Fréttablaðið - 12.01.2010, Blaðsíða 46
26 12. janúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
MORGUNMATURINN
LÁRÉTT
2. svei, 6. ólæti, 8. neðan, 9. knæpa,
11. samþykki, 12. greiða, 14. manna,
16. karlkyn, 17. fiskur, 18. drulla, 20.
tvíhljóði, 21. íþróttafélag.
LÓÐRÉTT
1. gljáhúð, 3. tveir eins, 4. rabba, 5.
fyrirboði, 7. súgur, 10. kerald, 13.
yfirbragð, 15. síll, 16. kóf, 19. guð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. fuss, 6. at, 8. upp, 9. krá,
11. já, 12. kemba, 14. karla, 16. kk, 17.
áll, 18. aur, 20. au, 21. fram.
LÓÐRÉTT: 1. lakk, 3. uu, 4. spjalla, 5.
spá, 7. trekkur, 10. áma, 13. brá, 15.
alur, 16. kaf, 19. ra.
„Þetta var algjör snilld, geðveikt
gaman,“ segir Þorgeir Gunnars-
son, eða Toggi. „Ég væri alveg til í
að gera þetta oftar.“
Toggi verður brátt einn fræg-
asti dvergur landsins því nýver-
ið lék hann í sjónvarpsauglýsingu
um smálán í leikstjórn poppar-
ans Björns Jörundar Friðbjörns-
sonar. Hún verður frumsýnd í vor
og á vafalítið eftir að vekja mikla
athygli. Þar er Toggi í hlutverki
handrukkara sem krefur pabba
Ólafs Ragnars úr Fangavaktinni
um greiðslu, sem Júlíus Brjánsson
túlkar rétt eins og í þáttunum.
Þrátt fyrir að leikurinn í auglýs-
ingunni sé að baki hefur hinn smái
en knái Toggi ekki sagt skilið við
skemmtanabransann því nýlega
fékk hann starf á skemmtistaðn-
um Sódóma Reykjavík eftir að hafa
áður starfað á leikskóla. Á Sódómu
nýtur hann sín mjög vel og er bara
sáttur við guð og menn. „Ég er ekk-
ert að fara að hætta þarna. Ég er að
tína saman glös og bara það sem er
hægt að gera á bar, ég er í því öllu,“
segir hann og áréttar að smæð sín
hái sér ekkert í starfinu. „Ef það
er eitthvert vandamál bjarga ég
mér með stól eða einhverju. Á bar-
borðinu þar sem starfsmennirnir
eru við barinn er búið að raða rauð-
um kókkössum þar sem ég hleyp
eftir eða stend upp á, þannig að ég
næ alls staðar upp á barborðið.“
Starfið á Sódómu fékk hann
þegar hann fór þangað eitt kvöldið
að skemmta sér. „Ég labba þarna
inn og mæti Eyfa og Össuri [eig-
endum staðarins] í stiganum. Þeir
spyrja hvað ég heiti og spyrja síðan
hvort ég vilji vinnu og ég þigg það,“
segir Toggi, sem í ofanálag skart-
ar tveimur húðflúrum. Áletrun
nýrra húðflúrsins er Crazy like a
fox, hvorki meira né minna. „Ég er
alveg snargeggjaður,“ viðurkennir
hann og hlær.
Togga er alls ekkert illa við að
vera kallaður dvergur og reyn-
ir bara að gera gott úr hlutunum.
„Ég geri alltaf grín að sjálfum mér.
Það er ekkert gaman að því að vera
svona ef maður hefur ekki húmor
fyrir þessu.“
freyr@frettabladid.is
ÞORGEIR GUNNARSSON: HEFUR HÚMOR FYRIR SJÁLFUM SÉR
Handrukkar pabba Ólafs
Ragnars í auglýsingu
MEÐ TVÖ TATTÚ Toggi sýnir húðflúrin sín tvö, þar á meðal hið nýja með áletruninni
Crazy like a fox. Hann viðurkennir að hann sé snargeggjaður. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Þær eiga víst margt sameiginlegt,
þær Eva María
Jónsdóttir og
Ragnhildur
Steinunn,
fyrir utan þá
staðreynd
að þær eru
að kynna
forkeppni
Ríkissjón-
varpsins fyrir
Eurovision.
Þær eiga nefnilega báðar von á
barni síðar í sumar. Eva María á
þrjú börn fyrir en þetta verður
fyrsta barn Ragnhildar og unnusta
hennar, knattspyrnumannsins
Hauks Inga Guðnasonar. Þau hafa
verið saman í þrettán ár en Eva
María og hjartalæknirinn Sigurpáll
Scheving hafa verið saman síðan
síðasta sumar, ef marka má Séð
og heyrt.
Og meira af Eurovision
því væntanlega verð-
ur það í fyrsta skipti
í sögunni sem tveir
trommarar leika undir
í Eurovision-lagi á
Íslandi þegar Menn
ársins troða upp
næstkomandi
laugardag.
Annar þeirra verður Hannes Þór
Friðbjörnsson, sem þekktastur er
fyrir slagverksleik sinn í Buffinu, en
lag Manna ársins heitir Gefstu ekki
upp og er eftir Harald Vigni Svein-
björnsson. Textinn er eftir Sváfni
Sigurðsson sem eitt sinn var hægri
hönd Magnúsar Geirs Þórðarsonar í
Borgarleikhúsinu.
