Fréttablaðið - 03.02.2010, Qupperneq 12
12 3. febrúar 2010 MIÐVIKUDAGUR
Í LEIÐINDAFÆRÐ Ökumaður bifhjóls
gerir sitt besta í mikilli snjókomu í
Weisskirchen, nærri Frankfurt, í Þýska-
landi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
SVEITARFÉLÖG Eftirlitsnefnd um
fjármál sveitarfélaga (EFS) ætlar
ekki að aðhafast í málum Reykja-
nesbæjar að svo stöddu en ítrekar
varnaðarorð um óvissu í rekstrar-
forsendum og fjárhagsstöðu sveit-
arfélagsins. EFS kallar eftir að fá
reikningsskil frá Reykjanesbæ
send ársfjórðungslega með sam-
anburði við fjárhagsáætlun ársins
2010. Þá verði ársreikningur fyrir
2009 lagður fram sem fyrst.
Að sögn Jóhannesar Finns Hall-
dórssonar, framkvæmdastjóra
EFS, hefur ekki áður verið óskað
eftir ársfjórðungslegum uppgjör-
um hjá sveitarfélögum, nema þau
hafi áður leitað til EFS og gert við
hana samning um fjármál sín.
Í bréfi EFS segir að samkvæmt
lögum sé sveitarfélögum skylt að
gæta þess að heildargjöld fari
ekki fram úr heildartekjum. Fjár-
hagsáætlun 2010 geri ráð fyrir
hallalausum rekstri Reykjanes-
bæjar en nokkur óvissa sé um
forsendur. Þar sé m.a. gert ráð
fyrir verulegri fjölgun starfa í
sveitarfélaginu. „Gangi áætlun-
in ekki eftir er ljóst að bregðast
þarf við afleiðingum þess,“ segir
í bréfinu.
EFS gerir athugasemd við stað-
hæfingar sveitarfélagsins um að
viðsnúningur hafi orðið í rekstr-
inum vegna viðskipta með eign-
ir sveitarfélagsins í HS hf. á síð-
asta ári og að vegna sölu á eignum
megi gera ráð fyrir sjö milljarða
hagnaði við lokauppgjör ársins
2009.
EFS vekur athygli á að fram-
legð frá rekstri sé neikvæð um
639 milljónir króna samkvæmt
árshlutauppgjöri frá 31. október.
Þar komi fram að hagnaður af
sölu hlutabréfa nemi 11,7 millj-
örðum króna. Verulega vanti á
„að hinn reglubundni rekstur
sveitarsjóðs skili viðunandi nið-
urstöðu“.
Eftir eignasöluna séu skuld-
ir „enn verulega yfir eðlilegum
mörkum“. Fjárhagsstaðan sé þó
mun betri og gert ráð fyrir að
peningalegar eignir, sem fengust
við eignasöluna og eru í formi
skuldabréfa, verði nýttar til að
greiða niður skuldir. Spurður
við hvað EFS miði eðlileg mörk
skulda og skuldbindinga, segir
Jóhannes Finnur að í því sam-
bandi sé yfirleitt miðað við um
150 prósent af tekjum. Fyrir sölu
eigna í HS námu skuldir og skuld-
bindingar bæjarins um 450 pró-
sentum af tekjum. Eignasalan upp
á 11,8 milljarða hefur lækkað það
hlutfall um meira en 200 prósent,
miðað við áætlun um 5,6 milljarða
króna tekjur á þessu ári.
peturg@frettabladid.is
EFS er með Reykja-
nesbæ í gjörgæslu
Eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga segir óvissu um tekjuforsendur Reykjanes-
bæjar. Skuldir séu enn verulega yfir eðlilegum mörkum. EFS vill að sveitarfélag-
ið skili ársfjórðungslegu uppgjöri með samanburði við fjárhagsáætlun ársins.
REYKJANESBÆR Eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga hefur ekki áður kallað eftir
ársfjórðungslegu uppgjöri nema fyrir liggi samningur um aðkomu nefndarinnar að
fjármálum sveitarfélags. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SAMKEPPNISMÁL Héraðsdómur
Reykjavíkur hefur fellt úr gildi
úrskurð áfrýjunarnefndar sam-
keppnismála um að Icelandair
eigi að greiða 130 milljóna króna
sekt vegna undirverðlagningar á
fargjöldum.
„Það er mjög mikilvægt að fá
þessar 130 milljónir króna til
baka og dómurinn undirstrikar að
Samkeppniseftirlitið gekk allt of
langt á sínum tíma,“ segir Guðjón
Arngrímsson, upplýsingafulltrúi
Icelandair.
