Samtíðin - 01.07.1966, Qupperneq 15

Samtíðin - 01.07.1966, Qupperneq 15
SAMTÍÐIN 11 Þeir geta orðið gamlir, karlarnir í Kákasus. Sjirali Muslimov var 7 ára, þagar Napóleon horfði á Moskvu brenna árið 1812, og 112 ára, þegar síðasta Rússakeisaranum var steypt af stóli. 75% af krökkunum í þorpinu, sem hann býr í, eru afkomendur hans. Hann er enn við góða heilsu og Fer allra sinna ferða 161 árs gamall SJIRALI MUSLIMOV er ekki vitund ellihrumur. Hann er blátt áfram unglegur. Hann er ekki sérlega hár vexti, en hold- grannur og sterkbyggður. Hann er með gi'átt alskegg og snör augu, og röddin er Mjórnmikil. Hann er með arnarnef eins °g fjallabúa sæmir. f þorpinu sínu er hann venjulega kallað- Ur Sjirali-baba, )>. e. Sjirali afi. Þessi gamli •iiaður trúir á Guð og biðst fyrir á hverj- Ur>i degi. Hegar rússneska byltingin brauzt út, var Sjirali 112 ára. Þegar samyrkjubúin Voru stofnuð í Rússlandi, varð hann fyrst- Ur aHra í þorpinu sínu til að gerast sam- ^’kjubóndi. Þorpið heitir Barzava og er ^Lerikskij-fjalIahéraðinu í Azerbajdjan í Lákasus. Sjij-aiy hefur unnið fjölbreytt störf um ‘lvina, m. a. annazt hesta- og fjárgæzlu °g stundað vegavinnu. Nú er hann kominn a Hlilaun, en starfar enn að samyrkjubú- s <ap. Hann á sér fjölda áhugamála, vill V.Ha allt milli himins og jarðar og helzt SL> allt með eigin augum. Ekki er haldinn s'° bændafundur í Barzava, að hann sé þar ekki. Hessi aldursforseti Muslimov-ættarinn- 11 i°r snemma í rekkju á kvöldin, en i'ís með sólaruppkomu. I dögun er hann jafn- an kominn að verki og fer þá oftast að höggva við í eldinn. Hann segir, að viðar- höggið hafi þau áhrif á sig, að hann sé frískur allan daginn. Sjirali er frábær þrekmaður og frægur ekki einungis um allt Rúsland, heldur og víða erlendis, m. a. í Hollandi og Indlandi.

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.