Fréttablaðið - 15.01.2010, Síða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Ég kaupi oft tilbúið deig á ein-hverjum pitsustað eða útbý það sjálf en þá vil ég láta það bíða í ísskáp yfir nótt til að losna við
mesta gerbragðið,“ segir Ágústa sem leikur sér með hið ólíklegasta álegg á pitsurnar sínar.Pitsuna sem hún gefur upp-skrift að valdi hún þar sem hún erlétt og fersk o h
Afbragðs kreppupitsaÁgústa Johnson, framkvæmdastjóri Hreyfingar, býr ósjaldan til pitsu í matinn. Hún notar hið ólíklegasta
álegg á borð við kartöflur, kjúkling, humar og afganga en sjaldnast hina hefðbundnu tómatsósu.
Ágústa Johnson með létta og ferska pitsu með mozzarella-osti, klettasalati, tómötum og hvítlauk.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Ólívuolía
1-2 hvítlauksrifsöxuð steinseljasalt og pipar
Blandað saman og smyrjið á ú fldei ið
LÉTT OG GÓÐ PITSA Í ÁRSBYRJUN
ÍSLENSKA KOKKALANDSLIÐIÐ er komið með sérvef á
síðunni www.freisting.is vegna heimsmeistarakeppninnar Expogast-
Culinary World Cup í Lúxemborg sem liðið tekur þátt í dagana 20.-
24. nóvember 2010. Þá má þess geta að þátt um liðið og undirbún-
ing þess fyrir mótið er að finna á Netinu en þættirnir eru sýndir á
sjónvarpsstöðinni ÍNN undir heitinu Ertu í mat?
9. janúar - 28. febrúarHinn árvissi 4ra rétta „Allt í steik“ seðill gleður bragðlaukana. Skyldumæting fyrir alla sem unna góðum mat á góðu verði.
Tilvalið fyrirárshátíðina!
HUMAR OG SALTFISKKRÓKETTUR
með tómatsultu, blönduðu salati og humarmajonesiRJÓMALÖGUÐ SJÁVARRÉTTASÚPA
með steiktum tígrisrækjum, rjómatoppi og karrýolíu
FISKUR DAGSINSferskasti hverju sinni, útfærður af matreiðslumönnum Perlunnar (4.990 kr.)PÖNNUSTEIKTUR FASANImeð polentu og kóngasveppasósu (5.590 kr.)PRIME RIBSmeð kartöfluturni, Bearnaisesósu og steinseljurótarmauki (6.590 kr.)
NAUTALUNDmeð grænmetismósaík og blönduðum skógarsveppum (7.590 kr.)
SÚKKULAÐIFRAUÐmeð hindberjahlaupi, ferskum ávöxtum g
1
2
3
4
VELDU MILLI FJÖGURRA AÐALRÉTTA
Góð tækifærisgjöf!
Fréttablaðið er með 143% meiri
lestur en Morgunblaðið.
Meðallestur á tölublað,
höfuðborgar svæðið, 18 – 49 ára.
Könnun Capacent í ágúst 2009 – október 2009.
Allt sem þú þarft...
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ
71,4%
29,3%
FÖSTUDAGUR
15. janúar 2010 — 12. tölublað — 10. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
ÁGÚSTA JOHNSON
Notar óvenjulegt álegg
á pitsurnar sínar
• matur • út að borða
Í MIÐJU BLAÐSINS
Syngur í
Carnegie Hall
Bylgja Dís
Gunnarsdóttir
lenti í fyrsta sæti í
alþjóðlegri söngv-
arakeppni.
TÍMAMÓT 20
Ofstolt og fréttafréttir
„Er okkur virkilega svona mikil-
vægt að aðrir taki eftir þegar við
vinnum góðverk?“ skrifar Pawel
Bartoszek.
Í DAG 16
Enn meiri
verðlækkun
Útsalan í fullum gangi
HEILBRIGÐISMÁL Einungis þriðjung-
ur ungra lækna sem eru í sérnámi
erlendis er ákveðinn í því að snúa
aftur til Íslands að loknu námi.
Þetta gengur þvert á reynslu innan
íslensku læknastéttarinnar þar sem
mikill meirihluti lækna hefur löng-
um verið staðráðinn í að snúa aftur
heim að námi loknu. Nýleg könnun
á vegum Læknafélags Íslands gefur
vísbendingar um þessa þróun.
Birna Jónsdóttir, formaður
Læknafélags Íslands (LÍ), tekur
fram að niðurstöður könnunarinnar
séu í sínum huga aðeins vísbending
um þróun næstu ára. Svör þurfi frá
fleiri læknum til að fá skýra mynd.
„Hlutföllin í könnuninni eru engu
síður mjög athyglisverð. Fyrir ára-
tug eða tveim ætluðu allir íslensk-
ir læknar í sérnámi heim. Níu af
hverjum tíu stóðu við þau áform sín.
Nú bregður hins vegar svo við að í
þessari könnun skiptust menn í þrjá
jafna hópa. Þeir sem ætla heim, þeir
sem ætla ekki heim og svo þeir sem
eru ekki búnir að taka ákvörðun.“
Um mitt ár í fyrra bjuggu 220 lækn-
ar undir fertugu utan landsteinana,
við nám og störf.
Í ljósi þessara niðurstaðna og
annarra rannsókna á vinnuafli
íslenskra lækna hefur LÍ áhyggur
af því að í sumum stéttum verði ein-
göngu eftir eldri læknar sem kom-
ast á eftirlaun innan tíu ára.
Valentínus Þór Valdimarsson,
unglæknir og stjórnarmaður í
Læknafélagi Íslands, vekur athygli
á stöðu íslenskra unglækna í grein
í nýjasta tölublaði Læknablaðsins.