Stefán Karl Stefánsson náði með
frammistöðu sinni að vekja áhuga
fólks innan kvikmyndabransans í
Hollywood á sjálfum sér. Stefán
þótti fara á kostum
í hlutverki Trölla í
samnefndum söngleik
sem sýndur var í
Pantages-leikhúsinu á
síðasta ári. Stefán hefur
að undanförnu mætt
í nokkrar prufur fyrir
kvikmyndahlutverk
og er, venju sam-
kvæmt, hóflega
bjartsýnn.
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Þetta er bara æðislegt,“ segir söng-
konan Hera Björk en lagið Someday
sem hún söng í undankeppni dönsku
Eurovision-keppninnar í fyrra, hefur
verið kjörið besta Eurovision-lag síð-
asta árs sem komst ekki í lokakeppn-
ina í Moskvu.
Það voru aðdáendaklúbbar Eurov-
ision úti um allan heim sem kusu lagið
í efsta sæti. Keppnin nefnist Second
Chance Contest og hefur verið hald-
in í mörg ár. Hera segir útnefninguna
ekkert endilega hafa komið sér í opna
skjöldu. „Ég er búin að vera tilnefnd
svolítið á þessum síðum úti í heimi,
þannig að ég vissi að það var mik-
ill áhugi og lagið var mjög vinsælt.
En þetta kom yndislega á óvart samt
sem áður. Þetta þýðir að þeir hefðu
viljað sjá mig í lokakeppninni,“ segir
hún. Lagið endaði í öðru sæti í dönsku
undankeppninni og hefði vafalítið náð
langt í lokakeppninni hefði það kom-
ist áfram, enda ekta Eurovision-lag
undir sterkum ABBA-áhrifum.
Hera tekur þátt í undankeppni Eur-
ovision hér heima á lokakvöldinu 23.
janúar með lagið Je ne sais quoi sem
er eftir hana og Örlyg Smára. Hann
var einmitt einn af lagahöfundum
Someday. Lagið er að sögn Heru sann-
kallaður epískur stuðslagari. „Ég er
mjög spennt að fá að spreyta mig og
flytja lagið fyrir Íslendinga og síðan
eru allir þessir aðdáendaklúbbar að
horfa á þetta á netinu,“ segir hún og
ætlar sér að sjálfsögðu sigur: „Maður
er ekkert að keppa án þess að taka
þetta alla leið.“
- fb
Hera vinnur Eurovision-keppni
HERA BJÖRK
Lagið Someday
hefur verið
kjörið besta
Eurovision-lagið
sem komst ekki
í lokakeppnina.
R
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu átta.
1 Nauthólsvík.
2 Ólafur Örn Haraldsson.
3 54 stig.
Auglýsingasími
– Mest lesið
Matreiðslubók Yesmine Olsson, Framandi og
freistandi, indversk og arabísk matreiðsla,
var tilnefnd til Gourmand World Cookbook-
verðlaunanna í flokknum besta asíska mat-
reiðslubókin fyrir skemmstu. Bókin er nú
komin í úrslit.
Alls 24 bækur voru tilnefndar í flokki
asískrar matreiðslu en aðeins fjórar keppa
til úrslita og er bók Yesmine þar á meðal.
„Þetta kom mér mjög á óvart, það er svolítið
fyndið að íslensk bók um indverska matar-
gerð skuli vera að keppa til úrslita í þessum
flokki,“ segir Yesmine sem verður viðstödd
bókamessuna sem hefst 11. febrúar. Hún
segir dómarana hafa heillast af hugmynd-
inni í kringum bókina þar sem réttir úr bók-
inni eru reiddir fram við Bollywoodtónlist
og dans líkt og í Turninum í Kópavogi. Að
auki hafa skipuleggjendur bókamessunn-
ar boðið Yesmine að vera með opnunaratriði
hátíðarinnar sem yrði þá atriði úr Bolly-
wood-sýningunni og hyggst Yesmine syngja
eitt sönglag á hindí við það tækifæri auk
þess sem hún mun sýna nokkra dansa.
Hún segist vera spennt en taugaóstyrk
yfir því að koma fram á hátíðinni og segist
helst kvíða því að þurfa að elda fyrir mann-
skapinn. „Ég viðurkenni það fúslega að ég
kvíði því mest að þurfa að elda fyrir fólk-
ið því ég er enginn kokkur þótt ég elski að
elda. Það er mikið af þekktum kokkum sem
taka þátt og Jamie Oliver hefur meðal ann-
ars unnið til verðlauna á þessari hátíð,“
segir Yesmine. Arngrímur Fannar Har-
aldsson, eiginmaður hennar, mun ferðast
með henni til Frakklands, en hann vann að
útgáfu bókarinnar ásamt Yesmine. - sm
Bók Yesmine kemst í úrslit
MIKILL HEIÐUR Yesmine Olsson segir velgengni
matreiðslubókar sinnar, Framandi og freistandi,
indversk og arabísk matreiðsla, hafa komið sér
skemmtilega á óvart.
„Ég fæ mér sterkt kaffi. Það er
ekkert flóknara en það.“
Páll Axel Vilbergsson, körfuknattleiks-
maður í liði Grindavíkur.