Fréttablaðið - 15.01.2010, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 15.01.2010, Blaðsíða 36
24 15. janúar 2010 FÖSTUDAGUR menning@frettabladid.is Í dag kl. 12 Í Galleríi Ráðhús, sem er í bæjar- stjórnarsal ráðhússins á Akureyri, opnar listakonan Anna Gunnars- dóttir sýninguna Mikado. Verkin eru unnin út frá japanska spilinu Mikado þar sem leikmenn spila með prik. Öll verkin á sýningunni eru unnin með shibori-tækni og ind- ígólituð. Shibori er gömul japönsk tækni sem notuð er við að búa til munstur á efni sem síðan eru lituð. > Ekki missa af Á morgun verður farin borgar- ganga með Hjálmari Sveins- syni. Áætlanir um viðamikla uppbyggingu á hafnarsvæðinu hafa verið settar fram. Sumar þeirra hafa reynst vera loft- kastalar í bóluhagkerfi. Hvað verður um austurbakkann þar sem tónleikahúsið rís og hvað verður um svokallað Mýrargötuskipulag? Gangan byrjar við styttuna af Ingólfi á Arnarhóli kl. 12. Þaðan verður gengið um hafnarsvæðið og vestur á Granda. Hin reffilega þungarokkshljómsveit Sólstaf- ir er fyrsta íslenska hljómsveitin sem bókuð er á Hróarskelduhátíðina í ár. Annar disk- ur Sólstafa, sem bandið gerir hjá finnska plötufyrirtækinu Spinefarm, kom út í fyrra og heitir Köld. Fyrir var Masterpiece of Bitterness sem kom út 2005. Það verður mikið að gera í sumar hjá Sól- stöfum. Bandið er bókað á sjö tónlistarhátíð- ir til að fylgja plötunni eftir. Hún hefur feng- ið góða dóma í tímaritum (til dæmis 10/10 í Metal.de og 8/10 í Metal Hammer) og birtist víða á listum yfir bestu plötur ársins. Stærsta rokktímarit Finnlands, Inferno, valdi hana til að mynda bestu erlendu plötu ársins. Líklegt er að fleiri íslenskar sveitir bætist við á Hróarskelduhátíðina sem haldin er 1.-4. júlí. Af þeim fáu hljómsveitum sem nú hefur verið tilkynnt um eru Muse og Pavement þær þekktustu. - drg Sólstafir á Kelduna REFFILEGIR Sólstafir gera það gott með „Köld“. Tveir Englendingar verða í aðal- hlutverki á Rosenberg um helg- ina, þeir Tom Hannay og Clive Carroll. Tom Hannay er 24 ára gamall gítarleikari og söngvari, sem hefur verið búsettur á Íslandi í eitt og hálft ár. Hann hefur spil- að á þó nokkrum tónleikum á þess- um tíma, til dæmis hjá Hemma og Valda og á Rosenberg. Einnig hefur hann komið fram á tónlist- arhátíðum í Englandi. Hann spil- ar þægindapopp með áhrifum frá Jeff Buckley, James Taylor og Smokey Robinson, svo einhverjir séu nefndir. Tom kom hingað fyrst árið 2008 til að fara á Aldrei fór ég suður-hátíðina á Ísafirði, en heill- aðist svo af íslensku tónlistarlífi og landi og þjóð að hann ákvað að setjast hér að í einhvern tíma. Tom stendur fyrir Íslandsferð Clives Carroll. Sá er 34 ára gam- all gítarleikari og lagasmiður, sem hefur spilað á gítar frá blautu barnsbeini. Hann útskrifaðist með hæstu einkunn frá Trinity College í London 1998 og er mikill töfra- maður með gítarinn. Hann hefur komið víða við, meðal annars spil- að fyrir soldáninn í Oman og hefur verið ráðinn af Madonnu til að spila á einkatónleikum. Clive hefur gefið út þrjár plötur sem allar innihalda einungis lög eftir hann. Sú síðasta heitir Life in Colour og fékk mjög lofsamlega dóma eins og hinar plöturnar. Tom og Clive koma fram í kvöld og annað kvöld á Rosenberg á Klapparstíg. Á morgun bætist Böddi úr Dalton við dagskrána og spilar lög af sólóplötu sem hann gaf út í fyrra. - drg Enskir gítarleikarar á Rosenberg ÞÆGINDAPOPPARI Tom Hanney og fleiri á Rosenberg í kvöld. MYND/JOE RITTER Í kvöld frumsýnir Vestur- port útgáfu sína af Faust í Borgarleikhúsinu. Sagan er aldagömul og ættuð frá Þýskalandi. Fjöldinn allur af útgáfum af Faust hefur verið sviðsettur, kvikmynd- aður og sunginn. Leikrit