Fréttablaðið - 18.01.2010, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 18.01.2010, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 18. janúar 2010 13 SEND IÐ OKK UR LÍNU Fréttablaðið og Vísir hvetja lesendur til að senda línu og leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Tekið er á móti efni á netfanginu greinar@frettabladid. is eða á vefsíðu Vísis, þar sem finna má nánari leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni. Viltu kynnast frambjóðendum betur? Prófkjör í Reykjavík 23. janúar 2010 Kaffihúsafundur með frambjóðendum í Valhöll Þriðjudagur 19. janúar kl. 16 - 19 Opinn framboðsfundur í Golfskálanum í Grafarholti Miðvikudagur 20. janúar kl. 20 - 22 Prófkjör Laugardagur 23. janúar, kjörstaðir eru opnir kl. 10 - 18 Utankjörfundaratkvæðagreiðsla er alla virka daga kl. 9 - 17 www.profkjor.is Upplýsingar um frambjóðendur eru á profkjor.is Kjartan Magnússon Áslaug M. Friðriksdóttir Gísli Marteinn Baldursson Kristján Guðmundsson Benedikt Ingi Tómasson Hanna Birna Kristjánsdóttir Marta Guðjónsdóttir Björn Gíslason Hildur Sverrisdóttir Ragnar Sær Ragnarsson Elínbjörg Magnúsdóttir Jóhann Páll Símonarson Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir Emil Örn Kristjánsson Jórunn Frímannsdóttir Þorkell Ragnarsson Geir Sveinsson Júlíus Vífill Ingvarsson STJÓRNSKIPAN Synjunarvald forseta Enn hefur synjunarvald for-seta samkvæmt 26. gr. stjórn- arskrárinnar komizt til umræðu og eftir síðustu synjun hafa radd- ir orðið háværar um að þessi skip- an mála sé óheppileg og eðli emb- ættisins hafi breytzt. – Þrjú atriði hafa sérstaklega verið tilgreind: Að forseti gangi gegn þingræði, að ekki sé heppilegt að einum manni sé falið slíkt vald og stefnt sé að pólitísku forsetaræði. Fullyrt er að forseti gangi gegn þingræðinu (orðanotkun er óheppileg því að þingræði merkir að sérhver ríkisstjórn sitji á skjóli Alþingis og beri ábyrgð fyrir því – orðið þingstjórn væri betra), og hert á með ummælum um að hann hindri störf þingsins og lýsi jafnvel yfir stríði á hendur því og ríkisstjórn. Áður en slík orð falla þyrftu menn að gefa gaum 2. gr. stjórnarskrárinnar þar sem segir að Alþingi og forseti Íslands fari saman með löggjafarvaldið. Hlut- ur forseta birtist í því að hann staðfestir lög, sbr. 19. gr., gefur út bráðabirgðalög, sbr. 28. gr. og getur synjað lögum staðfestingar, sbr. 26. gr. Þá liggur beint við að spyrja hvort stjórnarskrárgjafinn hafi við setningu stjórnarskrár- innar 1944 hafnað „þingræðinu“ með þessari skipan mála og þjóð- in samþykkt það með rúmlega 95% atkvæða. Þá hefur því verið haldið fram að naumast sé það í samræmi við lýðræði að fela einum manni vald – jafnvel geðþóttavald – til að vísa málum til þjóðaratkvæðis og hann hafi þar frjálsar hend- ur. Vissulega hefur forseti þetta vald samkvæmt bókstaf lag- anna og engar skorður reistar við beitingu þess. Nú eru stjórn- arskrár í rótgrónum lýðræðis- ríkjum almennt ekki margorðar. En að baki þeim standa ákveðn- ar óskráðar hefðir sem mótazt hafa í framkvæmd með ákveð- in stjórnspekileg og siðferðileg gildi að leiðarljósi, svo sem lýð- ræði, valddreifingu og mann- réttindi. Þess hlýtur því að mega vænta að til forsetaembættis velj- ist ekki aðrir