Fréttablaðið - 03.02.2010, Page 14

Fréttablaðið - 03.02.2010, Page 14
14 3. febrúar 2010 MIÐVIKUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is Sú virðist vera bjargföst sann-færing franskra kvikmynda- gagnrýnenda, að kvikmyndir eigi að fjalla um ungt fólk, helst unglinga sem góna út í loftið, segja öðru hverju einsatkvæðis- orð og hlæja þess á milli innsogs- hlátrinum; það sé í rauninni eina verðuga verkefni kvikmyndahöf- unda. Þegar þeir túlka einhverja mynd líta þeir því gjarnan svo á að yngsta persónan hljóti að vera í miðpunktinum, um hana snúist allt annað. Þannig skildu þeir „Hafið“ eftir Baltasar Kormák svo að sú mynd fjallaði um ungan Íslending sem býr í París og ferð hans á heimaslóðir, annað virtist fara fyrir ofan garð og neðan hjá þeim. Ef kvikmynd snýst ekki um unglinga taka þeir henni oft fálega, ef þeir rífa hana þá ekki í tætlur. En franskir kvikmyndaáhorf- endur virðast ekki alltaf vera á sama máli, þeir álíta að fleira sé á dagskrá í veröldinni en ungl- ingavandamálið eitt, og hefur það komið allrækilega í ljós nú í vetur. Nokkru fyrir jól var frum- sýnd frönsk mynd eftir Radu Mihaileanu, sem nefndist „Tón- leikarnir“; þar komu unglingar ekkert við sögu og hunsuðu gagn- rýnendur hana, en þrátt fyrir það sló hún þegar í gegn svo um mun- aði, og hefur æ síðan verið ofar- lega á listanum yfir þær mynd- ir sem mest eru sóttar. Eftir tíu vikur var tala áhorfenda komin upp í 1,7 milljónir. En ekki er um að villast að við- fangsefnið er gripið út úr sam- tímanum þótt um það sé fjallað í skáldlegum ýkjustíl. Þar segir frá rússneskum hljómsveitar- stjóra sem var rekinn úr starfi á stjórnartímum Bresnéfs, því að hann neitaði að reka einleikara sem var gyðingur. Hljómsveitar- stjórinn var að vísu enginn sér- stakur vinur gyðinga sem slíkra, en einleikarinn, ung kona sem var fiðlusnillingur og átti að leika fiðlukonsert Tsjækofskís, var stjarna hljómsveitarinnar. Skömmu síðar var hún send í útlegð í gúlagið og lést þar. Síðan hefur hljómsveitarstjór- inn orðið að láta sér lynda að vera ræstingamaður í Bolsjoj. En einn góðan veðurdag rekst hann á fax nýskroppið út úr fax- vél í skrifstofu leikhússtjórans þar sem hljómsveitinni er boðið að halda tónleika í Chatelet í París, og sér þá leik á borði: hann stelur faxinu, svarar því sjálfur og tekur boðinu í sínu nafni. Svo fer hann að safna saman tónlist- armönnum af öllu tagi sem eru í svipaðri stöðu og hann sjálf- ur og harla litríkur söfnuður og undirbúa tónleikaferðina til Par- ísar. Mörg ljón eru á veginum, það vantar peninga og því þarf að fá einn ólígarkinn til að ger- ast „sponsor“; svo er erfitt að fá pappíra til að komast úr landi, en um það sér rússneska mafían. Jafnframt er hljómsveitarstjór- inn fyrrverandi og tilvonandi í stöðugu sambandi við leikhús- stjórann í París og gerir ýmsar kröfur, m.a. vill hann fá unga, franska konu sem þegar er orðin víðfræg fyrir fiðluleik til að vera einleikari. Hún er treg en fellst þó á það að lokum. Ferðin til Parísar er öll hin spaugilegasta, mafían ræður ríkjum á flugvellinum í Moskvu, Rússarnir drekka eins og svamp- ar á leiðinni, og þegar þeir þurfa að tala frönsku er hún í meira lagi bjöguð, þeir gæta þess t.d. ekki að ýmis klassísk orð hafa gróflega breytt um merk- ingu í nútímamáli. Rússneskur ólígark birtist og heimtar að fá að útvarpa tónleikunum, reyndar hafði frönsk útvarpsstöð réttinn, en ólígarkinn hefur í hótunum og býst m.a. til að skrúfa fyrir allt rússneska gasið. Franska ein- leikaranum líst ekki á blikuna, en svo hefjast tónleikarnir fyrir fullu húsi í Chatelet; leikinn er fiðlukonsert Tsjækofskís, og í byrjun heyrast feilnótur hér og þar, en svo verður eins konar kraftaverk, tónleikarnir takast frábærlega vel og verða upphafið að sigurför þessara forkostulegu tónlistarmanna. Í lokin kemur í ljós að franski fiðluleikarinn var í rauninni dóttir fiðluleikarans sem lést í útlegðinni, hafði henni verið smyglað úr landi í frum- bernsku. Með því að leika konsert