Um er að ræða mál sem á rætur
að rekja til ársins 2004. Þá kvart-
aði Iceland Express til Samkeppn-
iseftirlitsins undan verði á flugi
Icelandair til Kaupmannahafnar
og London. Um var að ræða tak-
markaðan sætafjölda fyrir 16.900
krónur. Taldi Iceland Express að
Icelandair væri að misnota ráð-
andi stöðu sína á þessum markaði.
Í apríl 2007 komst áfrýjunarnefnd
samkeppnismála að þeirri niður-
stöðu að um hafi verið að ræða
óeðlilega undirverðlagningu og
taldi hæfilegt að leggja 130 millj-
óna króna sekt á Icelandair.
Héraðsdómur telur að um skað-
lega undirverðlagningu hafi verið
að ræða á flugleiðinni til Kaup-
mannahafnar en ekki til London.
Icelandair hafi því brotið lögin.
Brotið sé hins vegar hvorki eins
alvarlegt né áhrifin eins skaðleg
og áfrýjunarnefndin taldi. Þess
vegna beri að fella sektina niður.
- gar
Héraðsdómur Reykjavíkur ógildir 130 milljóna samkeppnissekt á Icelandair:
Brotið hvorki víðtækt né skaðlegt
GUÐJÓN ARNGRÍMSSON Upplýsingafull-
trúi Icelandair fagnar niðurstöðu héraðs-
dóms í sex ára gömlu deilumáli.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
NÁTTÚRUFRÆÐI Rannsóknir sérfræðinga sýna að
hvítabjörninn sem gekk á land skammt frá bænum
Óslandi í Þistilfirði 27. janúar var ung birna. Krufn-
ing leiddi ekkert óeðlilegt í ljós og benti til að
birnan hefði verið heilbrigð þegar hún var felld.
Karl Skírnisson, dýrafræðingur á Tilraunastöð-
inni á Keldum, og samstarfsfólk hans krufði dýrið
að beiðni Náttúrufræðistofnunar.
Eins og áður segir var hér á ferðinni ung birna,
173 sentimetra löng. Hún var vigtuð nyrðra áður en
feldurinn var tekinn og reyndist þá vera 138 kíló að
þyngd. Fyrirhugað er að ákvarða aldur dýrsins út
frá fjölda árhringja í tannrótum en sé stærðin borin
saman við mælingar á dýrum úr Austur-Grænlands-
stofni hvítabjarna er ljóst að birnan sem hér um
ræðir var þegar orðin sjálfstæð. Húnar lúta ekki
forsjár móður nema um fyrstu 27 mánuði ævinnar.
Þeir fæðast í híði að vetrarlagi, oftast í desember
eða janúar. Líklegast er að Þistilfjarðarbirnan sé
ríflega fjögurra ára.
Fyrstu niðurstöður benda til þess að birnan hafi
ekki verið smituð af tríkínum en fyrirhugað er að
rannsaka það nánar á Tilraunastöðinni á Keldum
auk þess sem leitað verður að öðrum sníkjudýrum.
Rannsóknir á dýrinu eru gerðar að hluta til í
samvinnu við Dani sem unnið hafa um árabil að
athugunum á hvítabjörnum á Grænlandi. Hauskúpa
dýrsins og bein verða hreinsuð og varðveitt á
Náttúrufræðistofnun Íslands. - shá
Þistilfjarðarbirnan talið ríflega fjögurra ára gamalt og heilbrigt kvendýr:
Var ung og heilbrigð birna
ÞISTILFJARÐARBIRNAN Dýrið var fellt 27. janúar og rannsóknir
sýna að það var heilbrigð birna. FRÉTTABLAÐIÐ/GUÐJÓN
LÖGREGLUMÁL Lögreglunni á Sel-
fossi tókst í fyrrinótt að hafa
hendur í hári ungs manns sem
stolið hefur úr fjölda bíla í
bænum.
Maðurinn hefur stundað þessa
iðju frá því í nóvember á síðasta
ári. Á þessu tímabili hefur verið
farið inn í um þrjátíu ólæsta bíla
á Selfossi, gramsað í þeim og
stolið lauslegum hlutum eins og
GPS-tækjum, myndavélum og
lausafé. Maðurinn fór eingöngu
inn í ólæsta bíla og olli engum
skemmdum.
Hann hefur verið yfirheyrður
og hann játað á sig brotin. - jss
Lögreglan á Selfossi:
Stal góssi úr
þrjátíu bílum