Samtíðin - 01.03.1941, Síða 35

Samtíðin - 01.03.1941, Síða 35
SAMTÍÐIN 31 i*eiu VITRU --------------- SÖGÐU: Besta svarið við lélegri röksemd er að láta hana eins og vind um eyrun þjóta. — Sidney Smith. Greindur maður segir við konu, að hann skilji hana. Heimskur maður reynir að sanna henni, að hann geri það. — X. Einræði er stjórnarkerfi, sem mæl- lr sv« fyrir, að alt, sem ekki er bann- að, sé skyldu kvöð. — Manchester Guardian. List og siðgæði byggist hvort tveggja 4 því, að menn kunni að setja sér takmörk. — Chesterton. Oí mikil íþróttaþjálfun er eins og ískalt bað. Þú heldur, að hún hafi Sóð áhrif á þig, af því að þér líður betur, þegar þú hættir henni. — Bobert Quillen. Konur einar geta vottað þér ást sina og gagnrýnt þig með sama aagnatilliti. — Maurice Hewlett. ímyndunaraflið var manninum Selið, til þess ag bæta honum upp það, sem hann fer á mis við, og létt- lyndið var honum gefið, til þess að hann fengi sætt sig við það, sem fram við hann kemur. — H. S. Johnson. Eí okkur fýsir að skapa nýjan heim, er okkur vissulega ekkert að 'anbúnaði, því að í upphafi var heimurinn skapaður úr óskapnaði. — Robert Quillen. Við erum altaf að kvarta undan h' í, hve ævi okkar sé stutt, og þó högum við okkur rétt eins og við ‘ettuni aldrei að deyja. — Seneca. Nýjar bækur Háskóli Islands 1911 —- 17. júní — 1940 (myndaliefti). Chr. Fr. Nielsen: Þættir úr verslun- ar- og iðnaðarsögu Islands L hefti. 96 bls. (með mörgum mýndum). Verð óh. kr. 5.00. Þórhallur Þorgilsson: Byltingin á Spáni og borgarastyrjöldin 1936 —39 (prýdd mörgum myndum). 237 hls. Verð óh. kr. 7.50. Ársæll Sigurðsson: Algengustu orð- myndir málsins og stafsetningar- kenslan. Gefið út að tilhlutun fræðslumálastjórnarinnar. 32 hls. Dr. Matthías Jónasson: Uppeldi vandræðabarna i Sviss. Skýrsla til fræðslumálastjórnarinnar. 42 hls. Sigurður Magnússon: Afhrotaæskan í Reykjavík. Skýrsla til fræðslu- inálastjórnarinnar. 43 hls. Halldór Halldórsson: Um hluthvörf (íslensk fræði 6.). 32 hls. Verð ób. kr. 2.50. Elsa Barkar: Bréf frá látnum, sem lifir. Með inngangi. Þýðendur: Kristmundur Þorleifsson, Víglund- ur Möller. 181 bls. Verð ób. kr. 6.00, ib. kr. 8.50. UTTVEGUÍÍ allar fáanlegar bækur, erlendar og inníendar, og sendum jiær gegn póstkröfu um land alt. Finnur Einarsson Bókaverslnn, Austurstrœti 1. Reykjavík.

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.