Fréttablaðið - 15.01.2010, Qupperneq 46
34 15. janúar 2010 FÖSTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
MORGUNMATURINN
LÁRÉTT
2. lítill, 6. úr hófi, 8. regla, 9. umrót,
11. hvort, 12. svölun, 14. gáleysi, 16.
ekki, 17. niður, 18. starf, 20. guð, 21.
maður.
LÓÐRÉTT
1. íþrótt, 3. skóli, 4. ýtinn, 5. bein, 7.
agndofa, 10. eyða, 13. þangað til, 15.
nýlega, 16. trjátegund, 19. númer.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. smár, 6. of, 8. agi, 9. los,
11. ef, 12. fróun, 14. vangá, 16. ei, 17.
suð, 18. iðn, 20. ra, 21. karl.
LÓÐRÉTT: 1. golf, 3. ma, 4. ágengur,
5. rif, 7. forviða, 10. sóa, 13. uns, 15.
áðan, 16. eik, 19. nr.
„Tvær sneiðar normalbrauð
með reyktum rauðmaga, kaffi,
glas af sykurlausu límonaði og
geríkomplex. Búið.“
Einar Kárason, rithöfundur.
Ragnar Bragason, leikstjóri Vakt-
ar-seríanna, sagði nei við Jón
Gnarr um að taka sæti á lista
Besta flokksins fyrir borgarstjórn-
arkosningarnar í vor. Jón segir að
leikstjórinn hafi sett sér það prins-
ipp að taka aldrei þátt í stjórn-
málum. „Hann er svona prins-
ipp-maður og við þeim er erfitt að
stugga,“ útskýrir Jón en bætir því
við að Ragnar muni styðja flokkinn
á bak við tjöldin þegar nær dregur
kosningum. Jón ætti þó ekkert að
þurfa að kvíða manneklu því fjöldi
þekktra Íslendinga hefur þekkst
boð um að taka sæti á listanum.
Þeirra á meðal eru Fóstbræðurn-
ir Þorsteinn Guðmundsson og Sig-
urjón Kjartansson, Ágústa Eva
Erlendsdóttir, Hugleikur Dags-
son og tónlistar-
maðurinn Barði
Jóhannsson.
Jón reiknar
með því að skila
öllum tilskild-
um gögnum til
yfirkjörstjórnar
á réttum tíma en
kosningar verða
laugardaginn 29.
maí. Hann hefur
þó ekki gert það upp við sig hvort
sérstök kosningaskrifstofa flokks-
ins verði opnuð en nýr vefur ætti
að líta dagsins ljós um eða eftir
helgi. Þá ætti jafnframt endanleg-
ur listi að vera kominn á hreint.
„Ég er kominn með kennitölu og
bankareikning sem fólk getur lagt
inn á til að leggja okkur lið,“ segir
Jón enda fá nýjar stjórnmálahreyf-
ingar engan pening frá hinu opin-
bera fyrr en þær eru komnar með
kjörna fulltrúa. Jón er bjartsýnn á
að flokkurinn muni ná góðu gengi í
borgarstjórnarkosningunum en
hann lítur á þær sem ein-
hvers konar generalprufu
fyrir alþingiskosningarn-
ar. „Stefna Besta flokks-
ins er ekkert leyndar-
mál, hún er að koma
manni inn á þing.“ - fgg
Ragnar sagði nei við Jón Gnarr
FRÆGIR Á LISTA Meðal þeirra sem
hafa sagt já við Besta flokkinn eru
Ágústa Eva, Þorsteinn Guðmunds-
son og Hugleikur Dagsson.
Ragnar Bragason sagði hins
vegar nei, hann hefur það
prinsipp að taka aldrei þátt
í stjórnmálum.
JÓN GNARR
LEIKARI
Bandaríska stórblaðið New York Times valdi
nýverið Kaupmannahöfn sem einn af þeim stöðum
sem ferðamenn ættu að sækja á þessu ári. Blaðið
nefndi þar sérstaklega Norðurbrú sem er þekkt
fyrir fjölda kaffihúsa og sína miklu reiðhjóla-
menningu. Kaupmannahafnardeild fréttastofu
dönsku sjónvarpsstöðvarinnar TV2 gerði sér mat
úr þessu vali New York Times og kaus að taka
viðtal við íslenska kaffihúsaeigandann Friðrik
Weisshappel vegna þessara tíðinda.
„Ég veit ekki hve margir horfðu á þetta en það
hafa örugglega verið mjög margir enda kom innsl-
agið strax á eftir aðalfréttatíma stöðvarinnar,“
segir Friðrik, kampakátur, enda fín auglýsing
fyrir hann og staðinn. Friðrik skartaði litríkum
klæðnaði í viðtalinu og var meðal annars með
volduga slaufu sem hann fékk í jólagjöf frá starfs-
mannastjóranum sínum. Friðrik hlær þegar hann
er spurður hvort þetta sé ekki bara enn ein stað-
festingin á því að hann sé aðalmaðurinn á Norður-
brú. „Jú, ætli það ekki bara, ég kann allavega vel
við þann titil.“
Annars er Friðrik önnum kafinn þessa dagana
við fundahöld enda er í bígerð að opna þriðja
Laundromat-staðinn í Kaupmannahöfn. Hann er
þögull sem gröfin þegar kemur að staðsetningu en
segist þó bjartsýnn á að staðurinn verði opnaður á
þessu ári. Staðsetningin eigi eftir að koma á óvart.
