Fréttablaðið - 12.01.2010, Síða 42
22 12. janúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
Stigamet Íslendings í efstu deild karla sem Marvin Valdimars-
son setti fyrr í vetur er hann skoraði 51 stig í venjulegum leik-
tíma stóð ekki lengi. Páll Axel Vilbergsson skoraði nefnilega
54 stig í leik gegn Tindastóli á sunnudag.
Páll Axel hefur því skorað flest stig allra Íslendinga í
venjulegum leiktíma í efstu deild. Valur Ingimund-
arson skoraði einnig 54 stig í leik árið 1988 en sá
leikur fór í framlengingu. Þessir þrír eru þó einu
Íslendingarnir sem hafa skorað yfir 50 stig í úrvals-
deildinni.
„Ég átti alls ekki von á því að ég yrði svona heitur.
Ég var mjög stífur fyrir leikinn og var einmitt að hugsa
fyrir leikinn að ég myndi ekkert geta. Þetta var bara
sunnudagur og þá er maður bara að slugsa og horfa á
sjónvarpið. Ég varð því stífur og meira að segja það stífur
að ég ákvað að labba í íþróttahúsið til þess að liðka mig,“
sagði Páll Axel sem gerði sér þó grein fyrir að hann þyrfti
að standa sig í leiknum.
„Það eru svolítil meiðsli í okkar hópi þessa dagana
þannig að ég ákvað að láta til mín taka og leiða liðið í leiknum.
Svo bara datt eitthvað inn hjá mér.“
Páll Axel hitti úr 10 af 18 þriggja stiga skotum sínum í leikn-
um, 8 af 11 tveggja stiga skotum fóru niður og hann kláraði 8
af 12 vítaskotum sínum.
„Ég var alls ekkert meðvitaður um þetta met Vals. Ég hafði
bara ekki hugmynd um það. Ef ég hefði vitað af þessu og
langað mikið í metið þá hefði ég skorað undir lokin. Þá voru
kjúklingarnir komnir inn og maður var að leyfa þeim að
skjóta,“ sagði Páll Axel. „Það er líka fínt að deila þessu með
Val. Óþarfi að taka þetta af honum. Ef honum þykir mjög
vænt um metið þá má hann bara að eiga það,“ sagði Páll
léttur.
Stórskyttan úr Grindavík gerir ekki ráð fyrir því að þetta met
sitt muni standa lengi.
„Það eru svo svakalega gráðugir guttar að koma upp. Þeir
verða búnir að skora 60-70 stig í leik áður en langt um líður.
Þá kem ég bara aftur á hækjunum og næ metinu aftur,“ sagði
Páll Axel á léttum nótum.
GRINDVÍKINGURINN PÁLL AXEL VILBERGSSON: SETTI GLÆSILEGT STIGAMET ER HANN SKORAÐI 54 STIG
Hélt ég myndi ekki geta neitt í þessum leik
> Lokapróf Loga gegn Portúgal
Logi Geirsson fór ekki með íslenska handboltalandsliðinu
til Þýskalands um helgina og eyddi helginni þess í stað á
bekknum hjá sjúkraþjálfara. Enn er óvissa með þátttöku
Loga á EM. Hann var lengi fjarverandi vegna meiðsla í
öxl og svo hefur hann verið að kenna sér meins í nára
í undirbúningi landsliðsins. Logi sagði við
Fréttablaðið í gær að hann myndi keyra á
fullt gegn Portúgal á morgun og eftir þann
leik kæmi í ljós hvort hann væri tilbúinn
fyrir EM eður ei. Þórir Ólafsson fór heldur
ekki til Þýskalands og hann mun væntan-
lega einnig reyna á sín meiðsli í
Höllinni á morgun.
Enska úrvalsdeildin:
Man. City-Blackburn 4-1
1-0 Carlos Tevez (7.), 2-0 Micah Richards (39.), 3-
0 Carlos Tevez (49.), 3-1 Morten Gamst Pedersen
(71.), 4-1 Carlos Tevez (90.).
STAÐA EFSTU LIÐA:
Chelsea 20 14 3 3 45-16 45
Man. United 21 14 2 5 46-19 44
Arsenal 20 13 3 4 53-23 42
Man. City 20 10 8 2 42-27 38
Tottenham 20 11 4 5 42-22 37
Aston Villa 20 10 5 5 29-18 35
Liverpool 20 10 3 7 37-25 33
Birmingham 21 9 6 6 21-19 33
Fulham 20 7 6 7 26-22 27
Stoke City 20 6 6 8 18-25 24
Sunderland 20 6 5 9 28-31 23
Everton 20 5 8 7 28-34 23
Blackburn 21 5 6 10 20-39 21
Burnley 20 5 5 10 22-40 20
Wolves 20 5 4 11 17-36 19
IE-deild karla:
Njarðvík-ÍR 113-93
Stig Njarðvíkur: Guðmundur Jónsson 19, Kristján
Sigurðsson 19, Jóhann Árni Ólafsson 18, Nick
Bradford 16, Páll Kristinsson 10, Magnús Gunn-
arsson 9, Hjörtur Einarsson 6, Friðrik Stefánsson
4, Grétar Garðarsson 4, Rúnar Erlingsson 4.
