Fréttablaðið - 03.02.2010, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 3. febrúar 2010 11
HAÍTÍ, AP Alþjóðamatvælastofnun-
in hóf fyrstu skipulegu dreifingu
stofnunarinnar á matvælum á
Haítí á laugardag. Komið hefur
verið upp sextán stöðum í höfuð-
borginni Port-au-Prince þar sem
einungis konur geta sótt mat.
Dreifing matvæla eftir skjálft-
ann 12. janúar hefur verið sögð
illa skipulögð á stundum. Þá
hafi oft verið slegist um mat og
ungir menn haft þar undir konur
og veikburða og tekið af þeim
matvælin.
Stofnunin segir að með nýju
skipulagi sé reynt að tryggja að
matur komist til þeirra sem séu í
nauðum. - óká
Alþjóðamatvælastofnunin:
Matvælum
dreift á Haítí
Í BIÐRÖÐ Konur bíða í röð eftir að
matvælum verði útdeilt í Port-au-Prince
á Haítí. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SJÁVARÚTVEGUR Hraðfrystihúsið
Gunnvör í Hnífsdal hefur gert
Strandabyggð tilboð í jörðina
Nauteyri innst í Ísafjarðardjúpi.
„Við viljum tryggja að fá ekki
einhverja ofan í okkur því þetta
er viðkvæm starfsemi,“ segir
Einar Valur Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri Gunnvarar, sem
rekur seiðaeldisstöð fyrir þorsk á
Nauteyri og nýtir þar meðal ann-
ars heitt vatn úr borholu. Fyrir-
tækið hefur fram til þessa leigt
aðstöðuna af Strandabyggð.
Nauteyri á Langadalsströnd
er gamall kirkjustaður. „Jörðin
á nánast allt land frá fjöruborði
milli Þverár og Hafnardalsár allt
til vatnaskila á Ófeigsfjarðar-
heiði. Þar er nokkur fjöldi stöðu-
vatna, sum þeirra allstór, meðal
annars Skúfnavötn og Mávavötn,“
segir um Nauteyri í sölulýs-
ingu Fasteignamiðstöðvarinnar.
„Gífurlegt landflæmi, óþrjótandi
vatn í ám og vötnum og stórbrotin
náttúrufegurð gera Nauteyri eina
eftirsóknarverðustu jarðeign á
Vestfjörðum“, segir enn fremur
um þessa miklu jörð sem talin er
vera um 5.500 hektarar.
Samkvæmt ákvörðun sveitar-
stjórnarinnar mun Stranda-
byggð nú undirbúa gagntilboð til
Gunnvarar.
- gar
Hraðfrystihús með þorskeldi á Nauteyri vill nú kaupa jörðina af Strandabyggð:
Viðkvæm starfsemi sem þarf frið
NAUTEYRI Mikið land fylgir jörðinni Nauteyri sem blasir við til hægri þegar komið er
vestur yfir Steingrímsfjarðarheiði. MYND/FASTEIGNAMIÐSTÖÐIN
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært karlmann á þrítugsaldri
fyrir að hóta fjórum lögreglu-
mönnum lífláti. Atvikið átti sér
stað í ágúst 2008. Maðurinn var
færður í lögreglubíl við veitinga-
staðinn Glaumbar við Tryggva-
götu í Reykjavík.
Á leiðinni að lögreglustöðinni
við Hverfisgötu, svo og í fanga-
móttöku stöðvarinnar, hótaði
maðurinn ítrekað lögreglumönn-
unum fjórum, sem voru við
skyldustörf, lífláti. - jss
Karlmaður ákærður:
Hótaði laganna
vörðum ítrekað
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
ness hefur vísað frá máli gegn
manni sem ákærður var fyrir
að hafa slegið lögreglukonu með
krepptum hnefa í húsasundi á
Akureyri í júní 2009.
Maðurinn neitaði að hafa slegið
lögreglukonuna viljandi en úti-
lokaði ekki að hann hefði óvart
veitt henni högg í andlitið þegar
hún var að reyna að stöðva hann.
Dómari taldi að við rannsókn
málsins hefði átt að taka skýrslu
af lögreglumanni sem var á vett-
vangi. Þá hefði átt að fela öðru
lögregluembætti lögreglurann-
sóknina svo fyllsta hlutleysis
væri gætt. - jss
Ákærður fyrir að slá lögreglu:
Árásarmáli
vísað frá dómi