Fréttablaðið - 15.01.2010, Page 12
12 15. janúar 2010 FÖSTUDAGUR
Hamfarir á Haítí
Hafðu samband
sími
Á þú sem
444
Arion banki kynnir
lausnir vegna íbúðalána
Eingöngu vaxtagreiðslur í eitt ár
Viðskiptavinir með íbúðalán geta óskað eftir að greiða eingöngu vexti í eitt ár.*
Kjör verðtryggðra íbúðalána haldast óbreytt
Íbúðalán með föstum verðtryggðum vöxtum, sem veitt hafa verið frá árinu 2004,
breytast ekki til hækkunar út lánstíma lánanna.
Engar uppboðsbeiðnir íbúðalána út árið 2010
Bankinn mun fresta öllum uppboðsbeiðnum til sýslumanna út árið 2010.
Íbúðalán
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
A
R
I
48
63
6
01
/1
0
* Leiðin býðst ekki þeim sem eru með erlend lán, né heldur þeim sem skipta úr erlendum lánum og velja
30% höfuðstólslækkun og 6% óverðtryggða vexti.
Íslenska alþjóðabjörgunarsveit-
in hafði bjargað tveimur ungum
konum og var að ná þeirri þriðju
úr rústum matvörumarkaðar
þegar blaðið náði tali af Lárusi
Bjarnasyni, fjarskiptamanni, rétt
fyrir klukkan átján að íslenskum
tíma í gær.
Konurnar voru ekki slasaðar,
en þjáðust af vatnsskorti og fengu
vökva í æð.
„Ástandið hér er skelfilegt en
við erum í nokkuð góðum gír,“
sagði Lárus Björnsson, fjarskipta-
maður hjá Íslensku alþjóðabjörg-
unarsveitinni. „Við tókum við í
[gær]morgun af sveit heimamanna
sem hafði verið að störfum um
nóttina,“ segir hann.
Íslendingar á svæðinu eru alls
35 talsins og hafa sett upp búðir á
flugvellinum í Port-au-Prince, höf-
uðborg Haítí. Þeir gera ráð fyrir
að vera á staðnum í allt að sex
sólarhringa í viðbót.
Sveitin var í hópi þeirra björgun-
arsveita sem fyrstar komu á ham-
farasvæðið í gær, en hinar eru frá
Kína, Bandaríkjunum, og Belgíu.
Hópar frá íslensku og bandarísku
sveitunum voru þeir fyrstu til að
hefja eiginleg björgunarstörf á
svæðinu, en heimamenn sjá um
skipulagningu.
Konurnar fundust í rústum
fjögurra hæða byggingar sem
áður hýsti verslanamiðstöðvar á
Caribbean Market.
Um níu þúsund friðargæsluliðar
Sameinuðu þjóðanna eru á Haítí
og gæta þeir flugvallarsvæðis-
ins. Nokkuð hefur borið á glæp-
um í kjölfar jarðskjálftanna og
íslenska sveitin ætlar að biðja um
að friðargæsluliðar fylgi henni við
björgunarstörfin.
„Okkur finnst við nú ekki að í
mikilli hættu en til að forðast að
mönnum líði illa er kannski betra
að hafa einn eða tvo friðargæslu-
liða með í för,“ segir Lárus. Hann
þakkar að lokum stuðning að
heiman og biður að heilsa heim.
klemens@frettabladid.is,
olikr@frettabladid.is
Ástandið í borginni skelfilegt
Íslenska björgunarsveitin fann þrjár konur í rústum matvörumarkaðar í höfuðborg Haítí í gær. Þær eru
allar á lífi. Sveitin var meðal fyrstu á svæðið. Friðargæsluliðar fylgja íslensku sveitinni við björgunarstörf.
