Fréttablaðið - 18.01.2010, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 18.01.2010, Blaðsíða 15
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 „Mig var búið að langa í þessa kaffivél í mörg ár og fékk hana svo í afmælisgjöf þegar ég varð þrítug. Hún er búin að ferðast með mér milli landa og mér þykir voða vænt um hana. Ekki síst vegna þess að ég er algerlega á því að kaffibolli geti verið fullur af ást,“ segir Sigríður Dögg og sýnir okkur vélina, ljós- bláa og netta. Þessa síðustu setn- ingu verður hún að útskýra betur. Jú, það kemur í ljós að hún og eiginmaður hennar, Valdimar Birgisson, færa hvort öðru kaffi í rúmið á hverjum einasta morgni – það þeirra sem er fyrr á fótum færir hinu. „Oftast er hann á undan mér fram úr þannig að ég er svo heppin að fá kaffi með flóaðri mjólk í rúmið,“ segir Sigríður Dögg brosandi. „Það hjálpar til við að takast á við daginn sem fram undan er að byrja á góðum kaffi- bolla sem er barmafullur af ást.“ Sest Valdimar þá á rúmbríkina með sinn bolla líka? „Nei, hann er oft búinn með sinn meðan ég er að rumska eða hann er að sinna börn- um,“ svarar hún. „En um helgar reynum við að kúra saman og lesa kannski eitthvað uppi í rúmi með kaffið okkar, ef friður er.“ Svo beinist athyglin að sóda- strímtækinu. „Þetta er sennilega önnur kynslóð af svona tækjum og dálítið fornt en svínvirkar og er notað á hverjum degi. Krökk- unum hefur fundist sódavatn gott frá því að þau voru lítil og ef við setjum Ribena-saft út í verður það alger sparidrykkur,“ lýsir Sigríð- ur Dögg. „Steingerður Ólafsdóttir vinkona mín gaf mér sódastrím- tækið árið 2004 þegar hún flutti til Svíþjóðar og ég var nýflutt heim frá London. Þá var hún búin að eiga það í mörg ár. Hún hafði heyrt að goshylki í það fengjust ekki í Svíþjóð en komst svo að hinu gagnstæða. Það var bara of seint því þá var tækið komið í svo mikla notkun hjá mér.“ Þessi tvö heimilistæki telur Sig- ríður Dögg sem sagt ómissandi. „Það er líka rosalega gott að fá sér kaffi og sódavatn saman,“ bendir hún á að lokum. gun@frettabladid.is Barmafullur bolli af ást Kaffi er hressandi og sódavatn svalar. Tæki sem töfra fram þessa drykki eru í miklum metum á heimili Sigríðar Daggar Auðunsdóttur, forstöðumanns kynningarmála í Mosfellsbæ, og bæði eiga þau sér sögu. „Það er rosalega gott að fá sér kaffi og sóda- vatn saman,“ segir Sigríður Dögg og stillir sér upp við uppáhaldsgræjurnar í eldhúsinu. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /A N TO N KJÚKLINGAVÆNGIR í grillsósu er fyrirtaks fingramatur í heimboðum og veislum. Vængirnir eru baðaðir í sósu, þeim stungið inn í ofn og borðaðir með sósu af einhverju tagi, en fersk jógúrtsósa hentar einkar vel með slíkum mat. Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150 Fyrst og fremst í heilsudýnum 3 mán. vaxtalausar greiðslur Opið virkadaga frá 10.00-18.00 lau 12.00-16.00 ÚTSALA 20-50% afslátturaf völdum vörum TÍU ÞÚSUND KRÓNUR PENINGABAN KI ÍSLANDS SAMKVÆMT S VEFN & HEILS U JANÚAR 2005 E20052006 E20052006 Matthías Ásgei rsson TTT 10.000 kr. vöruúttekt fylgir hverju heilsurúmi s g Mjódd UPPLÝSINGAR O Nýtt námskeið hefst 22. janúar n.k. Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is - sími 512 5473 Henný Árnadóttir henny@365.is - sími 512 5427 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is - sími 512 5447

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.