Fréttablaðið - 18.01.2010, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 18.01.2010, Blaðsíða 30
18 18. janúar 2010 MÁNUDAGURNÝTT Í BÍÓ! SÍMI 564 0000 7 L 10 10 L DYHAT MORGANS kl. 4.40 - 8 - 10.20 MAMMA GÓGÓ kl. 4 - 6 - 8 - 10 AVATAR 3D kl.4.40 - 7 - 8 - 10.20 AVATAR 2D LÚXUS kl. 4.40 - 8 ALVIN OG ÍKORNARNIR 2 kl. 3.40 - 5.50 SÍMI 462 3500 DYHAT MORGANS kl. 10 MAMMA GÓGÓ kl. 8 ALVIN OG ÍKORNARNIR 2 kl. 6 AVATAR 2D kl. 6 - 9 7 L L 10 L 10 L L L L L 12 MAMMA GÓGÓ kl. 6 - 8 - 10 AVATAR 3D kl. 6 - 9.30 FRÖNSK KVIKMYNDAHÁTIÐ FRUMGRÁTURINN kl. 6 Enskur texti VERNDARGRIPURINN kl. 5.50 Enskur texti NIKULÁS LITLI kl. 8 Enskur texti ÞAÐ VAR EKKI ÉG, ÉG ... kl. 8 Enskur texti EDRÚ kl. 10 Enskur texti GÓÐ LÖGGA, VOND LÖGGA kl. 10.10 Enskur texti SÍMI 530 1919 16 16 14 L L L HARRY BROWN kl. 5.40 - 8 - 10.20 THE ROAD kl. 5.30 - 8 - 10.20 TAKING WOODSTOCK kl. 8 - 10.30 ALVIN & ÍKORNARNIR 2 kl. 6 íslenskt tal ALVIN & THE CHIPMUNKS 2 kl. 6 enskt tal JULIE & JULIA kl. 8 - 10.35 SÍMI 551 9000 .com/smarabio Á EINU AUGNABLIKI BREYTTIST HEIMURINN... ...AÐ EILÍFU! 85.000 GESTIR! YFIR 25.000 GESTIR! AÐDÁENDUR GETA UNNIÐ BÍÓKORT ÚT ÁRIÐ, BOÐSMIÐA Á FORSÝNINGAR O.M.FL. HUGH GRANT OG SARAH JESSICA PARKER FARA Á KOSTUM Í FRÁBÆRRI GAMANMYND. HANN MUN SJÁ UM RÆTTLÆTIÐ! ÞRÆLMÖGNUÐ SPENNUMYND Í ANDA GRAN TORINO Í Háskólabíói 15.-28. janúar www.af.is Stórkostlegt mynd frá DISNEY fyrir alla fjölskylduna16 10 10 16 12 12 12 12 V I P L L L L L L „…meinfyndin”  - B.S. fréttablaðið „…það var lagið”  - DÓRI DNA dv YFIR 55.000 GESTIR! VERTU ÞÍN EIGIN HETJA „…ellen page er stórkostleg”  new york daily news „…mynd sem þú verður að sjá”  - Roger Ebert SHERLOCK HOLMES kl. 8 - 10:40 BJARNFREÐARSON kl. 8 - 10:20  - NEW YORK DAILY NEWS „It’s probably the most purely fun film experience I’ve had all year. See it as soon as you can“ - JOBLO.COM „…BÍÓMYND SEM UNDIRRITAÐUR GETUR MÆLT MEД  - T.V. KVIKMYNDIR.IS SHERLOCK HOLMES kl. 5:20D - 6:15D - 8D - 9 - 10:20 - 10:40D SHERLOCK HOLMES kl. 5:20 - 8 - 10:40 WHIP IT kl. 5:40 - 8 BJARNFREÐARSON kl. 5:40 - 8 - 10:20 PRINSESSAN OG FROSKURINN M/ ísl. Tali kl. 5:50 SORORITY ROW kl. 8 TWILIGHT 2 NEW MOON kl. 10:30 SHERLOCK HOLMESkl. 5:30D - 8D - 10:10D - 10:40D BJARNFREÐARSON kl. 5:40 - 8 WHIP IT kl. 10 PRINSESSAN OG FROSKURINN M/ ísl. Tali kl. 6 PRINSESSAN OG FROSKURINN M/ Ensku. Tali kl. 8 - bara lúxus Sími: 553 2075 DID YOU HEAR ABOUT THE MORGANS? kl. 8 L MAMMA GÓ GÓ kl. 6, 8 og 10 10 ALVIN OG ÍKORNARNIR 2 kl. 6 L AVATAR 3D - POWER kl. 6, 9 og 10.10 10 POWERSÝNING KL. 9 „Ég tel það ekki ólíklegt að við séum minnsta verkstæðið í bænum. Þetta er voða lítið og kósí rými og við höfum reynt að gera þetta svo- lítið heimilislegt. Hér er kaffi á könnunni og andrúmsloftið höfð- ar til flestra, líka þeirra sem eru tölvuhræddir,“ segir Kjartan Bier- ing, annar eigenda Tæknihliðar- innar sem rekur tölvuverkstæðið Tæknihornið. Verkstæðið er í litlum 35 fer- metra kjallara við Skólavörðustíg og býður upp á ýmiskonar tölvu- þjónustu. „Við höfum sérhæft okkur svolítið í viðgerðum á Apple-tölvum og einnig erum við í gagnabjörg- unum. Við erum kannski svolítið falin en miðbæjarrotturnar vita af okkur þarna, en ég veit ekki með alla hina.