Fréttablaðið - 18.01.2010, Blaðsíða 17
FASTEIGNIR.IS
18. JANÚAR 20103. TBL.
Heimili fasteignasala, Skipholti 29a, kynnir
í einkasölu fallegt einbýlishús á einni hæð í
Kópavogi.
Húsið, sem stendur við Kastalagerði í Kópavogi er
skráð 165 fm. Íbúðarrými er 137 fm og bílskúr 28
fm. Það stendur á 770 fm lóð á góðum fallegum stað í
Kópavogi. Húsinu hefur verið aðeins breytt að skipu-
lagi og endurnýjað og er í góðu ástandi. Í því eru
fjögur svefnherbergi og tvær stofur.
Komið er inn í flísalagða forstofu með fataskáp-
um. Inn af forstofu er nýtt gestasalerni sem er flísa-
lagt með vegghengdu salerni og skáp. Inn af forstofu
er forstofuherbergi með flísum á gólfi og fataskáp.
Útgengt er úr herberginu í bakgarðinn í suðri. Stof-
urnar eru með parketi á gólfi og útgangi á hellulagða
verönd í bakgarði. Eldhús er með nýlegri innrétt-
ingu, borðkrók og flísum á gólfi. Gangur í svefnálmu
er með parketi á gólfi og lausum skáp.
Baðherbergi er flísalagt með sturtuklefa, baðinn-
réttingu og innréttingu fyrir þvottavélar. Tvö barna-
herbergi eru í húsinu og er parket á gólfi og skápur í
öðru þeirra. Hjónaherbergið er með fataskápum og
parketi á gólfi.
Fallegt gott einbýlishús með bílskúr á góðum
stað í Kópavogi. Eigendur leita að stærra einbýli í
Kópavogi.
Endurnýjað einbýli
Eignin stendur á 770 fm
lóð á góðum og fallegum
stað í Kópavogi.SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
heimili@heimili.is
Sími 530 6500