Goethe er þekktast, en aðrar útgáfur eru til dæmis skáldsagan Doctor Faust- us eftir Thomas Mann og Meist- arinn og Margaríta eftir Mikhaíl Búlgakov, sem styðst við söguþráð- inn. Fjörutíu ár eru síðan sagan um Faust fór síðast á leiksvið á Íslandi. Í leikritinu segir frá Faust. Hann er leikinn af Þorsteini Gunnarssyni og Birni Hlyni Haraldssyni, sem leikur hann á yngri árum. Faust er kominn á efri ár þegar hann upp- götvar að líf hans hefur ekki alveg verið jafn hamingjuríkt og hann hefði viljað. Mefistó (Hilmir Snær Guðnason) freistar hans og segist geta kynnt hann fyrir sannri ham- ingju í hinu ljúfa lífi skemmtunar og nautna. Faust tekur boðinu og handsalar veðmálið með því skil- yrði að ef hann finni hamingjuna undir handleiðslu Mefistós, þá eignast djöfullinn sál hans. Veð- málið verður fyrst tvísýnt þegar Faust kynnist hinni hreinu, sak- lausu Grétu (Unnur Ösp Stefáns- dóttir) sem dregst inn í þessa eilífu baráttu góðs og ills. Búast má við mögnuðu sjónar- spili og háloftaatriðum. Fundnir eru ferskir listrænir fletir á efni- viðnum. Sýn leikstjórans Gísla Arnar Garðarssonar er óbeisluð og fer á flug með leikurunum í óhefð- bundinni leikmynd Axels Hallkels Jóhannessonar. Frumsamin tónlist Nicks Cave og Warrens Ellis rekur svo smiðshöggið á verkið. Áhorfendur mega búast við að sjá þessa klassísku sögu lifna við og skína í alveg nýju ljósi í meðförum Vesturports. - drg Faust Vesturports fer á svið SJÓNARSPIL Myndir frá æfingu Vesturportsins á Faust. Fjörutíu ár eru síðan Faust var síðast settur upp í íslensku leikhúsi en það eru þeir Þorsteinn Gunnarsson og Björn Hlynur Haraldsson sem leika sjálfan Faust. Hilmir Snær er síðan Mefistó. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Lau 16/1 kl. 15:00 Aukas. U Lau 16/1 kl. 19:00 U Lau 23/1 kl. 15:00 Aukas. U Lau 23/1 kl. 19:00 U Fös 29/1 kl. 19:00 Ö Oliver! (Stóra sviðið) Brennuvargarnir (Stóra sviðið) Fös 15/1 kl. 20:00 U Fim 21/1 kl. 20:00 U Fös 22/1 kl. 20:00 Ö Fim 28/1 kl. 20:00 Ö Fös 5/2 kl. 20:00 Ö Lau 30/1 kl. 15:00 U Lau 30/1 kl. 19:00 Ö Lau 6/2 kl. 15:00 Ö Lau 6/2 kl. 19:00 Ö Sun 14/2 kl. 15:00 Ö Sun 14/2 kl. 19:00 Ö Sun 21/2 kl. 15:00 Ö Sun 21/2 kl. 19:00 Sun 28/2 kl. 15:00 Ö Sun 28/2 kl. 19:00 Ö Fös 12/2 kl. 20:00 Frums. U Lau 13/2 kl. 20:00 2. K U Fös 19/2 kl. 20:00 3 K Ö Gerpla (Stóra sviðið) Lau 20/2 kl. 20:00 4. K Ö Fim 25/2 kl. 20:00 Aukas. U Fös 26/2 kl. 20:00 5. K Ö Lau 27/2 kl. 20:00 6. K Ö Fös 5/3 kl. 20:00 7. K Ö Lau 6/3 kl. 20:00 8. K Ö Oliver!  MBL, GB. Nýjar sýningar komnar í sölu. „Besta leiksýning ársins“ MBL, IÞ. Sýningum fer fækkandi. Miðasala hafin - tryggið ykkur sæti á fyrstu sýningar! Lau 16/1 kl. 15:00 Ö Sun 17/1 kl. 16:00 Sindri silfurfi skur (Kúlan) Lau 23/1 kl. 15:00 Sun 24/1 kl. 16:00 Lau 30/1 kl. 15:00 Sun 31/1 kl. 15:00 Undurfalleg sýning fyrir yngstu leikhúsgestina! Lau 13/3 kl. 15:00 Frums. U Sun 14/3 kl. 13:00 U Sun 14/3 kl. 15:00 U Lau 20/3 kl. 13:00 U Lau 20/3 kl. 15:00 U Fíasól (Kúlan) Sun 21/3 kl. 13:00 Ö Sun 21/3 kl. 15:00 U Lau 27/3 kl. 13:00 Lau 27/3 kl. 15:00 Sun 28/3 kl. 13:00 Sun 28/3 kl 15:00 Lau 10/4 kl 13:00 Lau 10/4 kl 15:00 Sun 11/4 kl 13:00 Sun 11/4 kl 15:00 Sprellfjörug sýning um gleðisprengjuna ómótstæðilegu! Mið 27/1 kl. 20:00 Bólu-Hjálmar (Kúlan) Fim 28/1 kl. 20:00 Gestasýning Stoppleikhópsins. Aðeins tvær sýningar. Ævintýraferð um undraheima vatnsins í Borgarleikhúsinu „Yndisleg sýning fyrir börn frá sex eða átta ára aldri og foreldra þeirra, afa og ömmur.“ María Kristjánsdóttir, eyjan.is Miðasala er í síma 568 8000 og á borgarleikhus.is Aukasýningar Sunnudagana 17. og 24. janúar kl. 14.00

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.