Hann segir að erfiðlega gangi að
ráða í stöður lækna sem auglýst-
ar eru hér á landi og bætir við: „Á
síðum Læknablaðsins streyma inn
auglýsingar um atvinnutilboð að
utan og fréttir berast um æ fleiri
lækna sem eru á leið til útlanda í
vinnu. Vitsmunaflótti er því orðinn
staðreynd á meðal stéttarinnar.“
Óþarft er að fjölyrða um niður-
skurð í heilbrigðiskerfinu, hann er
á allra vitorði. Hins vegar hafa for-
svarsmenn heilbrigðisstofnana og
fagfélaga heilbrigðisstarfsfólks lýst
yfir áhyggjum sínum af flótta úr
stéttum lækna og hjúkrunarfræð-
inga vegna niðurskurðar.
Valentínus segir í grein sinni að
aðferðafræði stjórnvalda og stjórn-
enda stærstu heilbrigðisstofnana
við niðurskurðinn muni að óbreyttu
fæla fólk frá störfum hér á landi.
- shá
Þriðjungur lækna í sérnámi
segist ekki koma heim aftur
Mikil hugarfarsbreyting virðist meðal lækna sem eru í sérnámi. Erfiðlega gengur að ráða í stöður hérlendis
á meðan mikil eftirspurn er eftir íslenskum læknum að utan, segir stjórnarmaður í Læknafélaginu.
BESTI FLOKKURINN
Ragnar sagði nei
við Jón Gnarr
Ragnar Bragason neitaði þátttöku
FÓLK 34
Tæknileg mistök
hluti af
skýringunni
Karen Pálsdóttir
heyrði ekki rétta
tóntegund.
FÓLK 34
VIÐSKIPTI Fjármálaeftirlitið hefur
lokið rannsókn á fimmtíu málum
sem tengjast falli Glitnis, Kaup-
þings og Landsbankans haustið
2008 og eru 27 enn í rannsókn.
Nokkur mál eru á algjöru frum-
stigi og líklegt að mörg mál bætist
við í tengslum við yfirtöku eftir-
litsins á Spron, Straumi og Spari-
sjóðabankanum. Mörg málanna
eru afar flókin og teygja anga
sína yfir landamæri.
Þetta kemur fram í grein sem
Helga Jónsdóttir, sviðsstjóri á
verðbréfasviði Fjármálaeftirlits-
ins, skrifar í Fréttablaðinu í dag.
Helga bendir á að eftirlitið hafi
afgreitt hátt í níutíu viðurlagabrot
í fyrra og sent 31 til embættis sér-
staks saksóknara, sem vinni að
þeim. Tveimur hafi verið vísað til
efnahagsbrotadeildar lögreglunn-
ar og fimm til ríkissaksóknara.
Af þessum níutíu málum hafi
stjórnvaldssektir og sættir náðst
í 51 máli. Þá eru ótalin 22 mál
sem Seðlabankinn sendi eftirlit-
inu og varða meint brot á lögum
um gjaldeyrisviðskipti.
- jab / sjá síðu 18
Fjármálaeftirlitið rannsakar enn 27 mál af 77 sem tengjast falli bankanna:
Fimmtíu málum lokið hjá FME
Þurrt og bjart norðan til Í
dag verða suðaustan 5-13 m/s,
hvassast syðst. Rigning eða skúrir
SA-lands en SV-til í kvöld. Hiti
víðast 0-8 stig.
VEÐUR 4
1
1
4
6
4
Logi verður með
Guðmundur Guð-
mundsson landsliðs-
þjálfari hefur valið
hópinn fyrir EM.
Logi Geirsson
er klár í slag-
inn og fer til
Austurríkis.
ÍÞRÓTTIR 30
Stjórn og stjórnarandstaða:
Sáttatónn í
Icesave-deilum
EFNAHAGSMÁL Fulltrúar ríkisstjórn-
ar og stjórnarandstöðu ræddu í
gærkvöldi um drög að samkomu-
lagi um hvernig halda skyldi utan
um hugsanlegar viðræður við
Breta og Hollendinga um Icesave-
reikningana, ef þeim mætti hrinda
af stað.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, segist sátt-
ur eftir fundinn, sem hafi verið
mikilvægt skref í rétta átt.
„Við ætlum að hittast aftur á
morgun [í dag] og ég hef trú á
að þá klárist þetta,“ segir hann.
Ekki hafi verið rætt um að hætta
við þjóðaratkvæðagreiðsluna,
heldur verði undirbúningi hennar
haldið áfram. „Það eru allir með
báðar lappir á jörðinni ennþá,“
segir Bjarni.
Ekki náðist í forystumenn
stjórnarinnar í gærkvöldi, en for-
sætisráðherra hefur lýst sig von-
daufa um möguleika á nýjum við-
ræðum við Breta og Hollendinga.
- kóþ / sjá síðu 4
GIFTUSAMLEG BJÖRGUN Í GÆR Íslenskir björgunarmenn bera hér tvær ungar konur út úr húsarústum Caribbean Market, sem
er matvælamarkaður í Port-au-Prince, höfuðborg Haítí. Þegar blaðið fór í prentun var enn unnið að björgun þriðju konunnar.
Í gærkvöldi skaut alþjóðlegi Rauði krossinn á að um fimmtíu þúsund hefðu farist í jarðskjálftanum. Íbúar hafa kvartað undan
stjórnleysi í landinu, en mörg ráðuneyti og höfuðstöðvar friðargæslu Sameinuðu þjóðanna hrundu í skjálftanum. sjá síður 10 og 12
M
YN
D
/L
A
N
D
SB
JÖ
R
G