“ Aðspurður segir Kjart- an plássleysi ekki hamla vinnu á verkstæðinu því með góðri skipu- lagningu er nægt pláss að hafa. Í dag eru fimm manns sem starfa hjá Tæknihliðinni en fyrirtæk- ið sérhæfir sig í rekstri og þjón- ustu tölvukerfa fyrir lítil og með- alstór fyrirtæki. Auk þess býður fyrirtækið upp á Netfreyju, sem er netþjónn sem hentar öllum fyr- irtækjum. Hægt er að heimsækja heimasíðu Tæknihornsins á www. taeknihlidin.is. - sm Minnsta verkstæði bæjarins MINNST Í BÆNUM Kjartan Biering er nokkuð viss um að verkstæðið sé það minnsta í bænum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Leikhús ★★★★ Faust Eftir leikhópinn Vesturport byggt á leikriti Goethe Leikarar: Þorsteinn Gunnarsson, Björn Hlynur Haraldsson og Hilmir Snær Guðnason Leikmynd: Axel Hallkell Jóhannesson Búningar: Filippía I. Elísdóttir Lýsing: Þórður Orri Pétursson Tónlist: Nick Cave og Frank Hall Hljóðmynd: Thorbjörn Knudsen og Frank Hall Leikgervi: Sigríður Rósa Bjarnadóttir Leikstjóri: Gísli Örn Garðarsson Troðfullur salur með aukasætum á frumsýningunni í Borgarleikhús- inu á föstudagskvöldið. Að standa á öndinni er skemmtileg uppröðun orða, eins og uppröðun atriða var skemmtileg í sýningu Vesturports á Faust. Fyrir svo utan að bæði leikarar og áhorfendur stóðu svo sannarlega oft á öndinni. Hoppa og skoppa, hrökkva og síga með klifur og önnur trix björgunarsveitanna í netum og köðlum hélt leikhópur- inn áhorfendum við efnið. Verkið er innblásið af samnefndu leikriti eftir meistarann, lögfræðinginn, leikhússtjórann, náttúrufræðing- inn, embættismanninn og skáldið Jóhann Wolfgang von Goethe. (f. 1749 d. 1832) Félagar úr leikhópnum Vestur- porti, þau Björn Hlynur Haraldsson, Gísli Örn Garðarsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Víkingur Kristjáns- son og Carl Grose eru höfundar þess texta sem liggur til grundvall- ar sýningunni. Jólin, jólin alls stað- ar í ýktum búningi með pirrandi lyftutónlist og ergilegum ljósum, skranskreytingum og þykjustuvin- semd starfsmanna á elliheimili er sú umgjörð sem áhorfendur ganga inn í. Leikmyndin var áleitin í þessu geggjaða gervidrasli, kannski eink- anlega þar sem nýbúið er að pakka niður seríum en einnig sem tákn- mynd firringarinnar, sölujóla eða skrattanum sem við erum ofurseld. Fyrir svo utan að opnanir aftur og inn í sviðið, til beggja handa og niður í gólfið og upp í himininn jók möguleika undankomu og sprellifar- saleiks. Leikmynd Axels Hallkells Jóhannessonar þjónaði sum sé verk- inu ákaflega vel bæði myndrænt og með notagildi fimleikanna í huga. Jólatréshryllingurinn var bara einn og sér nægjanlegur til þess að vekja ákveðnar kenndir. Leikurinn gerist á heimili fyrir gamalt fólk og þaðan er áhorfend- um vippað yfir í þá angistarför sem Jóhann flækist í eftir að hafa selt skrattanum sál sína. Skrattinn var í sjálfu sér ekki ógnvekjandi og eins og svo oft áður þegar karlinn sá fær að sýna sig og spóka um, er hann bæði heillandi og skemmti- legur og liggur við að fjörið sé allt- af meira hans megin, svo að segja. Hilmir Snær Guðnason bætir hér við enn einu blómi í sinn barm og var gaman að sjá hvernig hann umhverfðist og beitti líkamanum og svipbrigðum í eltingaleik við orðin í mjög skemmtilegu gervi sem Sig- ríður Rósa Bjarnadóttir á heiðurinn af ásamt Filippíu I. Elísdóttur sem sá um búningana. Þorsteinn Gunnarsson leikur glæsilegan gamlan leikara sem er heldur hressari en hinir félagar hans á elliheimilinu og rifjar upp takta sína í leikhúsinu með aðstoð einnar vistkonunnar sem léttilega svífur inn í gervi