast
ég ekki um að jógað, styrktar- og
öndunaræfingarnar, hafi átt sinn
þátt í því.“
Guðjón kennir jóga fyrir
golf ara í World Class í Laug-
um alla mánu- og miðvikudaga
kl. 19.20. Nánari upplýsingar á
worldclass.is. roald@frettabladid.is
Púttað og vippað í jóga
Æ fleiri íþróttamenn sjá sér hag í því að stunda jóga til að bæta afköstin. Guðjón Bergmann, jógakennari
og rithöfundur, veit allt um það en hann er nýfarinn af stað með sérsniðna jógatíma fyrir golfara.
Guðjón Bergmann kennir kylfingum jóga til að bæta afköstin á vellinum og vonast til
að árangurinn verði svo góður að hann reynist sjálfur óþarfur í framtíðinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ge
rið
v
er
ð s
am
an
bu
rð
Sími 578 6699
steikir hrogn og gefur smakk og veitir faglega
ráðgjöf og áritar bók sína.
Rúnar Marvinsson
1árs
afmæli
15%
afsláttur
af öllu
ferskmeti
í borði
Ge
rið
v
er
ð s
am
an
bu
rð