Tsjækofskís var hún því að finna aftur sinn eigin uppruna, og taka upp þráðinn á ný. Þegar ég sá myndina var klappað í lokin, en ég heyrði þau orð falla meðal áhorfenda, að kannske væri nýstárlegasti þátturinn lýsingin á óligörkun- um. Þeir keppast um það hver geti haldið sem fjölmennastar og glæstastar veislur, og hefur kona hljómsveitarstjórans það starf að ráða fólk gegn smávægi- legri borgun að sitja við borð- in og fylla salarkynnin. Það er í einni slíkri hátíð sem hljómsveit- arstjórinn finnur sinn „sponsor“, en sú mynd sem dregin er upp af ólígörkunum í leiðinni, rudda- skap þeirra og stórmennsku- brjálæði, er óborganleg. En hana ættu íslenskir kvikmyndagerðar- menn að skoða vandlega, kannske fengju þeir þar innblástur. Tónleikarnir Í bíó EINAR MÁR JÓNSSON Í DAG | UMRÆÐAN Erla Ósk Ásgeirsdóttir skrifar um Icesave-reikningana Þess misskilnings hefur gætt í umræðunni um Icesave að lögaðilar s.s. sveitarfélög, líknarfélög og aðrir aðilar hafi tapað gríðarlegum fjárhæðum á Icesave-netreikningum Lands- bankans. Staðreyndin er sú að einvörðungu einstaklingar gátu lagt fé inn á reikn- ingana, en fagfjárfestar, þ.m.t. félagasamtök og sveitarfélög, áttu viðskipti á heildsölumarkaði með innlán og þá oft fyrir milligöngu þriðja aðila. Lög- aðilar áttu aldrei aðgang að netreikningum Lands- bankans enda voru þeir sérhannaðir fyrir einstakl- inga á smásölumarkaði. Ofangreindir aðilar töpuðu fé á viðskiptum sínum við Landsbanki London Branch, Heritable Bank og Landsbanki Amsterdam Branch, en það tap hefur ekkert með innlánsreikninga Icesave að gera. Vandi okkar er sá að þingmenn Hollands og Bret- lands virðast ekki gera greinarmun á þessu tvennu. Það er hins vegar afar mikilvægt fyrir málstað Íslendinga að þetta atriði komi skýrt fram þar sem margir þingmenn bæði Breta og Hollendinga veigra sér við að taka upp málstað Íslendinga vegna þess að þeir standa í þeirri trú að sveitarfélög og líknar- félög hafi tapað á Icesave, en svo er ekki. Þeirri staðreynd hefur heldur ekki verið haldið á lofti að þessir þrír bankar voru ólíkir að því leyti að annars vegar var um að ræða útibú Landsbankans; Landsbanki London Branch og Amsterdam Branch sem voru á ábyrgð íslenska fjármálaeftirlitsins og hins vegar dótturfélag Landsbankans; Heritable bank þ.e. breskan banka á ábyrgð breska fjármála- eftirlitsins. Lögaðilar eiga kröfur á þessa þrjá banka Landsbankans og þrátt fyrir að þeir hafi allir verið í eigu íslenskra aðila þá er ábyrgðin ekki eingöngu Íslendinga. Málstaður Íslands og orðstír er undir og því mikil- vægt að farið sé með rétt mál og allar upplýsingar sem því tengjast séu uppi á borðum áður en gengið verður aftur til samninga við Breta og Hollendinga. Málið er nógu erfitt þótt við látum ekki misskilning sem þennan veikja stöðu okkar enn frekar. Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins. Líknarfélög töpuðu ekki á Icesave ... frábært vöruúrval z - notes Gulir í pappast. 200 bl. 3MB330NEU 299 Áður kr. 1.361 E nn er stuðningur Íslands við innrás Bandaríkjamanna og Breta í Írak árið 2003 í brennidepli. Opinber rannsókn á málinu í Bretlandi vekur þá umræðu af nokkurra missera blundi. Virðast vinnubrögð breskra til fyrirmyndar; allt er gert fyrir opnum tjöldum og öllum sem skipta máli er gert að gera grein fyrir máli sínu. Alveg frá því að upplýst var í Bandaríkjunum í mars 2003 að Íslendingar væru í stuðningsliði innrásarherjanna og legðu þeim til aðstöðu til hernaðaraðgerðanna hér á Íslandi hafa vinnubrögð íslensku ráðamannanna í málinu þótt vafasöm. Þau vinnubrögð voru þó í fullu samræmi við það sem viðgekkst og því eðlileg að því leyti til. Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson höfðu nefnilega þann hátt á að taka ákvarðanir – stórar og smáar – upp á eigin spýtur. Þeir létu ekki fyrirbæri á borð við þingflokka, þingnefndir, Alþingi og ríkisstjórn flækjast fyrir sér. Ákvörðun tvímenninganna um stuðninginn þurfti ekki að koma á óvart. Afstaða þeirra hafði margsinnis komið fram opinberlega. Þeir sögðu að koma bæri Saddam Hussein frá völdum með góðu eða illu og að Keflavíkurflugvöllur stæði árásarherjunum opinn til afnota. Þetta umdeilda mál hefur annað veifið fengið talsverða umfjöll- un. Fókusinn hefur jafnan verið á lista, sem Bandaríkjamenn gáfu út, yfir þær þjóðir sem blessuðu innrásina eða tóku þátt í henni með einhverjum hætti. „Listi viljugra þjóða“ var hann kallaður. Enda- laust var talað um listann eins og hann væri vandamálið, ekki stuðn- ingurinn sjálfur. Sjálfsagt áttu sérfræðingar í umræðustjórnun þar einhvern hlut að máli. Staðfastir Íslendingar hafa reynt að láta eins og stuðningur Íslands hafi ekki skipt neinu máli. Ráðist hefði verið inn í Írak hvort sem Ísland hefði stutt þær aðgerðir eða ekki. Í slíkum orðum felst yfirlæti gagnvart þeim sem láta sér annt um orðspor lands og þjóðar og stendur ekki á sama um hvað stjórnvöld á hverjum tíma aðhafast. Því er líka haldið fram að þetta hafi nú verið allt í lagi af því að Íslendingar tóku ekki þátt í sjálfri innrásinni. Af því að við héld- um ekki um gikkinn. Þjóð sem ekki á her kemst ekki nær því að taka þátt í innrás en að lýsa yfir fullkomnum stuðningi við slíkar aðgerðir og bjóða fram aðstöðu til að auðvelda þær eða jafnvel gera þær mögulegar. Fyrir liggur álit býsna virtra lögmanna um að ákvörðun Davíðs og Halldórs hafi ekki verið lögbrot. Það er nú gott. En hvað sem því líður er mikilvægt að málið verði gert almennilega upp, líkt og Bretar eru nú að gera. Verður ekki betur séð en að Alþingi sé á góðri leið með að ákveða það þrátt fyrir smá stæla í varaformanni Sjálfstæðisflokksins í Fréttablaðinu í gær. Róið er að því öllum árum að búa svo um hnútana í stjórnsýslunni og á fjármálamarkaði að bankakerfið hrynji ekki aftur. Það gæti nefnilega gerst að óábyrgir menn veljist á ný til ábyrgðarstarfa í bönkunum. Að sama skapi er mikilvægt að girða fyrir að einn eða tveir menn geti tekið ákvarðanir á borð við þá að styðja – og greiða fyrir – innrás í önnur ríki. Eðlilegt er að setja lög og reglur sem koma í veg fyrir slíkt í framhaldi íslensku Íraksrannsóknarinnar. Íslendingar eru við það að fara að dæmi Breta. Auðvitað verður Íraksrannsókn BJÖRN ÞÓR SIGBJÖRNSSON SKRIFAR ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Jón Kaldal jk@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 ERLA ÓSK ÁSGEIRSDÓTTIR Allt í hakki Lögreglan hefur í haldi sautján ára ungling sem grunaður er um að hafa stolið trúnaðargögnum úr tölvu Gunnars Gunnarssonar, lögfræðings hjá Milestone, sem var í eigu Wern- ersbræðra. Pilturinn starfaði áður hjá lögfræðingnum við uppsetningu öryggiskerfis fyrir tölvur og leikur sá grunur á að hann hafi notfært sér gamla öryggiskóða til að stela upplýsingum. Þetta er svo reyfarakennd atburðarás að það er engu líkara en að við séum stödd í miðri sænskri spennu- mynd. Traustvekjandi En þetta vekur upp eftirfarandi spurningu: Hvers vegna leitar lögfræðingur, sem starfaði meðal annars fyrir menn sem voru þá í hópi ríkustu manna Íslands, til unglings sem er ekki orðinn lögráða og fékk hann til að setja upp öryggiskerfi til að gæta trúnaðarupplýsinga skjólstæðinga sinna? Skyldu þetta vera algeng vinnubrögð hjá lögfræðingum hér á landi? Enginn betri á bekknum Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari var spurður í Morgunblað- inu í gær hvers vegna Logi Geirsson hefði komið svona lítið við sögu á EM í handbolta. Sagði Guðmundur það hafa „þróast ein- hvern veginn þannig þegar á mótið leið“, þar sem Arnór Atlason og Aron Pálmarsson, sem leika sömu stöðu og Logi, hafi staðið sig svo vel. „Þar með fékk Logi hlutverk sem hann hefur ekki áður verið í hjá lands- liðinu,“ sagði Guðmundur. Það er að sitja á bekknum. „Loga til hróss,“ bætti hann við, „stóð hann sig frábærlega í þessu hlutverki og kemur mjög sterkur frá þessari keppni“. Er það mjög hughreystandi fyrir Loga Geirsson að vera álitinn bestur á bekknum? bergsteinn@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.