„Eftir síðasta fund með eiganda húsnæðisins þá er
ég bara ákaflega bjartsýnn á að þetta geti gengið
eftir.“ - fgg
Frikki aðalmaðurinn á Norðurbrú
FÆRIST NÆR ÞRIÐJA STAÐNUM Friðrik Weisshappel er bjart-
sýnn á að þriðji Laundromat-staðurinn verði opnaður á þessu
ári.
ÞORSTEINN GUÐMUNDSSON
Bretinn Alan McGee er mikill
tónlistarbransagaur og hefur það
meðal annars á samviskunni að
hafa uppgötvað hljómsveitina
Oasis. Guardian taldi nýlega upp 15
bönd sem búast má við miklu af
á þessu ári. Meðal þeirra er Dead
Skeletons, sem er dúett þeirra Jóns
Sæmundar og Henriks í Singapore
Sling. „Hafðu augun opin
fyrir meira búddista
búggí árið 2010,“
skrifar Alan, sem finnst
lagið Dead Mantra það
besta sem hann heyrði
á síðasta ári. Búast
má við að Dead
Skeletons komi
með plötu á
árinu.
Útvarpsstöðin X-ið 977 er þekkt
fyrir að vera ákaflega beinskeytt
í umfjöllun sinni um daglegt líf
og þau mál sem eru efst á baugi.
Útvarpsmennirnir Þorkell Máni og
Frosti Logason stóðu fyrir
kosningu um skítseiði
ársins í útvarpsþætti
sínum, Harmageddon,
og kynntu niðurstöð-
urnar í gær. Sá sem
varð fyrir valinu var
Björgólfur Thor
og fær hann
að launum
ljósmynd
og skeini-
pappír.
Sérstaka athygli vakti að sú sem
náði í annað sætið var Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður
Sjálfstæðisflokksins. En þáttastjórn-
endur höfðu fyrirfram búist við því
að fyrrum útrásarvíkingar myndu
skipa sér í efstu sætin. Bjarni
Ármannsson og Jón
Ásgeir Jóhannes-
son voru raunar
ofarlega en
það sama má
reyndar segja
um Gunnar í
Krossinum. - drg
FRÉTTIR AF FÓLKI
Innspil lagsins, svokallað „play-
back“ Eurovision-lagsins In the
Future var of lágt stillt þegar
Karen Pálsdóttir, sextán ára söng-
kona, flutti það í Söngvakeppni
Sjónvarpsins á laugardagskvöld.
Umrætt atriði hefur verið mörg-
um hugleikið í netheimum og var
þeirri umræðu gerð sérstök skil
í Kastljósi Ríkissjónvarpsins á
miðvikudagskvöld en flutningur á
laginu heppnaðist ekki alveg sem
skyldi.
Þegar umrætt „playback“ er
of lágt getur það gerst að söngv-
arar eiga erfiðara um vik með að
greina rétta tóntegund. Reyndir
söngvarar eru yfirleitt með hana í
kollinum og vilja hafa „playback“
fremur lægra en hærra. Erfiðara
getur hins vegar reynst fyrir unga
og óreynda listamenn ef þeir eru
ekki alveg öruggir á því hvernig
það eigi að vera. Söngkonan Mar-
grét Eir Hjartardóttir, sem hefur
þjálfað Karen að undanförnu, stað-
festi við Fréttablaðið að umrætt
„playback“ hefði verið of lágt og
höfundar lagsins, þau Bryndís
Sunna Valdimarsdóttir og Daði
Georgsson, sögðu bæði í samtali
við Fréttablaðið að þau hefðu strax
gert sér grein fyrir því að ekki
væri allt með felldu. Of seint hefði
þó verið að grípa inn í. Bryndís
bendir á að bakraddasöngkonurn-
ar hefðu byrjað í vitlausum tón og
dansararnir hefðu átt erfitt með
að finna rétta taktinn. Þórhallur
Gunnarsson, dagskrárstjóri RÚV,
segir tæknimenn Sjónvarpsins
vera að fara yfir útsendinguna og
að eflaust megi eitthvað við hana
lagfæra.
Upptaka með atriðinu hefur
nú verið fjarlægð af myndbands-
vefnum YouTube en það voru laga-
höfundarnir sem fóru fram á það
við forsvarsmenn vefsíðunnar.
„Við gerðum þetta að ósk Karen-
ar og fjölskyldu hennar og vildum
minnka það að fólk væri að klippa
búta úr laginu og nota í annarleg-
um tilgangi,“ segir Daði. Frétta-
blaðið hafði í gær samband við
föður Karenar, Pál Róbertsson, en
hann upplýsti að þau myndu ekkert
tjá sig um málið að svo stöddu.
Upp hefur komið sú umræða
að hækka aldurstakmarkið vegna
umrædds atviks en Þórhallur
segir að þetta geti alltaf gerst,
hvort sem söngvarinn sé átján eða
sextán ára. „Aldur er ekkert aðal-
málið í þessu heldur sú staðreynd
að þetta getur komið fyrir hvern
sem er.“
freyrgigja@frettabladid.is
ÞÓRHALLUR GUNNARSSON: HÆKKAÐ ALDURSTAKMARK ENGIN LAUSN
TÆKNILEG MISTÖK
HLUTI AF SKÝRINGUNNI
LÁGT INNSPIL
Karen Pálsdóttir átti að öllum líkindum erfitt
með að greina rétta tóntegund Eurovision-
lagsins In the Future vegna þess hversu
lágt innspilið, eða „playbackið“, var. Reyndir
söngvarar eru með tóntegundina í kollinum
en fyrir unga og óreynda söngvara er erfitt
að fást við slík tæknileg vandamál. Þórhall-
ur Gunnarsson, dagskrárstjóri RÚV, segir
hækkað aldurstakmark enga lausn.