Fréttablaðið - 18.01.2010, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 18.01.2010, Blaðsíða 38
26 18. janúar 2010 MÁNUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 HVAÐ SEGIR MAMMA? LÁRÉTT 2. skítur, 6. ógrynni, 8. háma, 9. þjófnaður, 11. tveir eins, 12. beikon, 14. kærleiks, 16. berist til, 17. rjúka, 18. eyrir, 20. tveir eins, 21. slabb. LÓÐRÉTT 1. grasþökur, 3. ullarflóki, 4. strau- miða, 5. vefnaðarvara, 7. þögull, 10. tangi, 13. hlóðir, 15. ferðast, 16. hryggur, 19. guð. LAUSN LÁRÉTT: 2. drit, 6. of, 8. úða, 9. rán, 11. uu, 12. flesk, 14. ástar, 16. bt, 17. ósa, 18. aur, 20. tt, 21. krap. LÓÐRÉTT: 1. torf, 3. rú, 4. iðukast, 5. tau, 7. fálátur, 10. nes, 13. stó, 15. rata, 16. bak, 19. ra. „Við viljum sýna að við erum ekki öll slæmar manneskjur,“ segir Litháinn Algirdas Slapikas. Hópur fólks hefur stofnað Íþróttafélag Litháa á Íslandi sem hefur það að markmiði að gefa ungum sem öldnum tækifæri til íþróttaiðkana og að aðstoða inn- flytjendur við að aðlagast íslensku samfélagi. „Vegna allra þessara neikvæðu frétta í blöðunum þá er þetta eitthvað sem við viljum að sjálfsögðu að bæti ímynd innflytj- enda, sem fáeinir einstaklingar hafa skemmt,“ segir Algirdas, sem er formaður félagsins. Um 1.500 Litháar eru búsettir á Íslandi og ætti efniviðurinn því að vera ágæt- ur fyrir þetta nýstofnaða félag. Tilurð félagsins var þátttaka körfuboltaliðsins Lituanica í 2. deild karla síðasta haust. Körfu- knattleikssamband Íslands, KKÍ, setti það sem skilyrði að stofnað yrði íþróttafélag í kringum liðið og þá fór boltinn að rúlla. Í stjórn félagsins eru þekktir íþróttamenn af litháískum uppruna, þar á meðal Ramune Pekarskyte, hand- boltakona hjá Haukum, og þau Kristina Kvedarine og Romualdas Gecas sem hafa bæði spilað hand- bolta hér á landi. Síðar meir vonast Algirdas til að fótbolti og fleiri íþróttir bætist í flóru félagsins og stefnan hefur verið sett á að taka þátt í utan- deildinni í fótbolta í framtíðinni. Tekur hann fram að allir séu vel- komnir í íþróttafélagið, bæði inn- flytjendur og Íslendingar. „Þetta byrjaði fyrir svona einu ári þegar ég var að undirbúa lithá- ískt körfuboltamót á Ásvöllum. Það var mjög góð aðsókn og þrettán lið mættu. Í haust leyfði KKÍ okkur svo að keppa í 2. deildinni,“ segir hann. Liðið, sem spilar heimaleiki sína í Vogum, hefur spilað sjö leiki, unnið tvo en tapað fimm. „Þetta er góður árangur því við erum bara með tvo sem hafa stundað körfu- bolta af einhverri alvöru. Við eigum eftir að styrkjast eftir því sem fram líða stundir.“ Hann er einnig mjög ánægður með stuðninginn sem liðið hefur fengið því hópur Litháa mætir á alla leiki liðsins, sem er frekar óalgengt þegar 2. deildin er ann- ars vegar. Sýnir þetta vel samstöð- una sem ríkir innan raða Litháa á Íslandi. freyr@frettabladid.is ALGIRDAS SLAPIKAS: VIÐ ERUM EKKI ÖLL SLÆMAR MANNESKJUR Hópur Litháa á Íslandi stofnar nýtt íþróttafélag ALGIRDAS SLAPIKAS Algirdas vill aðstoða innflytjendur, bæði frá Litháen og annars staðar frá, við að aðlagast íslensku samfélagi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN LITUANICA Körfuboltaliðið hefur unnið tvo leiki en tapað fimm það sem af er keppnistímabilinu. Ásgeir Gunnar Ásgeirsson, knatt- spyrnumaður í úrvalsdeildarliðinu FH, útskrifaðist sem tannlæknir síðasta vor. Hann segir gaman að fá liðsfélaga til sín í stólinn. Ásgeir Gunnar, sem er miðju- maður í liði FH, hefur starfað sem tannlæknir hjá tannlæknastofunni Krýnu frá því að hann lauk námi. Hann segir það hafa verið stremb- ið á tíðum að sinna bæði boltanum og náminu en að það hafi þó gengið upp með mikilli vinnu. Aðspurður segir hann það hafa komið fyrir að vera beðinn um eiginhandaráritun að tannviðgerðunum loknum. „Það er einn og einn sem veit hver maður er og sumir krakkarnir hafa beðið um eiginhandaráritun, sem er alltaf gaman. Ég hef líka fengið nokkra liðsfélaga til mín í stólinn og það er gaman að fíflast svolítið í þeim og hræða þá með tækjunum hér á stofunni,“ segir Ásgeir Gunnar. Sjálfur hefur Ásgeir Gunnar aldrei fengið tannskemmd og þegar hann er beðinn um hollræði fyrir lesendur blaðsins segir hann mikilvægt að bursta tennurnar tvisvar á dag. „Besta ráðið er að bursta tennurnar tvisvar á dag og nota tannþráð daglega. Tannburst- inn nær ekki á milli tannanna og því er mikilvægt að nota tannþráð líka.