Samtíðin - 01.11.1955, Síða 35

Samtíðin - 01.11.1955, Síða 35
SAMTÍÐIN 31 Þ E ■ R VITRL ....... , SÖGÐU: WILLIAM FAULKNER: „Bók- menntir eiga að f jalla um manninn, baráttu hans, hugrekki o. s. frv. Maðurinn á í baráttu við sjálfan sig, við meðbræður sína. Hann vill vera hugrakkur, en er þó í vafa um, að hann geti það — þangað til örðug- leikarnir steðja að og hann á ekki annarra kosta völ.“ G. J. NATHAN: „Mundir þú vilja kvænas't stúlku, sem alltaf væri á sama máli og þú? Geturðu hugsað þér litla, yndislega veru, sem enga skoðun hefur aðra en þá, sem þú hefur? Ef svo er, þá ertu enn þá á andlegu smábamastigi. Nei, hlut- verk konunnar er að vera manni sínum til uppörvunar, sýna honum samúð og hugga hann, ef með þarf, en umfram allt standa við hlið hans sem skynsamur félagi, sem gott er að ráðgast við, hvað sem að höndum ber“. WILLIAM HAZLITT: „Lygin er mesta viðurkenning á ofurmagni sannleikans, sem hugsazt getur“. BERNARD SHAW: „Fáir menn hugsa oftar en tvisvar eða þrisvar á ári. Ég hef orðið heimsfrægur af því að hugsa einu sinni eða tvisvar í viku“. LONGFELLOW: „Við metum sjálf okkur eftir því, hvað við treystum okkur til að færast í fang; aðrir meta okkur af verkum okkar“. X: „Slæmir fulltrúar eru kosnir af góðum borgurum, sem sitja heima og greiða ekki atkvæði“. NÍJAR BÆK1IR Ágúst Sigurðsson: Dansk-íslenzkt orða- safn. 3. útg. 220 bls., íb. kr. 40.00. Ólafur Hansson: Ágrip af trúarbragða- sögu. Kennslubók. 143 bls., ób. kr. 35.00. Indriði G. Þorsteinsson: Sjötíu og níu af stöðinni. Skáldsaga. 2. útg. 148 bls., ób. kr. 30.00. Benjamín Sigvaldason: Sannar sögur III. hefti, 127 bls., ób. kr. 25.00. Guðmundur Gíslason Hagalín: Konan í dalnum og dæturnar sjö. Saga Moníku Helgadóttur á Merkigili. 336 bls., ób. kr. 105.00, íb. 130.00. Thor Jensen: Reynsluár. Minningar I. bindi. Skrásett hefur Valtýr Stefánsson. 246 bls., íb. kr. 150. F. Emerson Andrews: Sigmundur og kapp- ar Karls konungs. Drengjabók. Her- steinn Pálsson þýddi. 190 bls., ib. kr. 48.00. Mannfundir. íslenzkar ræður i þúsund ár. Úrval. Vilhjálmur Þ. Gíslason tók saman. 429 bls., ób. kr. 90.00, ib. 118.00 og 145.00. Wade Miller: Á mannaveiðum. Skáldsaga. 156 bls., ób. kr. 20.00. Kjartan Ólafsson: Sól í fullu suðri. Ferða- saga frá Suður-Ameriku. 269 bls., íb. kr. 85.00. Halldóra Eggertsdóttir og Sólveig Bene- diktsdóttir: Nýja matreiðslubókin. Regl- ur um meðferð matvæla. Fyrirsagnir um tilbúning rétta. Brauðgerð, Meðferð á berjum og grænmeti. Sláturstörf. 174 bls., ib. kr. 95.00. Pearl S. Buck: Dularblómið. Saga frá Jap- an og Bandaríkjunum. Andrés Kristjáns- son þýddi. 210 bls. íb. kr. 58.00. Útvegum allar fáanlegar bækur. Kaup- ið bækurnar þar, sem úrvalið er mest. Sendum gegn póstkröfu um land allt. BÖKAVERZLUN ISAFOLDARPRENTSMIÐJU H.F. Austurstræti 8, Reykjavík. Sími 4527.

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.