Stig ÍR: Nemana Sovic 19, Michael Jefferson 18,
Gunnlaugur Elsuson 16, Hreggviður Magnússon
15, Steinar Arason 14, Ásgeir Hlöðversson 7, Krist-
inn Jónasson 4.
Fjölnir-Stjarnan 80-100
Stig Fjölnis: Chris Smith 25, Magni Hafsteinsson
14, Ægir Steinarsson 11, Arnþór Guðmundsson 8,
Sindri Kárason 6, Sverrir Karlsson 6.
Stig Stjörnunnar: Jovan Zdravevski 30, Justin
Shouse 27, Fannar Helgason 15, Kjartan Kjartans-
son 13, Magnús Helgason 8, Birkir Guðlaugsson
5, Birgir Pétursson 2.
KR-FSu 110-87
Stig KR: Tommy Johnson 30, Semaj Inge 24,
Brynjar Þór Björnsson 21, Jón Orri Kristjánsson
11, Skarphéðinn Ingason 9, Fannar Ólafsson 8,
Steinar Kaldal 5, Ólafur Ægisson 2.
Stig FSu: Richard Williams 28, Chris Caird
28, Aleksas Zimnickas 15, Dominic Baker 13,
Sæmundur Valdimarsson 2, Jake Wyatt 1.
STAÐAN:
Stjarnan 12 10 2 1051-940 20
Njarðvík 12 10 2 1054-887 20
KR 12 10 2 1130-987 20
Keflavík 12 9 3 1056-911 16
Grindavík 12 8 4 1120-950 16
Snæfell 12 8 4 1108-968 16
ÍR 12 5 7 1001-1058 10
Hamar 12 4 8 986-1046 8
Tindastóll 12 4 8 1000-1068 8
Breiðablik 12 2 10 905-1057 4
Fjölnir 12 2 10 917-1076 4
FSu 12 0 12 793-1173 0
ÚRSLIT
HANDBOLTI Endurkoma Ólafs
Stefánssonar í íslenska hand-
boltalandsliðið um helgina var
eftirminnileg en hann skoraði 19
mörk í leikjunum tveimur á móti
Þjóðverjum sem báðir unnust með
fjórum mörkum.
Það var ljóst á frammi-
stöðu Ólafs, áræði hans og
ákveðni, að hann ætlaði að
stimpla sig inn í landslið-
ið með stæl. Ólafur skoraði
tíu mörkum meira en næstu
menn í íslenska liðinu en
næstir honum í markaskori
í leikjunum tveimur voru
þeir Guðjón Valur Sig-
urðsson og Snorri Steinn Guðjóns-
son með 9 mörk hvor.
Það munaði litlu að Ólafur næði
tímamótárangri á landsliðsferlin-
um en hann hefur nú skorað 1375
mörk í 286 landsleikjum. Ólafur
var nefnilega aðeins einu marki
frá því að brjóta hundrað
marka múrinn í fyrsta sinn
á móti einni þjóð. Eftir helg-
ina hefur hann nú skorað 99
mörk á móti bæði Þýska-
landi og Danmörku. Ólafur
hefur skorað 99 mörk í 20
landsleikjum á móti Dönum
og hundraðasta mark-
ið kemur væntan-
lega í leik liðanna
í riðlakeppni
EM í Austur-
ríki.
Ólaf-
ur hefur
þurft fimm
færri leiki til þess að ná 99 mörk-
um á móti Þjóðverjum og þetta er
því ekki í fyrsta sinn sem Ólafur
sýnir snilli sína á móti lærisvein-
um Heiner Brands.
Ólafur hefur nú skorað 6,6 mörk
að meðaltali í umræddum 15 leikj-
um sem er meira en á móti öllum
þeim þjóðum þar sem hann hefur
mætt tíu sinnum eða oftar. Ólaf-
ur er í rauninni aðeins með hærra
meðalskor á móti einni þjóð en
hann hefur skorað 6,8 mörk að
meðaltali í 8 leikjum á móti Make-
dóníu. - óój
FLEST MÖRK ÓLAFS Á
MÓTI EINNI ÞJÓÐ:
Þýskaland 99 mörk (15 leikir/6,6)
Danmörk 99 (20/5,2 í leik)
Noregur 86 (17/5,05)
Svíþjóð 82 (16/5,13)
Pólland 76 (15/5,07)
Ólafur Stefánsson er kominn með 99 mörk í 15 landsleikjum á móti Þýskalandi:
Alltaf góður á móti Þjóðverjum
6,6 MÖRK Í LEIK Ólafur
Stefánsson hefur
skorað sex mörk eða
fleiri í 7 af síðustu
9 leikjum á móti
Þjóðverjum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
N1 Deildin
2009 - 2010
KONUR
Þriðjudagur
Framhús
Kaplakriki
Fylkishöll
Fram - Valur
FH - HK
Fylkir - Víkingur
19:30
19:30
19:30
FÓTBOLTI Svar Toms Hicks yngri
við tölvupósti frá stuðningsmanni
Liverpool ætlar að hafa miklar
afleiðingar fyrir framtíð hans hjá
Liverpool.