“ - sm Hræðir liðsfélagana með borunum ALDREI FENGIÐ SKEMMD Ásgeir Gunnar Ásgeirsson, tannlæknir og fótboltamaður, hefur aldrei fengið tannskemmd. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Sendiherra Íslands í Austurríki, Stefán Skjaldarson, ætlar að hvetja silf- urdrengina í handboltalandsliðinu til dáða gegn Serbíu á Evrópumótinu í Austurríki á morgun. „Ég ætla náttúrulega að fara á leikinn. Hann er 150 kílómetra í burtu héðan í borginni Linz en það er ekk- ert mál að skreppa,“ segir Stefán, sem hefur verið sendiherra í Austurríki í þrjá mánuði. Hann telur það miklu máli skipta að vinna fyrsta leikinn ef vel á að ganga í mótinu. Ekki væri heldur verra að vinna Dani, sem eru með Íslendingum í riðli ásamt heimamönn- um í Austurríki. „Ef þeir komast áfram þá kom- ast þeir til Vínar og þá verður styttra að fara á leikina,“ segir Stefán, sem starfar einmitt í Vín- arborg. Aðspurður segir hann það alveg óvíst hvort hann ætli að heilsa upp á landsliðsmennina fyrir leikinn gegn Serbum. „Ég vil nú helst ekki vera að trufla þá. Kannski tala ég bara við þá í klefanum eftir leik, það er ef þeim gengur vel,“ segir hann í léttum dúr. Töluverð umfjöllun hefur verið um mótið í austurrískum fjölmiðlum að undanförnu og hefur Stefán fylgst grannt með gangi mála. „Þeir hafa verið með fréttir af sínu liði. Þeir hafa verið að æfa grimmt og þeim hefur gengið nokkuð vel,“ segir hann en býst við því að Austurríkismenn nái ekki að stöðva Íslendingahraðlestina. Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, hefur útvegað Íslendingum um 25 miða á leikinn gegn Serbum. Fleiri ætla að mæta á leikina gegn Austurríki og Danmörku eða um 65 til 70 manns. Ekki er flogið beint til Austurríkis frá Íslandi að vetri til og því þurfa handboltaáhuga- menn að fljúga til borga á borð við Frankfurt eða Kaupmannahöfn og taka þaðan lest, eða nota bíla- leigubíla til að komast á leiðarenda. - fb Sendiherra styður silfurdrengina „Mér hefur alltaf fundist hann ofboðs- lega sérstakur. Hann fékk snemma mikinn tónlistaráhuga og var þriggja ára orðinn Billy Joel aðdáandi. Hann hefur alltaf haft mikla út- þrá og pabbi hans þurfti að fara með hann til stórborga til að sefa útþrána. Mér finnst hann vera að blómstra í listinni núna og er mjög ánægð með hvernig hefur ræst úr honum.“ Þóra Berg Jónsdóttir er móðir Sigtryggs Bergs Sigmarssonar, eins þeirra lista- manna sem taka þátt í samsýningunni Ljóslitlífun í Hafnarhúsinu. Hún vakti töluverða athygli, frétt Séð og Heyrt, um að Linda Pétursdóttir, fyrrum alheims- fegurðardrottning og eigandi Baðhússins, væri komin með nýjan herra. Sá væri Þorgils Óttar Mathie- sen, bróðir fyrrum fjármálaráðherrans Árna Matthiesen og fyrrverandi fyrirliði íslenska landsliðsins. Linda upplýsir hins vegar í samtali við sunnudags- blað Morgun- blaðsins að þau séu ekki lengur par. Óskar Páll Sveinsson og Bubbi Morthens voru kampakátir þegar úrslit símakosningu Söngvakeppni Sjónvarpsins voru ljós því þeir komust áfram með Jógvan Hansen og lagið One More Day. Hvanndalsbræður sýndu enn og sönn- uðu að þeir eiga sér tryggan aðdá- endahóp því þeir komust einnig áfram í úrslita- kvöldið með Gleði og Glens. Kvikmynd Baltasars Kormáks, Inhale, er komin í eftirvinnslu á nýjan leik og er nú gert ráð fyrir því að hún verði frumsýnd á þessu ári, samkvæmt kvikmyndavefn- um imdb.com. Upphaflega var gert ráð fyrir því að myndin yrði frumsýnd á árinu sem var að líða. Myndin skartar Diane Kruger í aðalhlutverki en hún lék eitt aðal- hlutverkanna í Tarantino-mynd- inni Inglorious Basterds. - fgg FRÉTTIR AF FÓLKI EINAR ÞORVARÐARSON Einar stendur í ströngu við að úthluta Íslendingum miða á Evrópumótið í handbolta. SNORRI STEINN Sendiherrann ætlar að styðja við bakið á Snorra Steini Guðjónssyni og félögum í landsliðinu.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.