nornarinnar síðar í leiknum. Fyrir utan að starfskon- an Greta verður að stúlkunni sem Fástus ávallt unni. Það er langt síðan Þorsteinn Gunnarsson hefur sést í burð- arhlutverki á við þetta. Tuggan, hann hefur engu gleymt, á hér við, fyrir svo utan að hann smýg- ur léttilega inn í nýstárlegan leik- stíl og er áberandi best talandi leikarinn í sýningunni. Textinn er unnin af Vesturporturum og var hann skondinn og skemmtilegur og rímið mátulega geggjað, þó það sé auðvitað spurning hvort rígfull- orðinn maður velji orð sín þannig að honum sé slétt sama um eitthvað í stað þess að vera alveg sama. Það er Hanna María Karlsdóttir sem fer með hlutverk Evu og gerir hún það vel og breiðir út allan sinn faðm og var óborganleg í ýmsum tilburðum eins og til dæmis þegar henni er kálað með aðferð sem ekki verður sagt frá hér. Eitthvað virð- ist þó röddin hafa verið að hrekkja hana því á köflum heyrðist ekki mikið í henni. Hilmir Snær Guðna- son fer með hið umfangsmikla og heillandi hlutverk Mefistós. Systkinin sem stjórna hælinu eru leikin af þeim Rúnari Frey Gísla- syni og Unni Ösp Stefánsdóttur. Rúnar er í hlutverki sem má segja að skrapi botn raunveruleikans til að bregða fólki eins og hann sé á förum út úr hlutverki sínu og tóks honum svo sannarlega að skemmta fólki með þeim stíl meðan Unnur í hlutverki Gretu er dreymin og reynir nú heldur lítið á margbreyti- leika í túlkun en hún er óneitanlega nett og fim og ljóðræn loftfimleika- sveifla hennar og Björns Hlyns í lok verksins var falleg á að líta. Nína Dögg var sterk og þétt í sínum sveiflum og svipbrigði hennar og taktar stórhlægilegir. Hjólastóla- dansflokkurinn með þeim Jóhann- esi Svövu og Víkingi ásamt hinum á elliheimilinu féll í góðan jarðveg. Björn Hlynur Haraldsson fer með hlutverk Jóhanns á unga aldri og gerir það vel þó þessar stíl- færðu dúkkuhreyfingar hafi í raun verið óþarfi, en var kannski hugs- að til þess að leggja áherslu á góð- mennsku hans. Hljóðmyndin og tónlistin eru ekki síður í mögnuðu hlutverki og áhrif þessara þátta mikill til þess að skapa heildar sirk- usstemningu sem óneitanlega ríkti, einkum eftir hlé. Í fyrri hlutanum er heldur meira reynt að koma boð- skap á framfæri meðan farsinn og galsinn tekur yfir í þeim seinni. Leikstjóranum Gísla Erni tekst hér vel að virkja það samspil sem nauðsynlegt er til þess að galsa- leikur af þessu tagi gangi upp. Þeir sem muna eftir sýningunni í Þjóðleikhúsinu (líklega 1970) þar sem Trúbrot lék í reykjarsvælu öfgakennda tónlist úr neðri byggð og íturvaxin blondína skók sig inni í stóru fiskineti, vita að nýstár- leiki í uppsetningu þessa fræga verks var þar svo sannarlega einn- ig áberandi þar. Markmið sýning- ar sem að hluta til eru loftfimleik- ar hlýtur fyrst og fremst að vera að skemmta sem Vesturportshópurinn gerði svo sannarlega hér, en hitt er annað mál að það er hægt að moða meira úr þessu klassíska verki til umhugsunar og lærdóms, ekki síst nú, þegar útsala hefur verið á sálum til skrattans um nokkurt skeið. Elísabet Brekkan Niðurstaða: Vesturportshópurinn skemmtir áhorfendum með loftfim- leikum en hefði mátt vinna meira úr þessu klassíska verki til umhugsunar og lærdóms. Í upphafi var orðið HEFUR ENGU GLEYMT Þorsteinn Gunnarsson smýgur léttilega inn í nýstárlegan leikstíl og er áberandi best talandi leikarinn í sýningunni.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.