Hicks yngri er nú hættur í
stjórn félagsins og er hann hætt-
ur í stjórn hjá móðurfyrirtækinu
Kop Holdings.
Umræddur stuðningsmaður
Liverpool sendi Hicks póst þar
sem hann lýsti yfir áhyggjum
sínum vegna þróunar mála hjá
Liverpool en fékk í staðinn harð-
ort, stutt og móðgandi svar.
Stuðningsmaðurinn fór með
málið í fjölmiðla og heimtaði að
Hicks færi frá félaginu og hann
hefur nú fengið sitt í gegn.
Eftir því sem kemur fram í
News of the World í gær svaraði
Tom Hicks stuðningsmanninum
meðal annars með því að segja
honum að fara til helvítis. - óój
Sonur eiganda Liverpool:
Hættur hjá
Liverpool
FEÐGARNIR Tom Hicks yngri er hættur
hjá Liverpool. NORDIC PHOTOS/AFP
KÖRFUBOLTI Stjarnan, Njarðvík og
KR eru öll jöfn að stigum á toppi
Iceland Express-deildar karla eftir
leiki gærkvöldsins. Stjarnan er þó
enn í efsta sætinu.
Það var mikil eftirvænting í
Njarðvík í gær þegar Nick Brad-
ford spilaði sinn fyrsta leik fyrir
Njarðvík. Bradford hefur áður
spilað með Keflavík og Grindavík
hér á landi og er að flestra mati
einn besti erlendi leikmaðurinn
sem hefur spilað hér á landi.
Bradford stökk beint í byrjunar-
liðið hjá Sigurði Ingimundarsyni
og byrjaði á því að skora fyrstu
körfu Njarðvíkur í leiknum. ÍR
var einnig með nýjan útlending,
Michael Jefferson, sem lék vel
fyrir ÍR-inga en þeir byrjuðu leik-
inn mjög vel og leiddu eftir fyrsta
leikhluta, 21-25.
Nemanja Sovic fór mikinn í liði
ÍR og skoraði alls 16 stig í fyrri
hálfleik. Hann var allt í öllu hjá
ÍR sem leiddi einnig í hálfleik, 45-
50.
Heimamenn gyrtu sig í brók
í síðari hálfleik, stöðvuðu Sovic
þannig að hann skoraði aðeins 3
stig í síðari hálfleiknum. Fyrir
vikið gengu heimamenn á lagið og
leiddu með sjö stigum eftir þrjá
leikhluta, 71-63. Njarðvíkingar
voru einnig sterkari í lokafjórð-
ungnum og lönduðu góðum 20 stiga
sigri, 113-93, sem var þó torsóttur
framan af.
„ÍR-ingar voru að spila mjög vel
og við máttum hafa verulega fyrir
þessu í kvöld,“ sagði Sigurður Ingi-
mundarson, þjálfari Njarðvíkur,
eftir leikinn. Hann var ánægður
með byrjun Bradfords í Njarðvík-
urliðinu.
„Hann spilaði mjög vel þær
mínútur sem hann fékk í leikn-
um. Hann er mikill liðsmaður
sem fellur vel í hópinn. Strákarn-
ir eru ánægðir með hann og þetta
á örugglega eftir að ganga vel,“
sagði Sigurður en margir vilja
meina að með komu Bradfords sé
Njarðvík komið með sterkasta lið
deildarinnar og sé líklegast til að
fara alla leið. Sigurður gerir lítið
úr slíkum vangaveltum.
„Það er erfitt að segja til um
hvort við séum bestir. Það á mikið
eftir að ganga á áður en yfir lýkur
og við sjáum hvað setur,“ sagði Sig-
urður sem var ánægður með strák-
ana sína sem voru ryðgaðir fram-
an af enda langt síðan þeir spiluðu
síðast alvöruleik.
FSu er enn án sigurs í deildinni
eftir tap gegn KR í gær en botnlið-
ið hékk þó aftan í Íslandsmeistur-
unum lengi vel. Stjarnan missteig
sig síðan ekki í Grafarvoginum en
þar fóru þeir Jovan Zdravevski og
Justin Shouse á kostum eins og svo
oft áður í vetur. henry@frettabladid.is
Nick Bradford byrjaði vel
Njarðvík vann sigur í sínum fyrsta leik með Nick Bradford innanborðs. Brad-
ford spilaði vel fyrir Njarðvík í gær er liðið lagði ÍR í Ljónagryfjunni. Toppliðin
þrjú voru öll í eldlínunni í gær og unnu öll örugga sigra í leikjum sínum.
STERKUR Guðmundur Jónsson átti flottan leik fyrir Njarðvík í gær er liðið lagði ÍR.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
HEITUR Carlos Tevez skoraði þrennu fyrir
Man. City í gær er liðið lagði Blackburn
og komst upp í fjórða sæti ensku úrvals-
deildarinnar. NORDIC PHOTOS/GETTY