Átta manns, sem lentu í jarð-
skjálftanum á Haítí, voru væntan-
legir til Keflavíkurflugvallar í
nótt. Þá var flugvél Icelandair,
sem flutti íslensku rústabjörg-
unarsveitina til Haítí væntanleg
heim á ný. Íslensk stjórnvöld
buðu fram vélina til að ferja
útlendinga frá Haítí.
Fullri vél var fyrst flogið til
Bahamaeyja en sex Þjóðverjar,
Breti og Frakki þáðu boð um
að fara með vélinni alla leið til
Íslands. - pg
Flóttafólk frá Haítí til Íslands:
Þáðu far frá
Haítí til Íslands
HAMFARASVÆÐI Þessi þýska móðir
með þrjú lítil börn var meðal þeirra sem
flugu frá Haítí með vélinni sem flutti
rústabjörgunarsveitina á staðinn til Port-
au-Prince. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR
Hlín Baldvinsdóttir, sendifulltrúi
Rauða kross Íslands, hélt af stað
til Haítí síðdegis í gær. Hlín kemur
til með að gegna stöðu fjármála-
stjóra í sérfræðingateymi Alþjóða
Rauða krossins.
Hún segist hafa aðstöðu til að
bregðast skjótt við og halda til
starfa, verandi komin á virðulegan
aldur. „Ég er orðin sex barna amma
og er í þannig stöðu að síðastliðin
tíu ár hef ég unnið fyrir Rauða
krossinn og farið fyrir þá í ferðir.“
Hlín segir að núna hafi hún
verið stödd heima að skoða hvaða
verkefni kynnu að vera fyrir Rauða
krossinn á árinu þegar neyðar-
kall barst á miðvikudagskvöld frá
Alþjóða Rauða krossinum. Innan við
sólarhring síðar var Hlín lögð af stað
til Haítí, en í gær voru tíu neyðar-
teymi Alþjóða Rauða krossins á leið
þangað.
Hlín segist hins vegar lítið vita
hvað bíði þegar út er komið hvað
aðbúnað eða húsnæði varðar. - óká
PAKKAÐ Neyðarkall barst frá Alþjóða
Rauða krossinum á miðvikudagskvöld
vegna Haítí. Hér sést Hlín Baldvins-
dóttir um hádegisbil í gær að pakka
eftir að hafa brugðist við kallinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Veit ekki hvað
bíður á áfangastað
Halldór Elías Guðmundsson var á
gangi ásamt hópi skólafélaga um götur
Jacmel á Haítí þegar jarðskjálftinn
reið yfir. Hann slapp ómeiddur en hluti
hótelsins hrundi, þar á meðal herbergi
Halldórs, að sögn Jennýjar Brynjars-
dóttur, eiginkonu hans.
„Þau voru ekki inni á hótelinu og það
var guðs mildi,“ sagði Jenný í samtali
við Fréttablaðið frá heimili þeirra í
Ohio.
Að sögn Jennýjar gisti hópurinn á
flugbraut flugvallar í borginni fyrstu
nóttina eftir skjálftann. Í gær voru þau
komin undir verndarvæng Sameinuðu
þjóðanna.
Óljóst er hvenær þau komast frá
landinu. „Hann er fyrst og fremst sleg-
inn yfir því að geta ekki aðstoðað,“
segir Jenný. „Hann leggur mikla
áherslu á að það þarf hjálp til Haítí.“
Jenný sagðist þakklát fyrir það að vita
af Halldóri Elías í góðum höndum undir
verndarvæng Sameinuðu þjóðanna. - pg
Guðs mildi að þau voru ekki inni á hótelinu
HALLDÓR ELÍAS
GUÐMUNDSSON
Á FLUGVELLINUM Björgunarsveitarmað-
ur við birgðir af íslensku vatni.
FRÉTTABLAÐIÐ VALLI
HÖRMULEG SJÓN Heimamenn reyna að komast leiðar sinnar í gegnum rústir í Port-
au-Prince. Talið er að um 50 þúsund manns hafi farist í skjálftanum.
M
YN
D
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
/A
FP