en þeir sem haldi öll slík gildi í heiðri. Þau móta ekki einungis túlkun ákvæðanna, held- ur einnig pólitískt mat forseta á því hvenær synjunarvaldi skuli beitt þegar lagabókstaf sleppir. En í ljósi þess sem þegar er tekið fram má því ætla að forseti hafi, auk framangreindra gilda, hófs- emi og málefnaleg sjónarmið að leiðarljósi. Mat forseta birtist síðan í rökstuðningi hans og þar geta skoðanir verið skiptar. Þá er í þriðja lagi bent á að embættið sé komið í hringiðu stjórnmálanna ef forseti synji lögum staðfestingar og sjálf löggjafarsamkoman sé þá ber- skjölduð fyrir ákvörðunum, jafn- vel geti forseti gert Alþingi óstarf- hæft. Með því sé embættið orðið pólitískt, stefnan tekið á forsetar- æði og stjórnskipan og stjórnskip- unarhefðum raskað. Embættið sé þá orðið aflvaki sundrungar í stað sameiningar. Nú er vandséð að það eitt að synja lögum staðfestingar og vísa lögum til þjóðaratkvæðis stefni embættinu í hringiðu stjórn- málanna. Ef forseti hins vegar tekur afstöðu t i l laga nna, þannig að hann annaðhvort hvetji menn til að samþykkja eða synja, þá hefur embætt- ið sogazt inn í þá hringiðu og breytt um eðli. En hefur for- seti tekið opinberlega afstöðu laganna, síðari Icesave-laganna (nr. 1/2010), sem nú stendur til að greiða atkvæði um? Þeir sem kynnu að halda því fram verða að styðja mál sitt skýrum rökum. Ef synjunarákvæðið er túlk- að á grundvelli bókstafstrúar og í anda átakastjórnmála er ekki hægt að útiloka að til embætt- is komi forseti sem ynni í þeim anda og synjaði lögum staðfest- ingar í tíma og ótíma, þannig að þingið yrði lítt starfhæft. Þá hefði Alþingi það úrræði að samþykkja tillögu með stuðningi ¾ hluta þingmanna um að leysa forseta frá embætti enda færi þá fram þjóðaratkvæðagreiðsla um hana innan þriggja mánaða frá sam- þykkt Alþingis, sbr. 2. mgr. 11. gr. stjórnarskrárinnar. Ef hins vegar þrátefli verður milli forseta og Alþingis, þannig að Alþingi sam- þykki þegar í stað lög, sem forseti hefði synjað lítið breytt og þrátefli yrði, vakna spurningar um hvern- ig eigi að hemja Alþingi. Það yrði bezt gerð með því að koma á fót stjórnlagadómstól. Annars eru ekki önnur úrræði en kjósendur taki í taumana. Ef stjórnarskráin er túlkuð og henni framfylgt í anda þeirra gilda sem að baki hennar búa má vel við 26. gr. una; ef á hinn bóg- inn stjórnarskráin er túlkuð í anda bókstafstrúar, valdsækni og þeirra siðferðisbresta sem fylgja átaka- stjórnmálum verður að breyta henni. Og við það yrði varla látið sitja; hverju álitamálinu af öðru yrði hreyft sem fella yrði undir bókstafi stjórnarskrárinnar og þá hætt við að orðaflaumur yrði helzta kennimark hennar. En þá væri rétt að menn spyrðu þeirr- ar spurningar, hvort margorð og ýtarleg stjórnarskrá sé til marks um gott stjórnarfar. Við lauslega athugun á stjórnarskrám ýmissa ríkja, m.a. í þriðja heiminum, set ég fram þá leiðsögutilgátu að því orðfleiri og áferðarfallegri sem ein stjórnarskrá er því verra sé stjórn- arfarið. Þetta væri rétt að skoða nánar áður en ráðizt verður í endur- skoðun stjórnarskrárinnar með átakastjórnmálin að leiðarljósi. Höfundur er lagaprófessor. Synjunarvald og átakastjórnmál SIGURÐUR LÍNDAL

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.